Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008
Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til
að koma þér af stað á mjög árangursríkan
og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðisins
er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
Tímar eru: 6:30, 7:30, 10:00, 12:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest út úr
holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Ný námskeið hefjast 3. nóvember
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is
Hilton Reykjavík Nordica Hotel
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
Styrmir Þór Bragason 37 ára
forstjóri MP Fjárfestingarbanka
Skemmtilegt og fjölbreytt námskeið og besta aðhald
sem ég hef fengið og það er það sem skiptir öllu
máli þegar maður er að koma sér í form með
breyttu mataræði og meiri hreyfingu. Ég var farinn
að hlakka til að komast á æfingar og ég fann að
orkan jókst mikið á skömmum tíma sem skipir miklu
máli í minni vinnu.
Kristbjörg Sveinbjörnsdóttir 27 ára
Hjúkrunarfræðingur
Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir 32 ára
Viðskiptafræðingur
Við systurnar ætluðum einungis á eitt námskeið en
þau urðu þrjú og árangurinn lét svo sannarlega ekki á
sér standa. Misstum 23 kíló til samans á þremur
mánuðum. Það eigum við Gunnari Má þjálfara og
starfsfólkinu á Nordica Spa að þakka. Frábært aðhald,
skemmtun, útrás og vellíðan. Við gátum þetta og því
getur þú þetta líka.
Rannveig I. Marelsdóttir 48 ára
bókari hjá Mannviti
Björk Baldvinsdóttir 29 ára
sérfræðingur hjá Kaupþingi
Markviss leiðsögn, frábær aðstaða og mesta aðhald
sem hægt er að fá. Hér eru engar öfgar á ferð. Farið
er vel ofan í mataræðið á skynsaman hátt og bætt
við skemmtilegri hreyfingu – útkoman er aukinn orka,
úthald og vellíðan í daglegu lífi. Getum mælt með
þessu námskeiði við hvern sem er – 100% árangur.
Fjögurra vikna
lúxusnámskeið
fyrir konur og karla
Eftir Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður | Sturla Böðv-
arsson, forseti Alþingis, Hafsteinn
Garðarsson hafnarstjóri og Jóhann-
es Sverrisson,eftirlitsmaður
hafnarframkvæmdanna, sáu um að
klippa á borðann við vígslu hafn-
armannvirkja í Grundarfirði nýver-
ið. Að því búnu blessaði sr. Að-
alsteinn Þorvaldsson, sóknar-
prestur í Grundarfirði, hið nýja
mannvirki. Eftir athöfnina á Mið-
garði var öllum viðstöddum boðið
til kaffisamsætis í Samkomuhúsinu
en þar lýsti Guðmundur Ingi Gunn-
laugsson bæjarstjóri bygging-
arsögu Miðgarðs og kostnaði við
framkvæmdina sem hann sagði nú
nálgast 160 milljónir. Miðgarður er
80 metrar að lengd og 20 metrar á
breidd og dýptin við hann 6 metrar
á stórstraumsfjöru. Með tilkomu
Miðgarðs mun öll aðstaða til lönd-
unar batna til muna. Litla bryggja,
sem jafnframt er elsta hafnarmann-
virkið í Grundarfirði og er á milli
Norðurgarðs og Miðgarðs, verður
nú senn fjarlægð og gengið frá
svæðinu en þar verður jafnframt
gert ráð fyrir aðstöðu fyrir létta-
báta skemmtiferðaskipa.
Nýtt hafnarmannvirki
vígt í Grundarfirði
Morgunblaðið/Gunnar Krstjánsson
Klippt Jóhannes Sverrisson, Sturla Böðvarsson, Hafsteinn Garðarsson og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson.
IMF eða Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hefur á löngum ferli sett ýmisleg skil-
yrði um samfélagslegar breytingar í
þeim ríkjum sem hann hefur aðstoð-
að fjárhagslega. Því er mörgu velt
upp sem hugsanlegum snertiflötum í
viðræðum við sjóðinn, m.a. um-
hverfismálum. Viðmælendur telja
ekki að IMF setji skilyrði á sviði um-
hverfismála fyrir fjárhagsaðstoð nú.
Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og
lektor við viðskiptadeild HR, sem sat
í framkvæmdastjórn sjóðsins 2002-
2003, segir að fyrst Íslendingar hafi
ítarlega löggjöf og lögbærar stofnan-
ir til að fjalla um mál á því sviði sé
það langsótt að sjóðurinn fjalli um
þau. „Mér kæmi á óvart ef sjóðurinn
tæki upp slík atriði í þessum viðræð-
um,“ segir Ólafur.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, sat í fram-
kvæmdastjórninni árið 2003. Hann
segir það einfaldlega af og frá að
IMF taki upp skilyrði á þessu sviði.
Báðir vísa þeir í að Ísland sé þróað
ríki og sjóðurinn muni einbeita sér að
því að leysa gjaldeyrisvandræðin
sem Íslendingar standa frammi fyrir.
„Sjóðurinn mun hugsa um það
hvernig við komumst út úr þessari
kreppu og hvernig við getum endur-
reist fjármálakerfið,“ segir Vilhjálm-
ur. onundur@mbl.is
IMF ekki í
umhverfis-
málunum
STJÓRN Neytendasamtakanna
kallar eftir skýrari og betri upplýs-
ingum frá stjórnvöldum vegna alvar-
legs ástands efnahags- og gjaldeyr-
ismála ríkisins, að því er segir á
heimasíðu samtakanna.
Þar er bent á að fréttir af stöðu
mála séu af skornum skammti, þær
séu oft misvísandi og komi jafnvel
frá erlendum fréttaveitum. Þá berist
einnig misvísandi fréttir og upplýs-
ingar úr bankakerfinu. Stjórnvöld
hafi látið einföld tilmæli nægja en
ekki bein fyrirmæli til ríkisbankanna
um hvernig aðstoð skuli veitt fólki í
fjárhags- og greiðsluvanda.
Bent er á að það skapi ótta og óör-
yggi hjá heimilum landsins að búa
við stöðuga óvissu dögum og vikum
saman. ingibjorg@mbl.is
Krefjast betri
upplýsinga frá
stjórnvöldum
SVEITARSTJÓRN Skagafjarðar
krefst 1.400 mkr. aukaframlags í
Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
„Ætla má að mörg sveitarfélög
verði fyrir verulegum tekjumissi
vegna fækkunar fyrirtækja og þar
með lækkandi útsvars. Því er afar
mikilvægt að ríkisvaldið haldi áfram
að greiða aukaframlög til Jöfnunar-
sjóðs svo sveitarfélögin geti sinnt
skyldum sínum,“ segir í fréttatil-
kynningu.
Sveitarstjórn vill
aukaframlag