Skinfaxi - 01.12.1942, Qupperneq 33
SKINFAXI
81
arminn og snúa liendinni. c) Markaðu strik i
völlinn. Gakktu að strikinu og er vinstri fótur
nemur við það byrjar þú að telja og segir einn,
og er sá hægri nemur við jörðu telur þú tveir og
er sá vinstri lýkur öðru skrefinu telur þú þrir
og lyftir hægra hnénu hátt um leið og þú snýrð
því út, svo að fóturinn stígur þvert á jörðu og
svo að lokum teygir þú fram vinstri fótinn og
þá er kaststöðunni náð.
Fyrst gengur þú. Síðan hleypur þú liægt, en eyk-
ur liraðann eftir því, sem leiknin vex.
Æfðu þetta ekki með spjóti fyrr en þér eru öll
skrefin og viðbrögðin i að fella spjótið vel töm.
Æfðu þig að kasta smá steinum. Þetta getur þú
æft daglega t. d. á göngu úti á viðavangi og svo
inni hjá þér. Æfðu þig sérstaklega i að Iilaupa
með spjótið, án þess að taka undirbúningsskref-
in eða að fella það. d) Þegar spjótburðurinn er
orðinn tamur, getur þú markað þverstrikin eins og
3. mynd C sýnir. (Færðu þverstrik I um eitt skref
framar).
5. Þegar þú hefir æft þig vel i að fella spjótið og snúa
hendinni og færa hana fram yfir öxlina, byrjar þú
að æfa þig i að kasta spjótinu úr kaststöðunni
án atrennu. Seilstu langt aftur og teygðu vinstri
fótinn langt fram. Vertu elcki að rembast við að
kasta langt, en einbeittu huganum að því að gera
allt rétt.
Hafðu einhvern hjá þér, til þess að finna að og
athuga óviss atriði.
6. Þegar öll þessi atriði liafa verið vel æfð, samfara
ýmsurn leikfimiæfingum, til þess að gera axlirn-
ar liðugri og mjaðmirnar lausari, seturðu atriðin
saman og hyrjar að æfa kastið i heild. Farðu gæti-
6