Morgunblaðið - 27.10.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.10.2008, Qupperneq 16
16 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008 Þeir eru ófáir sem hafa skráð sig á fésbókinni á síðastliðnum mánuðum. Þær upplýsingar sem hver og einn setur á síðu sína segja hins vegar e.t.v. meira um einstaklinginn heldur en hann gerir sér grein fyrir. Berlingske Tidende útbjó á dögunum lista yfir tíu gerðir af fésbókartýpum. 1. Hinn sjálfsánægði Það er auðvelt að líta á fésbókina sem rétta vettvanginn til að básúna eigið ágæti – fjalla um hversu frábæru lífi mað- ur lifi, eigi góða krakka og sé í flottri vinnu. Þetta er líka langstærsti hópurinn. Kostir og gallar: Það er vissulega gott að geta ritskoðað líf sitt, að geta dregið það góða fram í dagsljósið og falið það sem miður fer. Sótt- hreinsuð glansmynd er hins vegar aldrei heillandi. 2. Hinn sjálfhæðni Þetta eru Bridget Jones og Nynne raunveruleikans, því hér er fjallað um allt það sem úrskeiðis fer – sérstaklega það sem átti að vera fullkomið. Yfirleitt lifir þessi týpa góðu lífi og er með sjálfstraustið í lagi og finnst því í góðu lagi að láta aðra vita þegar henni verður á. Kostir og gallar: Mýtan um hið fullkomna líf er eyðilögð. Þessi flokkur gengur líka svolítið út frá því að maður hafi alla jafna stjórn á hlut- unum – annars hljómar maður bara mislukk- aður. 3. Fagmaðurinn Fjallar um hvað hann er að gera í vinnunni. Gefur fjölskyldu og vinum góða innsýn í hvað vinnudagurinn gengur út á. Kostir og gallar: Virkar svolítið eins og stöð- ugt endurnýjun á ferilskránni og auglýsing á kostum manns sem starfskrafts. 4. Með fingurinn á púlsinum Skrifar um veðr- ið, fréttir og atburði líðandi stundar. Oft eru þetta vinir sem hafa áhuga á svipuðum mál- efnum og láta aðra í hópnum vita af skoðunum sínum á því sem er að gerast. Kostir og gallar: Sýnir að maður er með á nót- unum og veit hvað er að gerast í henni veröld. Þessar sendingar eru hins vegar fljótar að úr- eldast og eru skemmtilegastar þegar að margir taka þátt í þeim. 5. Sá uppgefni Deilir vonbrigðum sínum og hugleiðingum með vinunum. Kostir og gallar: Það getur verið gott að fá út- rás fyrir vonbrigði sín, áhyggjur og reiði á máta sem fæst okkar geta leyft sér í daglegu lífi, en getur á sama hátt valdið vinum og fjölskyldu óþarfa áhyggjum. 6. Hinn ljóðræni/orðheppni Fésbókarsend- ingarnar eru í þessu tilfelli notaðar til skemmti- legra orðaleikja eða setningabrota sem eru til þess fallnar að vekja þá sem þau lesa til um- hugsunar. Kostir og gallar: Er til vitnis um gott vald á málinu og getur bæði glatt vinina og verið þeim hvatning í hversdeginum. Átti þeir sig hins veg- ar ekki á því um hvað málið snýst kann það að valda þeim óþarfa hugarangri. 7. Hinn pólitíski Hér er umfjöllunarefnið stjórnmál, pólitísk afstaða, frásagnir af kosn- ingabaráttu og krækjur inn á kosningasíður. Þessi flokkur er tvískiptur – annars vegar stjórnmálamenn og hins vegar kjósendur með brennandi stjórnmálaáhuga. Kostir og gallar: Sendir skilaboð sín á stærri hópa en almennt gengur og gerist. Sé hann hins vegar of duglegur við sendingarnar er hætta á að vinunum finnist þeir vera notaðir. 8. Skjallarinn Á þessum síðum hrósa fésbók- arfélagar hver öðrum, mæla með góðum sjón- varpsþáttum, tónleikum, vefsíðum og öðru slíku. Kostir og gallar: Það er gott að deila með öðr- um og gaman að láta vita af því sem vel er gert. Slóðin getur þó verið vandrötuð milli þess að vera duglegur að mæla með og virka sjálfhælin fyrir að hafa fingurinn á púlsinum. 9. Húmoristinn Margir nýta sér fésbókina til að fá útrás fyrir grínistann innra með sér og þetta getur verið hinn fullkomni vettvangur til að benda á skondnar uppákomur í þjóðfélaginu. Kostir og gallar: Þetta getur verið góð leið til að lífga upp á hversdaginn, en ekki er öruggt að allir kunni jafn vel að meta. 10. Gagnrýnandinn Þeir eru margir sem nota fésbókina til að lýsa yfir tortryggni sinni á þessu félagsneti ásamt því að vera ósparir á að lýsa göllum þess. Kostir og gallar: Það felst óneitanlega nokkur kaldhæðni í þessari meðvituðu notkun og hún fer örugglega í taugarnar aðdáendum fésbók- arinnar. annaei@mbl.is Reuters Hvaða týpa? Það má lesa ýmislegt um per- sónuleika einstaklingsins út frá þeim upplýs- ingum sem fésbókarsíða hans geymir. Hvaða fésbókartýpa ert þú? Eftir Gunnar Kristjánsson Þ að er svo margt spenn- andi að gerast hjá okk- ur,“ segir Anna Bergs- dóttir, skólastjóri Grunnskólans í Grund- arfirði. Hún segir samstarf milli skólanna á Snæfellsnesi og sunn- anverðum Vestfjörðum töluvert og nefnir sem dæmi svokallaða dreif- mennt sem m.a. felur í sér að nem- endur í Grundarfirði fá dönsku- kennslu í gegnum fjarfundarbúnað, enda dönskukennarinn búsettur á Patreksfirði. Anna segir þetta sams konar fyrirkomulag og tíðkist í nokkrum námsgreinum við Fjöl- brautaskóla Snæfellinga og þannig sé þetta undirbúningur fyrir námið og vinnubrögð þar. Verkefnum er síðan skilað í gegnum gagnvirk tölvusamskipti. Flýta fyrir sér í framhaldsnámi Anna segir gott samstarf hafa skapast milli grunnskólanna á Snæfellsnesi og Fjölbrautaskóla Snæfellinga, FSN. „Nemendur í níunda og tíunda bekk grunnskól- anna eiga þess kost að sækja áfanga í ensku og stærðfræði þar og geta verið búnir með sex til tíu einingar þar þegar þau ljúka sínu grunnskólanámi,“ segir Anna. „En áherslan er ekki eingöngu á bók- legt nám,“ segir hún því í skól- anum eru sex krakkar úr 8.-10. bekk í starfsnámi sem þau geta valið „og ég get sagt þér að þar komast færri að en vilja.“ Í starfsnáminu, sem Pétur G. Pétursson sérkennari hefur um- sjón með, eru börnin að hluta til með sínum jafnöldrum í kennslu- stundum en í öðrum fá þau einka- kennslu eins og í íslensku, ensku, stærðfræði og lífsleikni. „Síðan er mikil áhersla lögð á verklega kennslu hinna ýmsu iðngreina þar sem þau njóta sín í botn,“ segir Anna. Fleiri samstarfsverkefni Orð af orði er enn eitt sam- starfs- og þróunarverkefni grunn- skólanna á Snæfellsnesi sem bygg- ist á því að auka orðaforða og bæta lesskilning en verkefnið hófst í haust. „Ég var að fá það staðfest af bókasafninu að verkefnið er þegar farið að skila sér í auknum lestri bóka,“ segir Anna. Að sögn Önnu felst verkefnið í því að markvisst er unnið með þessa þætti í tengslum við sem flestar námsgreinar þar sem nem- endurnir þurfa sérstaklega að vinna með orðaforða og lesskiln- ing. Annað samstarfsverkefni hefur staðið yfir í nokkur ár en það er verkefnið Brúum bilið og það verk- efni byggir á samstarfi grunnskól- ans okkar og leikskólans. Anna segir um að ræða markvissan und- irbúning leikskólanema að hefja nám í grunnskóla sem byggist á vinnu leikskólakennaranna og síð- an gagnkvæmum heimsóknum milli nemenda skólanna. „Og á vor- in setjast síðan elstu leikskólanem- arnir á skólabekk í eina viku í grunnskólanum og búa sig undir það sem koma skal að hausti.“ Heilsuefling og kórastarf Nýjasta rósin í hnappagat grunnskólans er samstarf við tón- listarskólann þar sem boðið er upp á kórastarf fyrir nemendur. „Það eru byrjaðir tveir barnakórar, eldri og yngri deild, sem Tryggvi Hermannsson kennari við tónlist- arskólann og organisti á staðnum stjórnar. Við bindum vonir við að hægt verði að þróa þetta söngstarf áfram í uppákomur af ýmsum toga svo sem að sýna söngleiki og fleira í þeim dúr,“ segir Anna. „Og það nýjasta,“ segir hún er heilsuefling starfsfólksins sem verður bæði á líkamlega og andlega sviðinu og miðar að því að efla starfsandann og auka vellíðan fólks. Það verður ýmsum meðulum beitt, boðið upp á jóga, dans og gönguferðir svo eitt- hvað sé nefnt. Meðal nemendanna er líka hugað að heilsusamlegu líf- erni en á síðasta ári var fyrir til- stuðlan sjávarútvegfyrirtækisins Guðmundar Runólfssonar farið að bjóða upp á ferska ávexti í nest- istímum og í vetur er það Fisk Seafood sem býður nemendum upp á ávextina,“ segir Anna að lokum. Samstarf milli skólastiga og ólíkra skóla eflir skóla- starf á Grundarfirði að mati skólastjórans. Sam- starf og nýsköpun nær jafnt til bóklegra sem verklegra greina, þar sem krakkarnir „njóta sín í botn“ og sköp- unargáfan nýtur sín. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Ánægð Anna Bergsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Grundarfjarðar, er ánægð með samvinnu skóla á Snæfellsnesi. Í heimsókn Fyrstu bekkingar láta sér líða vel í gamla leikskólanum sínum. Á suðupunkti Í logsuðu í starfsnáminu í grunnskólanum. Samstarf Í dönskutíma með krökkum á Tálknafirði en kennarinn Ásdís Ás- geirsdóttir er á Patreksfirði. Börnin njóta sín í botn í fjölbreyttu skólastarfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.