Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1945, Síða 67

Skinfaxi - 01.12.1945, Síða 67
SKINFAXI 139 hókina sögur, sem beri nokkur blætengsl, og þykir mér fara vel á því. Og þótt undirrót tveggja sagnanna, Musteris Saló- mons og Reistra pýramída, sé hið sama, er meðferð efnisins svo gjörólík, að lesandinn getur vel við unað. Allar eru sög- urnar fremur skemmtilegar aflestrar og grípa lesandann föst- um tökum, en það er auðvitað mikill kostur út af fyrir sig. Mér er sagt af fróðum mönnum um þessa liluti, að smá- sagnasöfn séu yfirleitt minna lesin hér á landi en stærri skáldsögur. Bendir þetta til þess, að íslenzkir lesendur kunni síður að meta smásögur en lengri skáldrit. Er þetta skaði, því að góð smásaga er miklu meiri og betri bókmenntir en marg- ur langur doðrantinn, sem til bókmenta er talinn. Smásagan er eitt erfiðasta form bókmennta. Ef til vill geng- ur hún næst leikritum. Líti menn á það i fljótu bragði, virð- ist svo, að auðveldara sé að rita tíu blaðsíðna smásögu en hundrað eða tvö hundruð hlaðsíðna skáldsögu. En ef skyggnzt er dýpra, komast menn brátt að raun um, að smásaga krefsL mikilla hæfileika æfðra rithöfunda. Smásagnahöfundurinn er að ýmsu leyti nátengdur ljóð- skáldinu. Ilann sér atburðina, gamlan mann ganga eftir göt- unni, laufblað falla af gi-ein á haustdegi, og liann tekur að spyrja sjálfan sig. Hvers vegna er þessi gamli maður á gangi þarna? Hví er hann svona klæddur? Hvi er hann svona hok- inn? Eða: Ilvað þyrlast brott með þessu litla laufblaði? — ímyndunarafl höfundarins kemst á hreyfingu, liugmyndaflug- ið fær vængi, og hann tekur strax að hugsa upp svör við spurningunum. Þannig er smásagan bæði hlutlæg og snar þáttur af tilfinningum höfundar og reynslu. Smásagnahöfund- urinn er einnig skyldur ljósmyndamanninum, sem tekur mynd- ir af daglegu lífi i kringum sig. Myndin, svo „stutt“ sem hún er, vcrður að tala sínu eigin máli, og höfundarins. Smásagna- höfundurinn hefur heldur ekkert rúm fyrir langar skýring- ar, þvi að smásagan er alltaf stutt. Hún má til að vera snögg- soðin. Því styttri sem hún er, ef hún er nægilega löng, því betra. Smásagnahöfundur leysir vandamál á fáum blaðsíð- um, eða bregður upp snöggri mynd af mannlífinu, en lætur lesandanum eftir að hugsa upp öll smáatriði, renna grun í ýmsar aðstæður, og brjóta heilann um persónnr og svið sög- unnar. En slíkt er einmitt hið skemmtilegasta og hugljúfasta fyrir hvern lesanda, sem ann góðum bókmenntum. Bókmennt- ir eiga í raun og veru að vesa lýsingar og eins konar tillögur, sem komi lesandanum úr jafnvægi, svo að hann takj að hugsa um meðbræður sína og samfélag. 10*

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.