Skinfaxi - 01.07.1952, Blaðsíða 26
74
SKINFAXI
í sýslunni. Einnig þökkum við öllum þeim mönnum,
sem með honum vinna, því vitanlega hefur Guðmundur
marga ágæta menn með sér í starfi, sem vinna jafn
óeigingjarnt starf og formaðurinn. Vil ég þar nefna
meðstjórnendur hans, Leif Sveinbjarnarson í Hnaus-
um og Garðar Björnsson, bakara í Höfðakaupstað
o. m. fl., sem eiga þar óskipt ummæli. Eitt er enn,
sem ég vex-ð að minnast á í sambandi við „Húnavöku"
og Héraðsmót U.S.A.H.
Það hefur viða, og ekki að ástæðxxlausu, verið mik-
ið kvartað urn drykkjulæti og ölvun á mörgum sam-
komurn ýmissa félaga hingað og þangað um landið,
og svo mátti sjálfsagt segja hér. En Guðmundi hefur
tekist að ráða bót á öllix slíku. Við spyrjum hvernig
liann hefur farið að. Aðferðin er lxara góð stjórn.
Allir geta skemmt sér án þess að verða fyrir áreitni
eða truflun drykkjxuixannsins. Þetta er einn af stærstu
sigrum stjórnar U.S.A.H. Ég, sem þetta rita, hef um
mörg ár verið starfandi og unnandi xmgmeixnafélags-
skaixai-ixxs, því vil ég þakka öllum þeim, sem vinna
af alúð og áhuga og láta eftir sig spor til eftirkom-
endanna. Spoi- til framfara og nxenningar.
Skrifstofa U.M.F.f.
er að Lindargötu 9 A, efstu iiæð. Hún er opin kl. 16—19 á
mániidögum og fimmtudögum. Auk allra venjulegra málefna
U.M.F.Í. annast skrifstofan afgreiðslu og innheimtu Skinfaxa.
Ungmennafélög!
Áríðandi er að ógreidd áskriftagjöld fyrir árið 1951 og eldri
séu send strax. Afgreiðsla Skinfaxa þakkar þeim mörgu, sem
sent hafa áskriftagjöldin skilvíslega. Minnið félagana á að ger-
ast áskrifendur, sem enn hafa ekki gcrt það. Sendið Skinfaxa
greinar um áhugamál ykkar og framkvæmdir.