Skinfaxi - 01.07.1952, Blaðsíða 37
SKINFAXI
85
Félagsheimili BreiSuvíkur.
Félagsheimili V.
Félagslieimili IKreiðiivíkur
Það stendur á Amarstapa á Snæfellsnesi og var að
mestu fullgert í árslok 1950. Aðeins var eftir að mála
nokkurn hluta þess. Siðan hefur það verið notað fyrir
fundi og samkomur. Einnig hefur barnaskólinn verið
þar til húsa. Heildarkostnaður þess er kr. 200.280.00
og hefur það fengið kr. 80.112.00 úr félagsheimilasjóðí.
Kostnaður við málningu og annan smávægilegan frá-
gang mun bætast við þessa upphæð, svo byggingar-
kostnaðurinn verður alls nokkuð yfir kr. 200 þús.
Samkvæmt manntalinu 1940 voru 41 heimili í Breiðu-
víkurhreppi, en íbúar alls 239. Eigendur félagsheim-
ilisins eru Umf. Trausti, Breiðuvík og Breiðuvíkur-
hreppur. Teikningu gerði Bárður Isleifsson arkitekt í
skrifstofu húsameistara ríkisins.
Rúmmál hússins er 672 m2. Grunnflötur 130,8 m2.
Kjallarinn er 65 m2. Fyrirkomulag hússins er þannig:
Forstofa 11,3 m2, salur 59 m2, búningsherbergi og bað-
herbergi 13,8 m2, bókaherbergi 3,3 m2, leiksvið 24 m2,