Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1927, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.02.1927, Blaðsíða 29
SKINFAXI 29 að ekki verður í honum synt nema heitustu mánuði ársins, og þó ekki á þeirn tíma, nema af þeim, sem eru all harðgerðir. En í þess stað hefir náttúran lagt þjóðinni til hinar heitu laugar. Og nú er áhuginn að vakna til að notfæra sér þessi náttúrugæði. ísfirðingar eru búnir að gera sér góða laug til sumarkenslu á Reykjanesi. Ungmennafélagið í Svarf- aðardal er búið að ákveða að'byggja yfirbygða sund- laug úr steinsteypu, þar sem heitar laugar koma upp í hlíðinni nokkuð innan við Dalvík. pingeyingar eru búnir að gera yfirbygða sundlaug áfasta við héraðs- skólann á Laugum í Reykjadal. Heita vatnið ofan úr fjallshíðinni er leitt í miðstöð hússins og þaðan streym- ir það út i sundlaugina. Skólafólkið og heimamenn, sem eru 70—80, synda þarna daglega allan veturinn, þó að frost og hriðar sé úti. Allir sem i skólann koma læra að synda, og allir dást að sundlauginni og telja liana ómetanlegan dýrgrip fyrir skólann og liéraðið. 1 Reykjavík er sundhallarmál líka á dagskrá. Talað er um að hafa þar þrjár sundlaugar yfirbygðar, hverja undir séstöku þaki. I tveim á að vera vatn úr laugun- um. Önnur til kenslu, hin til æfinga fyrir íþróttaménn. Hin þriðja á að vera með sjó-vatni, er hitað sé nokkuð með laugavatni. Hún á að vera til heilsubóta þeim, sem betra hafa af böðum i sjó en fersku vatni. Iþróttamenn bæjarins ætla að þessi sundhöll verði komin upp fyrir 1930. í miðju héraði ykkar er Hvitárbakkaskólinn. Hann er vel í sveit settur. Mikið er búið að gera af hálfu ein- stakra manna, liéraðinu og landssjóði, til þess að Hvít- árbakki geti verið myndarleg uppeldisstofnun fyrir Borgfirðinga og Mýramenn. En eitt skilyrði vantar á Hvítárbakka. par er enginn jarðhiti, og þar eru ekld heppileg náttúruskilyrði til að ^efa sund. En úr þessu má bæta. Alllieit laug er í landi annarar

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.