Skinfaxi - 01.02.1927, Side 8
8
SKINíAXI
og vandaðri veggmynd úr skóginum (ljósmynd). Verð-
ur happdrætti um myndina innan U. M. F. í., til ágóða
fyrir skóginn. Formönnum ungmennafélaga verða
sendir miðar til sölu meðal félaga sinna. Vona eg að
þessu verði vel tekið.
pá hefi eg í hyggju að gefa út vönduð bréfspjöld með
prýðilegum myndum af prastaskógi. Vil eg slá með
þvi tvær flugur i einu liöggi: Auka þekking á skógin-
um og afla honum nokkurra tekna. Bréfspjöldin mun
eg senda stjórnum U. M. F. til útsölu.
peim ungmennafélögum, sem eignast vilja slækkað-
ar ljósmyndir úr prastaskógi, gefst kostur á að fá
18x24 cm. mynd fyrir kr. 7.50 og % arkar mynd fyrir
15 kr. Eg afgreiði pantanir, gegn fyrirframgreiðslu
eða póstkröfu. — Ef ágóði kann að verða af slíkri
myndasölu, rennur hann til skógarins.
Eyrarbakka, 15. nóv. l!)2(i.
Aðaisteinn Sigmundsson.
Esperanto.
2. Um alheimsmál.
Við erum fámenn þjóð, íslendingar. pað her ekki
mikið á okkur í heiminum. Aðrar þjóðir eru ekki upp
á okkur komnar. Hitt er annað mál, þótt þær liafi
margvísleg not af okkur. En við erum ekki sjálfum
okkur nógir. Við þurfum margs þess, sem land okkar
megnar ekki að veita. Auðvitað mætti nota gæði þess
betur en gert er. En það myndi samt ekki nægja. Við
hljótum því jafnan að hafa mikil skifti við aðrar þjóð-
ir. Vitanlega er þeim líka hagur að skiftunum. En svo
er að sjá, sem nauðsynin &é öllu meiri okkar megin.