Skinfaxi - 01.02.1927, Qupperneq 32
32
SKINFAXI
erfiða, og allra síst nokkuð að gcra í höndum sér. pað
hjálpaði og til, að fólk fór að flytjast úr sveitum til
kaupstaða og sjávarþorpa, svo að miklu mannfærra
varð í sveitum en áður. — En það sem vafalaust liefir
orðið heimaiðjunni hér á landi að mestum hnekki, er
skemdur hugsunarháttur og skortur dómgrcindar á
gildi heimaiðjunnar samanhorið við gæði ýmsra að-
fenginna hluta. pessi vanhugsaða nýungagirni manna
og fýsn eftir einhverju aðfengnu, kom þeim oft til að
kasta frá sér og nota að engu það, sem heima varð unn-
ið og stundum var jafnvel betur við hæfi. Frh.
Guðm. frá Mosdal.
Námskeið.
íþróttanámskeið hefir verið haldið hér í Reykjavík
nú í vetur, frá 1. olct. til síðasta febr. íþróttasamband
fslands og U. M. F. í. liafa gengist fyrir námskeiðinu
og kostað það. Aðalkennari námskeiðsins er Jón por-
steinsson, skólastjóri Mullersskólans, og margir aðrir
af lielstu iþróttamönnum bæjarins kenna á námskeið-
inu. — Iíent hefir verið: sund, ísl. glíma, einmennings-
íþróttir, knattspyrna, þjóðdansar, íþróttaleikir o. fl.
íþróttir. 29 menn eru stöðugir nemendur námskeiðsins,
auk þess hafa nokkrir menn stundað þar nám um lengri
eða skemri tíma. Nær því öll héruð eiga einn eða fleiri
nemendur á námskeiðinu, enda er tilgangurinn með þvi
einkum sá, að ungmennafélög og iþróttafélög um land
alt geti átt kost á hæfum íþróttakennurum. Áhugi þjóð-
arinnar fer vaxandi, sem betur fer, og þúsund ára þjóð-
hátíðin rekur eftir. Öllum ætti að vera það hið mesta
áhugamál, að iþróttaflokkur yrði þjóðinni til sóma á
afmælishátíðinni.
FÉLAGSMtENTSMIÐJAN