Morgunblaðið - 27.10.2008, Síða 22

Morgunblaðið - 27.10.2008, Síða 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008 TÍÐNI brjósta- krabbameina hjá ís- lenskum konum hefur nær þrefaldast und- anfarna áratugi og á 1 af hverjum 10 von á að fá brjóstakrabbamein einhvern tíma á lífsleið- inni. Þrátt fyrir mikla fjölgun brjósta- krabbameinstilfella hafa nýlegar rannsóknir sýnt að horfur íslenskra kvenna með brjósta- krabbamein eru mjög góðar og betri en annarra. Allt að 90% kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein er á lífi 5 árum frá greiningu. Ættlægni er þekktur áhættuþátt- ur en skýrir bara lítinn hluta allra brjóstakrabbameina. Aðrar orsakir aukinnar tíðni brjósta- krabbameins eru ekki vel þekktar en þó er ljóst að vestrænn lífs- stíll hefur áhrif á áhættu á að fá brjósta- krabbamein. Í löndum þar sem lífskjör hafa batnað hefur tíðni sjúkdómsins hækkað mikið. Að hluta skýrist það af hækk- andi aldri íbúa en einn- ig hefur verið sýnt fram á að aukin líkams- þyngd, hreyfingarleysi og áfengisneysla eru sjálfstæðir áhættuþættir fyrir að fá brjósta- krabbamein. Áfengi er talið örva frumuskiptingu og æðanýmyndun í brjóstvef. Aukinn fituvefur örvar myndun kvenhormóna sem svo aftur hafa áhrif á brjóstvef. Vitað er að breytingar á kvenhormónum, yngri aldur við fyrstu blæðingar, frestun á fyrstu þungun, styttri brjóstagjöf, seinkun á tíðahvörfum og notkun kvenhormóna eykur áhættu fyrir brjóstakrabbamein verulega. Get- gátur eru um að ýmis unnin efni í umhverfinu og fæðu líki eftir kven- hormónum og hafi þannig áhrif á brjóstvef þó slíkt hafi ekki verið stað- fest með óyggjandi hætti. Góðar horfur íslenskra kvenna, sem greinast með brjóstakrabba- mein, má þakka nokkrum samverk- andi þáttum. Skipulögð leit, góð al- menn heilbrigðisþjónusta og stöðugar framfarir í greiningu og meðferð sjúkdómsins skipta þar mestu. Leit með brjóstamyndatöku er, ef vel er að staðið, bæði fljótleg og áreiðanleg rannsókn. Þegar grunur vaknar um hnút á röntgenmynd þarf þó alltaf að gera ýtarlegri rannsókn með ómskoðun og sýnatöku áður en greining er staðfest. Ný, stafræn röntgentæki eru bæði nákvæmari en áður, öruggari í úrlestri og auðvelda til muna samskipti þeirra sem að greiningu og meðferð brjósta- krabbameina koma. Æxlishnútar sem greinast við leit eru yfirleitt litlir en líkur á að æxli taki sig upp aftur eru meðal annars háðar stærð þeirra. Aðrir áhættu- þættir eru ungur aldur konunnar, gráða og tegund æxlis og hvort mein- vörp finnast í holhandareitlum. Flestar konur eru læknaðar með skurðaðgerð en skurðaðgerðir eru oft umfangsminni en áður og í sum- um tilfellum er með lýtaaðgerðum hægt að endurskapa brjóst aftur í fyrra horf. Stundum þarf að beita geislameðferð til viðbótar skurð- aðgerð en nútíma geislatækni hlífir betur heilbrigðum líffærum en áður sem aftur leiðir til minni aukaverk- ana. Lyfjameðferðir eru mjög mik- ilvægir hlutar meðferðinnar. Ef læknir metur að kona sé í hættu á að fá æxli aftur, byggt á ofangreindum áhættuþáttum, er henni boðin fram- haldsmeðferð með frumudrepandi krabbameinslyfjum og/eða and- hormónalyfjum. Slíkar lyfja- meðferðir lækna rúmlega helming þeirra kvenna sem annars fengju sjúkdóminn aftur. Ný og markviss- ari krabbameinslyf, aukin reynsla í notkun eldri lyfja og nýjungar í stuðningsmeðferðum hafa gert okk- ur kleift að lækna fleiri en áður. Af ofangreindu má lesa að vel skipulögð krabbameinsleit, góður aðgangur að vel menntuðum heil- brigðisstarfsmönnum og vel ígrund- uð innleiðing læknisfræðilegra nýj- unga eru hornsteinar áframhaldandi góðs árangurs í meðferð kvenna með brjóstakrabbamein. Best væri þó að koma í veg fyrir myndun brjóstakrabbameins með forvörnum gegn helstu einkennum vestræns neysluþjóðfélags: einhæfu fæðuvali, offitu, áfengisneyslu og hreyfing- arleysi. Helgi Hafsteinn Helgason skrifar um eðli og orsakir brjóstakrabbameins » ... þó er ljóst að vest- rænn lífsstíll hefur áhrif á áhættu á að fá brjóstakrabbamein. Helgi Hafsteinn Helgason Höfundur er lyf- og krabbameins- læknir. Stöðugar framfarir í greiningu og meðferð brjóstakrabbameina ÍSLENDINGAR teljast vera um 300.000. Það er eins og lítil borg í stærri samfélögum sem við berum okkur saman við. Þó að fámenn séum þurfum við að glíma við sömu mál- efnin og samanburð- arlöndin. Heyrnarskerðing hrjáir um 10- 15% vestrænna þjóðfélaga. Á Íslandi eru heyrnarskert börn, 0-18 ára, um 230 talsins þar sem allt er meðtalið: væg og meðal heyrnarskerðing, skerðing á öðru eyra upp í algert heyrnarleysi. Heyrnarlaus börn eru fá eða um 10% af þessum heildarhópi. Reikn- að er með því að innan við tvö heyrnarlaus börn fæðist hér á ári. Með heyrnarskimun á nýburum, sem hófst á Íslandi í tilraunaskyni fyrir hálfu öðru ári var stigið stórt framfaraskref. Margsannað er, að því fyrr sem meinið greinist og meðferð hefst því betri verður málþroskinn. Góður málþroski stuðlar að betra námsgengi og fé- lagslegum samskiptum. Flest heyrnarlaus börn eiga nú kost á kuðungsígræðsluaðgerð, ársgömul eða eldri, sem er bylting í heyrnarmálum hin síðari ár. Börn sem áður höfðu táknmál sem fyrsta mál hafa nú talmál en læra jafnframt táknmál. Sums staðar er táknmál talið óþarfi fyrir börn með kuðungsígræðslu en á Íslandi hef- ur stefnan ekki verið sú. Heyrn- arskert börn á Íslandi ganga nú flest í almenna skóla á heimaslóð. Það er því augljóst að þörf er á öflugri heyrnarfræðilegri ráðgjöf til skólanna vegna kennslu, tækni og umhverfisþátta. Nú er staðan sú að eini ráðgjafinn, sem starfað hefur undanfarin ár á grunn- skólastigi, er hættur, enginn hefur verið ráðinn í staðinn og ekki verið auglýst eftir nýjum. Hér þarf skjótar úrbætur. Sömu sögu er að segja um leikskóla- og framhalds- skólastigið. Táknmálið Táknmál er fyrsta mál heyrn- arlausra, móðurmál þeirra. Það er ánægjulegt að sjá þann mikla fjölda heyrnarlausra ungmenna, sem lokið hafa námi frá framhaldsskólum undanfarin ár. Þegar kennsla námsgreina hófst með táknmáli á grunnskólastigi og notkun túlka í fram- haldsmenntun heyrn- arlausra var unnt að komast yfir námsefnið á eðlilegum hraða. Fram til þess var mest áhersla lögð á að kenna íslenskuna í gegnum allar náms- greinar ef svo má segja, sem þýddi að kennsla hverrar námsgreinar tók langan tíma. Þetta var hugsjón þeirra tíma og mikið og óeigingjarnt starf var unnið í fullvissu um að það allra besta væri gert til að heyrnarlausir gætu lifað sem eðli- legustu lífi. Áleitin er nú hins vegar orðin spurningin um hvað verði um ís- lenska táknmálið. Með bólusetn- ingu gegn rauðum hundum, hettu- sótt og heilahimnubólgu hefur heyrnarlausum fækkað mjög. Árið 1982 voru 60-70 börn í Heyrnleys- ingjaskólanum sem síðar varð Vesturhlíðaskóli. Haustið 2002 var skólinn færður inn í Hlíðaskóla í Reykjavík sem sérsvið, Táknmáls- svið. Þar eru nú um 20 nemendur. Enginn undir fermingaraldri hefur nú táknmálið sem sitt fyrsta mál! Hvað verður um þá örfáu í okkar samfélagi sem ekki fá gagn af kuðungsígræðslu og munu hafa táknmál sem fyrsta mál? Við hverja eiga þeir að tala sitt tákn- mál? Verða til táknmálstalandi vinir? Hverjir kenna þeim allt það á táknmáli sem læra þarf utan skólans? Hverjir tala alvöru tákn- mál við ungbörnin þegar þau greinast? Til eru táknmálsnám- skeið fyrir foreldra á Samskipta- miðstöð en hverjir tala við litlu börnin á meðan foreldrarnir eru að ná færni í málinu? Sú færni kemur ekki á nokkrum nám- skeiðum. Auðugt og innihaldsríkt mál til menntunar og þroska fæst í gegnum góðar málfyrirmyndir, sem eru fullburða í málinu – inn- fæddir. Hér er því mikið í húfi fyrir okkar heyrnarlausu skjólstæðinga og ég kalla eftir viðbrögðum frá samfélagi heyrnarlausra. Hvert á að vísa litlum börnum og fjöl- skyldum þeirra til að læra tákn- mál vel? Hvað ætla heyrnarlausir sjálfir að gera til að viðhalda móðurmáli sínu? Túlkun Þegar talað er við heyrnarlausa og/eða heyrnarskerta þarf að tryggja að þeir geti notað sjónina til að „heyra“ hvað sagt er, hvort sem talað er táknmál, talmál eða skrifaður er texti. Heyrnarlausir nota sjónina til að „heyra“, heyrn- arskertir nota heyrn og sjón og báðir hópar notast við ritað mál. Sumar aðstæður í lífinu kalla á notkun túlkunar í samskiptum við þennan hóp, s.s. í skólum, hjá lækni, á foreldrafundum, nám- skeiðum o.s.frv. Heyrnarlausir nota táknmáls- túlka sem sannarlega hafa gjör- breytt menntunaraðstöðu þeirra hin síðari ár. Heyrnarskertir, sem eru margfalt stærri hópur hafa ekki átt kost á túlkun við hæfi. Það er hópurinn sem hefur tal- málið eingöngu en heyrir ekki nema hluta þess sem sagt er og á því erfitt uppdráttar í námi. Þetta fólk þarf rittúlkun, sem fer fram þannig að túlkur hraðritar á tölvu allt sem sagt er á staðnum og því varpað á skjá, ýmist stóran skjá á vegg eða á sjálfan tölvuskjáinn. Ef heyrnarskert fólk ætti að nota táknmálstúlka (í framhalds- námi t.d.), eins og ég heyri stund- um haldið fram, þyrfti það að hafa lært táknmál í mörg ár og notað það reglulega með heyrnarlausu fólki. Hvernig ætti að framkvæma það? Það er von mín að málefnum þessa sundurleita hóps á landinu öllu verði fundinn farsæll farvegur og að engin hinna margvíslegu þarfa hans gleymist þegar úr- lausnir eru ákveðnar. Bryndís Guð- mundsdóttir skrifar um stöðu táknmálsins sem tungumáls Bryndís Guðmundsdóttir »Enginn undir fermingaraldri hefur nú táknmálið sem sitt fyrsta mál! Hvað verður um þá örfáu í okkar samfélagi sem ekki fá gagn af kuðungsígræðslu og munu hafa táknmál sem fyrsta mál? Höfundur er fyrrv. heyrnleysingja- kennari og ráðgjafi vegna heyrn- arskertra barna. Heyrnarskert og heyrnarlaus börn á Íslandi UM FÁTT er annað hugsað og rætt en bankahrunið og hvernig það kemur við okkur öll. Fallið er mikið og áhrifin verða víðs vegar í þjóðfélag- inu og er því ekkert óeðlilegt að talað sé um „Nýja Ísland“. Uppgjör við fortíðina er eðlilegt og nauðsynlegt en þó er enn mikilvæg- ara að við séum með skýra sýn á framtíðina. Stjórnmálaflokkarnir hafa beðið hnekki ekki síður en bankarnir og útrásarfyrirtækin og nú þarf að stokka spilin þannig að við komum sterkari út sem þjóð. Bretadeilur Eitt af því sem menn spyrja sig nú er; hvað er verið að semja um við Bretana? Þetta er eðlileg spurning þar sem misvísandi skilaboð hafa verið um stöðuna gagnvart Bretum vegna Icesave. Nokkrir af virtustu lögfræðingum landsins hafa fjallað um málið og virðist ábyrgð ríkisins vera takmörkuð við tryggingarsjóð innlána. Kröfur Breta eru miklu meiri og engin leið fyrir íslenska ríkið að gangast við þeim með samn- ingum. Ef rétt er að um sé að ræða hundruð milljarða skuldsetningu er óvíst að jafnvel Alþingi megi sam- þykkja slíka samninga þar sem þeir myndu leggjast á ófæddar kyn- slóðir. Það verður því að túlka ábyrgð ríkisins þröngt og verja hagsmuni Íslands. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svona er komið gagnvart Bretum en í þorskastríð- unum höfðu Íslendingar fullan sigur að lokum. Á þeim krossgötum sem við erum á verðum við að lágmarka byrðarnar áður en haldið áfram nýj- an veg. Nýsköpun og uppbygging Í miklum þrengingum er oftast mest um nýsköpun og framþróun. Björk Guðmundsdóttir og Guðjón Már Guðjónsson hafa eins og margir frum- kvöðlar þurft að hafa fyrir því að ná árangri. Ekkert fæst átakalaust. Ekki einu sinni banka- kerfi. Útvegurinn og landbúnaður hafa þurft að berjast fyrir tilveru sinni og svo má lengi telja. Nú þurfa allir að leggjast á eitt til að auka nýsköpun enda skapast ný tækifæri í þessum hremmingum. Bankarnir voru farnir að soga til sín mikið af mjög hæfu starfsfólki á háum launum. Segja má að banka- útrásin hafi með þessu verið með „ruðningsáhrif“ gagnvart sprotafyr- irtækjum. Nú hefur dæmið snúist við og fjöldi hæfileikafólks þarfnast nýrra verkefna. Krónan sem áður gerði sér dælt við eyðsluklóna getur nú styrkt útflutningsgreinarnar og ferðaþjónustu. Íslendingar eru á miklum krossgötum þar sem gam- alkunnug gildi um sparnað og aðrar dyggðir koma í stað offors og óráð- síu. Ísland er ekki eina landið enda er komið að skuldadögum um heim all- an. Skuldir sem lengi virtust án gjalddaga eru nú gjaldfelldar og með þeim fara virtar bankastofnanir og heilu hagkerfin. Fjármálakerfi heimsins með sínum skuldum og skuldatryggingum eru á mörkunum að standast álagið og enginn veit með vissu hvernig fer. Ísland tók skellinn fyrst og þarf því að bregð- ast strax við. Kennslustundin er af- ar dýr og því er svo mikilvægt að við nýtum hana sem skyldi. Nýju við- miðin verða vonandi byggð á traust- ari grunni en áður. Ísland á krossgötum Eyþór Arnalds skrifar um upp- byggingu efna- hagsmála Eyþór Arnalds » Á þeim krossgötum sem við erum á verð- um við að lágmarka byrðarnar áður en hald- ið áfram nýjan veg. Höfundur er bæjarfulltrúi í Árborg. @

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.