Skinfaxi - 01.12.1942, Blaðsíða 32
80
SKINFAXI
skilja tilgang- hvers atriðis og tileinka sér hvert skref,
:grip og viðbragð rétt.
1. Byrjaðu á því að temja þér grip fingranna um
vafninginn.
2. Æfðu að fella spjótið niður í seilstöðuna. a) Láttu
fyrst félaga þinn standa til hliðar við þig og halda
báðum höndum um spjótið sinn hvoru megin vi?
grip þitt um vafninginn. Hann stjórnar spjótinu
fyrst; b) siðan þegar þér er orðin töm færslan
heldur liann laust um spjótið og lætur þig færa
það, en gætir þess að spjótið viki ekki út frá réttri
stefnu. Félagi þinn verður að hafa nánar gætur á
snúningi handarinnar. Mundu að liendin snýst út
á við í færslunni og í fullri seilstöðu snýr lófinn
(fingumir) niður.
:3. Þá æfir þú framdráttinn með félaga þínum. Stattu
í kaststöðunni og seilstu með spjótið aftur. Félagi
þinn grípur um enda þess.
Þú líkir svo eftir kasthreyfingunni, vindur mjöðm-
ina fram, réttir úr hnénu og snýrð þvi inn á við.
Færð brjóstið þvert fram og öxlina upp. Nú snýrð
þú liendinni inn á við (lófann upp) og dregur
spjótið að þér yfir öxlina með olnbogann á undan.
Félagi þinn heldur laust í spjótið en fylgir því
eftir í drætti þess fram yfir öxlina. Eins má æfa
þessar hreyfingar spjótlaust. Þá tekur félagi þinn
um fingur þér og veitir lianddrættinum fram yfir
öxlina hæfilegt viðnám. Um leið og hann atliugar
hendina og færslu armsins fram á við, verður
hann að hafa gát á mjöðm, hné, fettu baksins og
að brjóstið viti beint fram áður en færsla arms-
ins byrjar.
•4. Undirbúningsskrefin æfir þú fyrst spjótlaust.
a) Fyrst aðeins skrefin, en þegar þau em töm,
b) þá byrjar þú að æfa þig um leið í að fella kast-