Skinfaxi - 01.12.1942, Síða 43
SKINFAXI
91
Daníel Ágústínusson:
Landsmót U.M.F.Í. vorið 1943.
Fjórða landsmót Ungmennaíélags íslands í íþróttum verð-
ur haldið í júnimánuði n.k. að Reykholti eða á öðrum hent-
ugum stað í Borgarfirði. Tilhögun þess verður svipuð og á
Haukadalsmótinu 1940, er heppnaðist með ágætum, sem kunn-
ugt er, og á það vafalaust drjúgan þátt i því, að svo fljótt
er aftur hafizt handa með landsmót.
íþróttamótið í vor á að standa í tvo daga, laugardag og
sunnudag. Fyrri daginn fer fram undirbúningskeppni, en þann
siðari úrslit i frjálsum íþróttum, glíma og almenn fimleika-
sýning.
íþróttakennarar U.M.F.Í. og einstök Umf. æfa i vetur tíma-
seðil fyrir pilta og stúlkur eftir Björn Jakobsson á Laugar-
vatni. Er þess að vænta, að hin almenna fimleikasýning
verði með mikilli þátttöku frá öllum héraðssamböndunum,
og á allan hátt hin glæsilegasta. í frjálsum íþróttum keppa
héraðssamböndin um fagran skjöld, er gefinn var 1940 og
þá var unninn af Ungmennasambandi Kjalarnesþings.
Undirbúningur mótsins næsta vor er enn í byrjun, en ákveð-
ið er að m. a. verði keppt i þessum íþróttagreinum:
1. Hlaup:
100 inetra hlaup, 400 metra hlaup, 3000 metra hlaup.
2. S t ö k k:
Langstökk, hástökk, þrístökk, stangarstökk.
3. K ö s t:
Kúluvarp, kringlukast, spjótkast.
4. S u n d:
50 m. sund drengja, frjáls aðferð.
50 m. sund kvenna, frjáls aðferð.
100 m. bringusund karla, 100 m. frjáls aðferð karla.
400 m. bringusund karla, 400 m. frjáls aðferð karla.
5. íslenzk glima.
Einhverjar reglur verða settar um fjölda þátttakenda frá
hverju sambandi i einstökum íþróttagreinum og verður þeim
siðar tilkynnt um það.
Stjórnin vill hvetja félögin til þess að undirbúa þátttöku
sína i iþróttunum rækilega i vetur, svo landsmótið megi
bera vaxandi íþróttastarfsemi Umf. öruggt vitni. Höfuð ein-