Skinfaxi - 01.12.1945, Blaðsíða 70
142
SKINFAXI
efnið fastari tökum og þroski innsýn, svo að Ijóð hans verði
djúpsærri, veigameiri og listrænni, þótt þau yrðu mun færri.
— Allir, sem skáld eru, yrkja fá kvæði og góð fremur en
mörg kvæði misheppnuð. S.
Rit send Skinfaxa.
SAMIÍVÆMISLEIKIR OG SKEMMTANIR. Bók þessi er
um 100 hls. að stærð ogthefur inni að halda alls konar leiki
og dægradvalir fyrir börn og fullorðna. Ragnar Jóhannes-
son magister sá um útgáfuna, og segir hann i formála: „Þeg-
ar kunningjar hittast i heimahúsum, á tómstundum og tylli-
dögum, er reynt að skemmta s,ér eftir föngum við ýmsa leiki,
spil og dans. En það kemur oft fyrir, að minna verður úr
skemmtuninni en skyldi, vegna þess, að einhvern vantar i
hópinn, sem kann marga leiki og skemmtanir og er leikinn
og æfður i að hafa slika forystu á hendi. Nú er illt að þurfa
að una við það, að skemmtun spillist af þessum orsökum,
og má bæta úr því með leikjabókum ýmis konar.“
Um efni bókarinnar segir ennfremur i formála: „Reynt
hefur verið að taka sitt af hverju: inni- og1 útileikjum, spil-
um, göldrum, orðaleikjum o. s. frv. Loks eru sett nokkur
atriði úr marzi, sem löngum hefur verið vinsæll i dansi.“
Er ekki að efa, að bók þessi komi i góðar þarfir fyrir mann-
mörg heimili og félög, svo og alla þá, sem skemtanir vilja
um hönd hafa. Bókin kostar 20 kr. í traustu bandi.
FÖNDUR I. Kver þetta er saman tekið af Lúðvíg Guðmunds-
syni, skólastjóra Handíðaskólans í Reykjavík. í formála seg-
ir höf. að hann hafi i hyggju að gefa út „safnrit fyrir börn
og unglinga, þar sem veitt væri tilsögn um byrjunaratriði
ýmissa greina verklegs náms“. Eru i hókinni ýmsar bend-
ingaf og lýsingar í þessum efnum og fylgja myndir til ,skýr-
inga. Kemur hún áreiðanlega í góðar þarfir hjá verkfús-
um börnum og laghentum unglingum, sem vilja heldur föndra
við aðl búa til hlutina sjálfir en fá þá að. En sem hetur fer
er margt slikra unglinga, þótt oft liafi verið litið gert til
þess að giæða þennan áhuga þeirra.
HLfN, ársrit íslcnzkra kvenna, 26. árg. í ritinu eru marg-
ar greinar um áhugamál kvenna, fróðleiksþættir fyrir hús-
mæður, afmælis- og minningargreinar um merkar konur,