Skinfaxi - 01.02.1927, Side 15
SKINFAXI
15
því miður, svo um fleiri mál. Eg fæ heldur ekki skilið
hvernig stjórnin hefir fengið þennan sinn slcilning út
úr bréfi Velvakanda, enda hefi eg ekki orðið hans var
annars staðar hjá fullskýrum fclögum. Kann eg þvi illa
slíkri framkomu í garð þeirra félaga, sem hafa fullan
vilja og viðleitni til að vinna til heilla og hagsmuna
fyrir alla félagsbeildina, og er það hvorttveggja að það
spáir ekki fögrn um framtíðina, né hvetur félögin til
að standa á verði um þau mál, er frekast snerta félags-
skapinn sjálfan og þjóðfélagið í heild sinni, því ef u n g-
mennafélagar virða eleki s í n e i g i n 1 ö g,
hversu munu þeir þá virða lög lands og þjóðar. En virð-
ing ungmennafélaganna — og þá ekki sist U. M. F. Vel-
vakandi — er mér of viðkvæmt mál, til þess að eg geti
séð henni misboðið, án þess að bafast nokkuð að til
varnar.
Vínguðinn Bakkus á „elcki samleið með æskunni, án
þess að skaði.“ petta er satt. J?ess vegna kann eg því illa
að sjá íslenska ungmennafélaga teyma Baldeus á eftir
sér og stelast svo til að stinga honum inn á sig
þegar tækifæri gefst, og gjalda drengskap sinn fyrir.
Virðist mér því, sem nú sé betra að tala minna, en
f r a m k v æ m a meira, og það af feslu nokkurri, því
vetlingatökin sjást víða og þykja þau þó jafnan vafa-
söm. Vil eg því spyrja, Iivort ekki sé kominn tími til a ð
talca af sér vetlingana?
Guðbjöm Guðmundsson.
form. U. M. F. Velvakandi.
Frá U. M. S. K.
Ungmennasamband Kjalarnesþings (U. M. S. K.) er
stofnað 19. nóv. 1922 af U. M. F. Afturelding í Mos-
fellssveit, U. M. F. Drengur í Kjós, U. M. F. Miðnesinga