Skinfaxi - 01.02.1927, Page 19
SKINFAXI
19
skýrslum hafa verið haldnir fyrra ár (1925) 62 fundir
og fluttir að tilhlutun félaganna 13 fyrirlestrar. Öll fé-
lögin hafa skrifuð blöð og liafa komið af þeim sam-
lals 34 blöð. Er þess að gæta hér, að U. M. F. Velvak-
andi var stofnað í maí þetta ár með aðeins, 18 félögum,
en U. M. F. Reykjavíkur var hætt störfum, svo allar
þessar tölur hafa áður verið hærri og verða það einnig
strax næsta ár.
U. M. F. Akraness hefir nú um nokkur ár haldið nám-
skeið í ýmsum heimilisiðnaði. I fyrra hélt það nám-
skeið i bastiðnaði og sóttu það um 30 nemendur. það
gekst fyrir tveim skemtunum til styrktar bágstöddum,
jólaskemtun fyrir börn þorpsins og hélt hlutaveltu til
ágóða fyrir leikfimishús. Félagið starfrækir bókasafn
hreppsins og á það nú 700 bindi. Fastur söngflokkur
(blandað kór) starfar altaf undir stjórn eins af félög-
unum. Að tilhlutun félagsins voru haldnir 9 fyrirlestr-
fyrir almenning, allir alþýðlegs og fræðandi efnis.
Félagið á stórt og myndarlegt samkomuhús, hálft, á
móti Fiskifélagsdeildinni þar.
U. M. F. Miðnesinga í Sandgerði er ungt félag, stofn-
að 1921. Eigi að síður liefir það eftir atvikum verið
mjög duglegt og framkvæmdamikið. )?að hefir gefið
yfir 100 dagsverk til vegagerðar fyrir hreppinn og auk
þess lánað honum 400 kr. til vegarins. I fyrra tók það
allstórt land á leigu, sem það ætlar að rækta á næstu
árum. Til að afla fjár til þessa og annara framkvæmda
sinna hefir það sýnt sjónleiki á vertíðinni og einnig haft
lóð, sem ýmsir formenn hafa tekið af félaginu til skiftis
i róðra. Hafa félagarnir svo sjálfir verkað þann fisk,
sem á lóðina hefir fengist, og selt. Hefir þetta veitt fé-
laginu stundum nokkrar tekjur. Fyrsta árið, sem félagið
var í sambandinu, gaf það 100 krónur til prasíaskógar,
og náði það þeim peningum inn með bögglauppboðum
á fundum sinum. Sýnir þelta ljóslega live góður vilji
má mikils og mættu fleiri félög feta í fótspor þess og