Skinfaxi - 01.12.1942, Blaðsíða 37
SKINFAXI
85
ckki, og vöðvar hans litra af afli, sem þú þekkir ekki til hlítar.
Hvað vill þetta stórkostlega afl? Mun hnefinn mikli krepp-
ast og kremja þig í sundur? Eða er hann að skýla þér, vernda
þig og varðveita? Er harni að hlúa að þvi, sem lifir, •—- þvi
sem er viðkvæmt og veikt? Kíltu í kringum þig, og þá mætir
auga þínu önnur opinberun þeirra kyngikrafta, sem hér eru
að verki. Sjáðu gróðurinn, sem þessi ógnarfjöll geyma? Upp
eftir öllum hlíðum, jafnvel upp á suma af hæstu hnúkun-
um, eru breiður sígrænna skóga. Það eru barrskógar. Gróð-
urinn, sem er að sínu leyti eins mikilfenglegur og fjöllin
sjálf, skapar hlýleik, sem vegur nokkuð upp á móti hinni
köldu tign grjótsins. í vesturhlíðum fjallanna naut meiri vara
og loftslagið var mildara. Þar voru skógabreiður, sem mér
var sagt að væru að jafnaði 250 feta háar. Það er ekki sízl
hinn mikilfenglegi skógargróður, sem gerir Klettafjöllin ólík-
ust íslenzkum fjöllum. En jafnvel þó að þvi væri ekki til að
dreifa, er bæði litur og lögun frábrugðin. Grjótið er yfirleitt
Ijósgrátt að lit, bæði skriður og hamrar, en lögun fjallanna
ákvarðast af því, að þau eru fellingafjöll. Einhvern tíma fyrir
iirófi alda, og sjálfsagt á óralöngum tíma, liafa þau umbrot
orðið í jarðskorpunni, að björgin hröngluðust upp, eins og
t. d. ís á vatni, þegar stormur og straumur knýr hann upp
að landi. Hamrabelti, eitt upp af öðru, eins og algeng eru í
íslenzkum fjöllum, hjallar og stallar, rákir, sem liggja sam-
síða eftir endilöngum fjallgörðunum, þetta sá ég ekki í Ivletta-
fjöllunum. Ein fjallshlið var það, sem að lögun minnti mig
mest á hlíðarnar hér. Það var lilíðin upp af hinni stórkost-
lega gistihúsi og sumarhöll í Banff.
Inni í miðjum fjallaklasanum stendur smábærinn Banff.
Bærinn sjálfur mun ckki fara mikið fram úr Vestmannaeyj-
um, en á sumrin koma þar og fara menn hundruðum saman
á hverjum degi. í Canada eru einn eða tveir þjóðgarðar í
hverju fylki. Eru til þeirra valdir hinir unaðslegustu staðir,
sem síðan eru varðveittir eins og náttúran hefir frá þeim
gengið, að svo miklu leyti sem unnt er. Þangað eru lagðir
afbragðs akvegir. Þar eru byggðir sumarskálar og gistihús.
íþróttavöllum er komið upp og reynt eftir megni að skapa
skilyrði fyrir skemmtilegu útilifi. Meðan fólk dvelur þarna,
cr því gefinn kostur á ýmiskonar aðstoð og þægindum, allt
frá þvi að fá að elda mat sinn sjálft í almenningseldhúsum
og til þess að vera borið á höndum fyrir tugi dollara á sólar-
hring. Fylgd er mönnum veitt, ef þeir vilja fara i gönguferð-
ir, útreiðartúra, bátsferðir eftir fljótum og vötnum o. s. frv.