Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1927, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.02.1927, Blaðsíða 18
18 SKINFAXI fundum þessum og áhugi mikill f.yrir að þeir ekki leggist niður. Yorið 1924 réðst félagsstjórnin i að bjóða hingað 5 norskum ungmennafélögum er voru gestir íslenskra ungmennafélaga frá þvi þeir stigu á land og þar til er þeir aflur stigu á skip til heimferðar. Komu þeir hing- að 17. júni og dvöldust hér til 13. júlí. Ferðuðust þeir víða um Borgarfjörð, til pingvalla, Gullfoss og austur i Fljótshlíð. Gekk ferð þeirra hið besta og rómuðu þeir mjög í norskum blöðum þær viðtökur er þeir livar- vetna fengu og gestrisni íslendinga. Ber að þakka félög- unum í liéraðssambandi Borgarfjarðar og héraðssam- bandinu Skarphéðinn ekki síður en U. M. S. K. starf þeirra, fyrirhöfn og ágætan undirbúning, svo að l'erð þessi kæmi gestunum að sem mestum notum og að þeir færu með sem bestar endurminningar frá hverjum við- komustað. peir voru á samfundi U. M. S. K. á Akra- nesi, á íþróttamóti Borgfirðinga og á samfundi, sem Skarphéðinn liélt í prastaskögi. Nii iiafa norsku fé- lögin boðið okkur að senda 5 félaga lil Noregs með sömu kjörum, en af ýmsum ástæðum hefir enn ekki orðið af þeirri för. Kostnaður varð allmikill við heim- boð þetta, sem við var að biiast, eða um kr. 1200.00 fyr- ir U. M. S. K. Til að afla þessa fjár héldum við liluta- veltu vorið sem þeir komu, nokkuð félcst inn á sam- komum, sem haldnar voru í sambandi við komu þeirra, en mismuninum liafa „Farfuglar“ aðstoðað okkur við að ná inn, með því að þeir liafa síðastliðin tvö ár geng- ist fyrir skemtunum fyrir ungmennafélaga hér í bæn- um, „Gestamótum“, sem svo eru nefnd. Hafa „Farfugl- ar“ undirbúið skemtanir þessar og lagt til þeirra aðal- skemtiatriðin, svo sem upplestur, kórsöng (Iblandað kór og karlakór), einsöngva, sýnt sjónleiki o. fl. Er tekjuhalli þessi nú að fullu greiddur án þess nokkuð af honum væri greitt af sjóði héraðssambandsins, Félagslíf er mikið í félögunum. Samkvæmt síðustu

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.