Skinfaxi - 01.02.1927, Blaðsíða 1
Mynd þessa hefir teiknað Guðmundur kennari frá
Mosdal og gefið Skinfaxa liana. Skinfaxi þakkar gjöfina
í nal'ni allra ungmennafélaga.
Fornsagnir al' hugmyndum ásatrúarmanna um Skin-
faxa er alkunnar. Listamaðurinn hefir haft sýnir þess-
ar i huga er liann gerði mynd sina.
Þjóðar böl.
þ’egar Alexander hinn mikli hafði unnið Grilckland,
keptust skáld, fræðimenn og spekingar um að sýna
honum lotningu. J?ó var þar einn meðal vitringanna,
sem ekki vildi heiðra herkonunginn.
Alexander gekk þá á fund lians, og spurði hvers hann
þarfnaðist, en spekingurinn svaraði:
„J?css eins að þú vikir þér til hliðar svo sólin geti
skinið á mig.“
J?essi maður lial'ði ekki skap til að hylla ómensku
og þýlyndi ]?jóðar sinnar. Hann vildi ekki kyssa vönd
erlendrar kúgunar. Eflaust hefir hann minst hinna
frægu alda, þá er Grikkir skipuðu öndvegi allra þjóða.