Morgunblaðið - 01.10.2008, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 01.10.2008, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI FRAMTÍÐAR SPENNUTRYLLIR Í ANDA BLADE RUNNER GÁFUR ERU OFMETNAR KOLSVÖRT KÓMEDÍA FRÁ JOEL OG ETHAN COEN. ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRUM “NO COUNTRY FOR OLD MEN” OG “BIG LEBOWSKI” HÖRKU HASAR „ SPRENGHLÆGILEGUR GAMANFARSI ÞAR SEM HEILT HLAÐBORÐ AFLEIKURUM FER Á KOSTUM“ -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Burn After Reading kl 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Babylon A.D. kl 8 - 10 B.i. 16 ára Pineapple Express kl 8 - 10:30 B.i. 16 ára Brideshead Revisited kl 10:30 B.i. 12 ára Sveitabrúðkaup kl. 5:45 LEYFÐ Mamma Mia kl. 5:30 - 8 LEYFÐ Lukku Láki kl. 6 LEYFÐ Burn After Reading kl. 8 - 10 B.i.16ára Likku Láki kl. 6 LEYFÐ Pineapple Express kl. 8 - 10 B.i.16ára Mamma Mia kl. 5:50 LEYFÐ Þú færð 5 % endurgreitt í BorgarbíóSími 462 3500 - Ó.H.T., RÁS 2 - 24 STUNDIR - B.S., FBL - Þ.Þ., D.V. - S.V., MBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI “ENN EIN SNILLDIN FRÁ COEN-BRÆÐRUM” -T.S.K., 24 STUNDIR - L.I.B.,TOPP5.IS/FBL - S.V., MBL - Þ.Þ., DV ILLIR ANDAR HERJA Á FJÖLSKYLDU HANS! ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! SÝND Í SMÁRABÍÓI 650 kr. fyrir fullorðna - 550 kr. fyrir börn Frábæra teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI ÖLLUM FREISTINGUM FYLGJA AFLEIÐINGAR Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga SJÁLFSTÆÐU LEIKHÚSIN Bandalag atvinnuleikhópa - stofnað 1985 - PRiVATE dANCER Miðasala: 568 8000 | www.borgarleikhusid Panic productions í bORGARLEikhúSiNU SýNiNG MáNAðARiNS í OkTóbER NáNARi UPPL: www.leikhopar.is HUGSIÐ ykkur að fjölskyldan sé mætt í hádegismat hjá mömmu og lærið kemur snarkandi úr ofninum og hafnar á miðju borði, innan um allt góða meðlætið. En, eins og hendi sé veifað, breytist hátíðin í hrylling, því sunnudagssteikin reynist vita bragð- laus óþverri, þótt freistandi sé fyrir augað. Auðvitað kemur þetta aldrei fyrir afburða soðgreifa eins og mæð- ur okkar, en mér datt samlíkingin í hug þegar ég gekk sárasvekktur út af Babylon A.D. Þar bregðast krosstré. Sómaharðhausinn Van Diesel leiðir hópinn þar sem gefur að líta sjálfan Dedpardieu, Charlotte Rampling og Michelle Yeoh, hina kattliðugu Kína- konu. Tökustaðirnir vel valdir, leik- tjöldin í hefðbundnum Blade Runner- stíl og til að byrja með hæfir tónlist Atla Örvarssonar innihaldinu vel. Sem sagt gott útlit og fyrstu mínuút- urnar lofa góðu, síðan hrynur allt sem hrunið getur, framhaldið veldur skelfileg vonbrigði og sekúndurnar verða að sólarhringum. Minnir á ís- lensku „útrásina“ (!); hér hefur miklu fé verið sólundað í vitleysu. Tíma- og peningasóun Babylon A.D. „… hér hefur miklu fé verið sólundað í vitleysu.“ Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYND Háskólabíó, Laugarásbíó Leikstjóri: Mathieu Kassovitz. Aðalleik- arar: Vin Diesel, Michelle Yeoh, Melanie Thierry, Gérard Depardieu, Charlotte Rampling. 90 mín. Bandaríkin 2008. Babylon A.D. bnnnn TÓNLISTARMAÐURINN og tón- skáldið David Amram kom fram á Friðartónleikum í Ráðhúsi Reykjavík- ur á mánudag en hann er hér staddur í tengslum við alþjóðlega kvik- myndahátíð sem nú stendur yfir. Am- ram samdi tónlistina við kvikmyndina Óbyggða-Gandhi (The Frontier Gandhi) eftir T.C. McLuhan sem var heimsfrumsýnd um helgina á hátíðinni en myndin fjallar um Badshah Khan, múslímskan friðarsinna og samtíð- armann Mahatma Gandhis. Var mynd- in heil 20 ár í vinnslu. Amram hefur samið fleiri en 100 tónverk, þar á með- al fyrir kvikmyndir á borð við Splen- dor in the Grass og The Manchurian Candidate. Í slagtogi við Pétur Grét- arsson og fleiri íslenska tónlistarmenn flutti Amram etnógrafískan djass í Ráðhúsinu gestum til bæði gagns og gamans. Morgunblaðið/Frikki Etnógrafísk sveifla Valdi Kolli, Amram og Pétur Grétars í Ráðhúsinu. Amram og félagar í Ráðhúsinu MEÐAL þeirra fjölmörgu stjarna sem eru nú í París að kynna sér sumartísku næsta árs er leikkonan Salma Hayek. Í för með henni á sýningu Ba- lenciaga var fyrrum unnusti hennar og eigandi tískuhúss- ins, François-Henri Pinault. Samkvæmt heimildamanni People fór mjög vel á með þeim. „Þau héldust ekki í hendur, en þau sátu þétt sam- an.“ Hayek og Pinault eiga eina dóttur saman og hafa eytt sí- fellt meiri tíma í félagsskap hvors annars að undanförnu. Sést hefur til þeirra saman bæði í Bandaríkjunum og Frakklandi og því gengur nú sá orðrómur að ef til vill hafi þau náð sáttum og tekið saman á ný. Saman á tískusýningu Saman á ný? Hayek og Pinault þegar allt lék í lyndi. Eða leikur kannski allt í lyndi?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.