Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1927, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.02.1927, Blaðsíða 5
SKINFAXI is að þau séu bragðgóð og seinvirk, þau eru með öðrum orðum ginnandi og seindrepandi. pað eru eiginleikar, sem verstu fjendur hafa oft notað á fórnardýr sín. Enda gengur spönsku vínunum furðu vel að liertaka fólkið, einkum æskulýð kaupstaðanna, má heita það gildi jafnt um konur sem karla. Mest kveður að spill- ingunni i höfuðstaðnum. paðan berst hún i allar áttir svo langt sem greiðfærir vegir ná. Má heita að í ná- grenni Reykjavíkur sé varla hægt að halda mannfundi né opinherar samkomur fyrir óvætti þessum. Skeiðaréttir eru orðnar frægar um alt land fvrir öl- æði Reykjavíkurskrilsins, sem heimsækir þær, og líkt má segja um fleiri samkomustaði. pað er varla hægt fyrir ungmennarélög að efna lil skemtana í nánd við Reykjavík, því druknir kaupstaðagestir spilla þeim svo 1» jög. Siðasta íþróttamótið er haldið var við pjórsárbrú sannar þetta. pangað komu hílar með mörg hundruð manna frá Reykjavik, Hafnarfirði og fleiri kaupstöð- um. Leit helst lit fyrir að sumt af fólki þessu hefði ekki átt annað erindi á mótið en drekka, þvi stórir hópar af ölvuðum lýð þvældust alt í kringum leikvöllinn seinni hluta dagsins og langt fram á nótt. Ölæðisópin frá fólki þessu kváðu við úr ýmsum áttum jafnvel í byrjun sam- komunnar, meðan séra Magnús kennaraskólastjóri var að halda hina ágætu ræðu sina. Mun þá ýmsum hafa fundist hryggilegt að liugsa um siðspilling þjóðarinnar, og þótt sem drykkjuskril hennar væri trúandi til að ó- virða hverja hátíðisstund, hversu helg sem hún væri. Munu nú flestir ungmennafélagar Suðurlands á eitt sáttir um að íþróttamót sé óhafandi við pjórsárhrú, nema því að eins að Iiægt væri að reka vínneytendur af höndum sér, en margt veldur því að það mun reynast torsótt. Stjórn ungm.sam'handsins Skarphéðinn hefir lagt kapp á að verja mótið fyrir drykkjuskap, en stjórn þessi hefir að eins ráðið yfir leikvelli félaganna, getur

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.