Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1945, Side 38

Skinfaxi - 01.12.1945, Side 38
ÍÍÖ SKINFAXI anir til sundlauga og annarra niahrivirkjá: Bóndi gef- ur t. d. væntanleg lömb undan vissri á. Um haustið leggur sami bóndi 4 lömb inn á reikning mannvirkis- iris. „Ærin“ segir liann „varð fjórlembd“. Skennnti- furidur. Góðgerðir, sem kvenfólkið gaf, en að lokum dregur liver neytandi nriða, og liann er skuldbundinn að greiða eins margar krónur og á miðanum stendur. Sjómenn gefa andvirði viss róðurs, eða þeir róa með „sundlaugarstubb“ eða „bússtubb“ alla vertíðina, og mannvirkiö fær andvirði þeirra fiska, sem á stubb- inn koma. Ungir og gamlir gefa svo og svo mörg dagsverk. Þeir vinna þau síðan af sér eða greiða andvirði þeirra. Piltar i vegavinnu gáfu i einni sveit andvirði 6. hvers dagsverks til sundlaugar. Styrkir liafa fengizt frá sýslunefnd, menningar- sjóði kaupfélags, breppsnefndum o. s. frv. Með góðu skipulagi og náinni samvinnu má með miklum ábata nola þegnskylduvinnu, t. d. við allan gröft og efnisöflun. Einnig má kalla saman hópa til þess að fylla mótin þegar smiðir liafa slegið upp fyr- ir veggjum eða lofti. Menn skyldu varast að láta vinna þegnskylduvinnu við annað en það, sem mikil afköst sjást eftir að loknu dagsverki, þvi að laun þegnskyldu- vinnunnar er ánægjan yfir að sjá einhver afköst. Þegar mannvirkið er fullreist, skilar framkvæmda- nefndin af sér, og verkið er „tekið út“, og að því loknu tekur liúsnefnd við félagaheimilinu. Húsnefndina skipa 3 eða 5 menn eða konur frá þeim aðilum, sem að framkvæmdum stóðu. Húsnefndin sér um daglegan rekstur hússins, ræstingu og viðhald. Húsnefndin varðveitir sjóðinn. Iíúsnefndin ákveður leigu fvrir afnot af félagaheimilinu, því hver sem notar liúsið, verður að greiða fyrir afnot þess. Þó að félag hafi staðið að bvggingu þess, þá verður það að greiða leigu fyrir afnot sín af því.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.