Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008 Orð dagsins: Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk, til þess að þér af henni getið dafnað til hjálpræðis. (1Pt. 2, 2.) Vafalaust er það vel meint hjá olíu-félögunum að reyna að „hug- hreysta“ almenning með því að draga íslenska fánann að hún. En tiltækið vekur blendnar tilfinningar. „Þegar ég keyri fram hjá þessum bens- ínstöðvum rifjast nú aðallega upp hjá mér hvernig stóru olíufyrirtækin voru sammála um að féfletta almenn- ing,“ segir ein af mörgum vinkonum Víkverja. „Héldu forstjórar þeirra ekki leynifundi í Öskjuhlíðinni til að hafa samráð um verð? Og sumir þeirra neituðu öllu þó að staðreyndir um brotin lægju á borð- inu. Í þeirra sporum myndi ég nú láta sem minnst á mér bera.“ x x x Líklega verður ekki brýnt nógu oftfyrir fólki að vera á varðbergi gagnvart verðlagi í verslunum, núna þegar gengið er á fleygiferð. Víkverji heyrði konu segja frá því að hún fór í Húsasmiðjuna og keypti sér þar lít- inn skrúflykil. Hún sá að verðið sem kom upp við kassann var mun hærra en það sem staðið hafði á hillunni. En hún var með lítið barn, var að flýta sér og ákvað að standa ekki í neinu stímabraki heldur borga. Hvað ætli þeir séu annars margir sem ekki nenna eða gefa sér tíma til að fá verðið leiðrétt þegar munurinn er ekki nema nokkrir tugir króna? x x x En nóg af neikvæðninni. DavíðÞór Jónsson, grínisti og margt fleira, veltir í Fréttablaðinu fyrir sér orðavalinu þegar sumir tala um mestu hörmungar sem dunið hafi á þjóðinni. Hann segir gamla frænku sína, sem nú er látin, hafa sagt sér frá 1918, frostavetrinum og spænsku veikinni þegar 500 manns dóu. Henni hefði vafalaust þótt lítið til þrenginga okkar núna koma. Engin lík, engar fjöldagrafir. Þörf áminning, við eigum ekki að hundsa þjáningar þeirra sem verða illa úti núna - en heldur ekki ýkja þær. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 sjá eftir, 4 hnikar til, 7 hraðans, 8 blauðum, 9 beita, 11 deila, 13 lagleg, 14 árs- tíð, 15 kná, 17 ókyrrð, 20 agnúi, 22 lítið herbergi, 23 urg, 24 sefast, 25 vægar. Lóðrétt | 1 skass, 2 langt op, 3 kvenfugl, 4 þyrnir, 5 undirokar, 6 plássið, 10 mikið af einhverju, 12 ílát, 13 léttir, 15 fjáður, 16 samtala, 18 vind- hviðan, 19 sér eftir, 20 höfuðfat, 21 síki. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 lúsarlegt, 8 lepps, 9 nefna, 10 ann, 11 rænan, 13 augað, 15 hólar, 18 slasa, 21 ell, 22 riðli, 23 afann, 24 hafurtask. Lóðrétt: 2 úlpan, 3 ausan, 4 linna, 5 göfug, 6 flór, 7 garð, 12 aka, 14 ull, 15 harm, 16 liðna, 17 reiðu, 18 slakt, 19 arans, 20 Anna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Spilarinn Kantar. Norður ♠DG84 ♥G975 ♦42 ♣D63 Vestur Austur ♠10975 ♠K2 ♥862 ♥3 ♦G76 ♦ÁKD983 ♣1087 ♣KG93 Suður ♠Á63 ♥ÁKD104 ♦105 ♣Á42 Suður spilar 4♥. Flest spilin sem kennd eru við Eddie Kantar eru úr einhverri bóka hans þar sem hann greinir gjarnan frá afrekum annarra spilara. Ekki þetta. Hér var Kantar sjálfur við stýrið, sagnhafi í 4♥, eftir að austur hafði tvímeldað tíg- ul. Vestur kom út í lit félaga síns og austur tók þar tvo slagi, en skipti síðan yfir í tromp. Vandi sagnhafa er mikill, tapslagur á spaða blasir við og einn til tveir í laufi. Hvað er til ráða? Kantar leysti málið þannig: Eftir af- trompun lagði hann niður ♠Á og spil- aði svo litlum spaða frá báðum hönd- um! Sem sagt, gaf sér að austur ætti ♠Kx, enda engin von í annarri legu. Réttlætið sigraði, austur átti kónginn annan og laufkónginn líka. Austur spil- aði laufi, en Kantar renndi því á drottninguna og henti svo laufi í fríspaða. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þig dreymir um að fara í frí eða fá nægan tíma til að taka vissa ákvörðun. En þetta er bara flótti frá því sem er aðkall- andi núna. Viðurkenndu það. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þér finnst þú vera að missa af viss- um lærdómi eða að það séu gloppur í vitn- eskju þinni. Reyndin er sú að þú ert frum- legri og einstakari því þú ert ótamin(n). (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það geta allir orðið heppnir og unnið, en það þarf einhvern sérstakan til að vita hvað gera skal við vinninginn. Þú ætlar að breyta heiminum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert til í að borga einhverjum til að vinna verkið fyrir þig, en rödd í höfðinu segir að þú eigir ekki að gera það. Það tæki jafnlangan tíma að útskýra það. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Himintunglin blessa þig í dag með því að draga úr athyglissýki þinni. Notaðu tækifærið og vertu ein(n) í friði með góðri bók – og nokkrum súkkulaðibitum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú finnur á þér hvenær best er að vera kærulaus. Þú sérð líka fyndna hluti sem margir missa af. Þú og sporðdreki skemmtið ykkur stórkostlega. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er fátt áhugaverðara en það sem ástarviðfangið þitt gæti verið að hugsa. Róleg. Það er áreiðanlega 10 sinnum minna áhugavert en þú heldur. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú vilt alltaf vita hver staða þín er á vinnustað, heimili og í vinahóp. Þú mátt vera viss um að hún er góð – og verður enn betri ef þú slakar á. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Fólki í kringum þig finnst það hljóta að tapa einhverju ef það segir sann- leikann. Þú ert rétta manneskjan til að benda því á kosti þess. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þegar þú heldur þig hafa fundið bestu lausnina á peningavandanum, birt- ist einhver með nýjar hugmyndir. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Ruglingur er eðlilegur hluti lærdómsferlisins. Haltu áfram þótt þú skiljir ekki það sem þú vilt helst vita. Síð- ar verður þetta allt sem opin bók. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er tilraun í gangi – ekki op- inber þó. Kannski að vinur þinn prófi hvernig hægt sé að fara í taugarnar á þér. Sama hvað er – mundu að vera þú. Stjörnuspá Holiday Mathis 27. október 1674 Hallgrímur Pét- ursson prestur og skáld lést, 60 ára að aldri. Hann var eitt helsta trúar- skáld Íslendinga. Passíusálmar hans hafa komið út oftar en sextíu sinnum, fyrst 1666. 27. október 1923 Borgaraflokkurinn, hinn fyrri, hlaut hreinan meirihluta at- kvæða, 53,6%, í Alþingiskosn- ingum og 25 þingmenn af 42. Meðal forystumanna flokksins voru Jón Magnússon og Jón Þorláksson. Í næstu kosningum skiptust stuðningsmennirnir á Íhaldsflokkinn og Frjálslynda flokkinn, sem síðar mynduðu Sjálfstæðisflokkinn. 27. október 1934 Stórtjón varð norðanlands í ofsaveðri. Eitt skip fórst og bryggjur og hús skemmdust, allt frá Hvammstanga til Þórs- hafnar. Sjór flæddi víða á land, meðal annars á Siglufirði. Á sumum götum bæjarins var mittisdjúpt vatn. 27. október 1936 Minnismerki um Niels R. Fin- sen (f. 1860, d. 1904) var af- hjúpað í Menntaskólanum í Reykjavík þar sem hann var við nám og lauk stúdentsprófi í júlí 1882. Finsen var brautryðj- andi í ljóslækningum og hlaut Nóbelsverðlaun í læknisfræði árið 1903. 27. október 1955 Sænska akademían veitti Hall- dóri Laxness rithöfundi bók- menntaverðlaun Nóbels, fyrst- um Íslendinga, „fyrir að endurnýja hina miklu íslensku frásagnarlist“. Hann veitti verðlaununum viðtöku í Stokk- hólmi 10. desember. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „ÉG var nú að hugsa um að láta þetta bara ganga rólega yfir,“ segir Jón Hjörleifur Jónsson, fyrrver- andi skólastjóri. Fyrir 5 árum þegar Jón varð átt- ræður tóku börnin hans fjögur af honum ráðin og héldu honum „mestu afmælishátíð sem þekkst hef- ur hér á landi og þótt víðar væri leitað“. Slegið var upp allsherjar tónlistarveislu í Lang- holtskirkju og segist Jón enn lifa á því afmæli og því verði í mesta lagi haldið upp á daginn í dag með jólaköku í hæverskum stíl. Sönglistin hefur fylgt Jóni alla tíð og var hann alltaf syngjandi sem barn svo eldri systrum hans fannst nóg um og kölluðu hann „Jón söng“. Hann hefur stjórnað ófáum kórum, þ. á m. skólakór Hlíðardalsskóla, Karlakór Akureyrar og kór eftirlaunakennara. „Síðan lá leið okkar til Afríku og þar stjórnaði ég stærsta kórnum, 150 manna kór innfæddra.“ Jón hefur verið talsvert á faraldsfæti, er m.a. nýkominn heim ásamt konu sinni Sólveigu Jónsson eftir ársdvöl í Bandaríkjunum hjá börnum þeirra hjóna. Jón fylgist lítið með eigin ald- urstölu þótt hárum hafi fækkað á höfðinu, en um þá þróun setti hann einmitt saman eftirfarandi vísu: Það var ég hafði hár og skegg / um höfuð loðið,/ en nú er hausinn eins og egg / illa soðið. una@mbl.is Jón Hjörleifur Jónsson er 85 ára í dag Jólakaka í hæverskum stíl Sudoku Frumstig 6 7 5 8 1 2 4 3 9 5 8 9 6 3 2 8 6 8 6 1 2 7 6 4 1 9 4 5 7 4 7 8 8 1 6 9 6 4 2 2 6 9 4 5 6 4 8 4 8 9 5 6 7 1 4 8 1 6 9 7 4 5 2 6 7 4 5 4 6 3 8 4 2 6 7 9 3 6 7 7 8 9 5 8 3 2 7 5 2 9 5 7 5 3 9 1 8 2 9 3 7 6 5 4 1 4 6 7 5 1 9 2 8 3 3 5 1 4 2 8 7 6 9 2 1 4 6 9 7 8 3 5 5 7 8 1 3 4 6 9 2 9 3 6 8 5 2 4 1 7 6 9 5 2 4 1 3 7 8 1 4 2 7 8 3 9 5 6 7 8 3 9 6 5 1 2 4 2 1 6 5 9 4 3 8 7 5 9 8 6 7 3 2 1 4 4 7 3 1 2 8 6 5 9 7 4 2 8 1 5 9 6 3 9 3 5 7 6 2 8 4 1 6 8 1 3 4 9 7 2 5 1 2 9 4 3 6 5 7 8 8 6 7 9 5 1 4 3 2 3 5 4 2 8 7 1 9 6 5 4 2 9 1 7 8 3 6 9 1 3 8 6 2 4 7 5 8 7 6 5 4 3 9 1 2 6 8 1 4 7 5 2 9 3 2 9 7 6 3 8 5 4 1 4 3 5 1 2 9 7 6 8 1 2 9 3 5 4 6 8 7 7 6 8 2 9 1 3 5 4 3 5 4 7 8 6 1 2 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. dagbók Í dag er mánudagur 27. október, 301. dagur ársins 2008 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 e5 4. Bc4 Be7 5. d3 d6 6. Rd2 Bg5 7. Rf1 Rh6 8. Rg3 0-0 9. 0-0 Kh8 10. f4 Bg4 11. De1 Bh4 12. fxe5 Rd4 13. Bxh6 gxh6 14. Dd2 Bg5 15. Df2 dxe5 16. Rf5 Hc8 17. a4 Hc6 18. Rd5 Bxf5 19. exf5 Hd6 20. c3 Rc6 21. Dxc5 b6 22. Da3 Hg8 23. Da2 h5 24. Hae1 f6 25. b4 Hg7 26. He4 Hgd7 27. Bb5 h4 28. c4 Hg7 29. Bxc6 Hxc6 30. De2 Hc8 31. d4 exd4 32. Hxd4 De8 33. De6 Hd8 34. He1 Dxa4 Staðan kom upp í annarri umferð þýsku deildarkeppninnar fyrir skömmu. Stórmeistarinn Sergey Fedorchuk (2.603) frá Úkraínu hafði hvítt gegn of- urstórmeistaranum Alexei Shirov (2.726) frá Spáni. 35. Rxb6! og svartur gafst upp. Þýska deildarkeppnin fer þannig fram að tefldar eru tvær skákir á nokkrum helgum yfir vetrarmánuðina. Keppnin hefst í október og lýkur í apríl. Hvítur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.