Skinfaxi - 01.02.1927, Side 2
2
SKINFAXI
Hann hefir verið stoltur af stjörnum þeim er feður hans
skópu með listum sinum, vísindum, skáldskap og öðr-
um fögrum mentum, en þó framar öllu öðru með þrek-
lyndi og þjóðhollustu. Hann liefir sjeð stjörnur þessar i
anda og fundið til þess með aðdáun og lotningu að þær
myndu lýsa þjóðunum óra aldur.
En hann hefir líka horft hryggur á samtíðina, sem
fótum tróð feðranna verk og glataði sjálfstæði sínu.
]?ar hefir hann séð skugga þá, sem byrgðu hamingju-
sól ættjarðar lians.
Margir munu telja að íslensku þjóðinni sé þess lítil
þörf að minnast hinna fornu og frægu orða gríska spek-
ingsins, sem svo mjög þráði ljósið. ]?ess sé lítil þörf
vegna þess, að við höfum enga erlenda kúgun við að
stríða; við séurn sjálfstæðir og hyllum enga erlenda
herkonunga, en þessu er í raun og veru öðruvísi varið.
Néi er það kiigun áfengis, sem meðal margs annars
ills herjar þetta land, og þeir eru margir, sem lúta á-
fengisgoðinu og keppast um að sýna því lotningu.
Margar aldir var þjóðin háð oki Bakkusar. Hann
rændi fjölmarga viti og heilsu, eyddi fé þeirra, friði
og ánægju, og spilti lífsþrótti kynslóðanna um langan
aldur. Er það trú margra, að áfengisbölið hafi skaðað
þjóðirnar meir en styrjaldir og drepsóttir. petta vita
allir og viðurkenna nema þeir, sem eru svo djúpt fallnir,
að þeir telja sér skylt að hæla því, sem hefir leikið þá
verst. Enda rak að því að ýmsir mætir menn tóku að
kenna lýðnum um skaðsemi áfengis, þeir sýndu með
rökum að það var hinn mesti vágeslur, sem hverjum
dugandi manni her að varast. Margir skildu, að umbóta-
mennirnir ræddu um satt mál og nauðsynlegt, því fjölg-
aði þeim óðum er drógu taum þeirra. ]?ó var baráttan
bæði liörð og löng og stóð um tugi ára, enda varð sigur
bindindismanna og bannvina ótrúlega glæsilegur. ]?að
mátti heita að um skeið fengi þjóðin rótgróna andstygð
gegn áfengi. Flestir skömmuðust sín fyrir að láta sjá