Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1952, Blaðsíða 43

Skinfaxi - 01.07.1952, Blaðsíða 43
SKINFAXI 91 F. Starfrœksla: 55. íþróttasamband íslands ........ kr. 84.000.00 56. Ungmennafélag íslands ......... — 56.000.00 57. Skiðaskólinn, ísafirði ........— 3.825.00 58. Bókasjóður Í.S.Í. v/ leikreglna — 2.400.00 59. íþróttaskóli Jóns Þorst., Rvík .. — 2.000.00 kr. 148.225.00 G. Sérfræðileg aðstoð: 60. Áætlaður kostn. v/ teikninga o. fl..........kr. 56.581.56 Alls kr. 567.322.53 Áhugi virðist mjög almennur fyrir margvíslegum íþrótta- framkvæmdum, en hvorttveggja er, að fjárfestingaleyfi hafa verið mjög takmörkuð að undanförnu og fyrirheitinn styrkur íþróttasjóðs getur dregizt í mörg ár, ef svo heldur áfram, sem nú horfir. Hafin var bygging þriggja nýrra sundlauga á síð- ast liðnu ári. Þær eru i Stykkishólmi, Húsavik og Höfn i Horna- firði. íþróttavellir, stærri og minni, eru víða í undirbúningi, auk hinna mörgu sem eru í byggingu, eins og skýrslan að framan sýnir. — Fyrir velvilja fjármálaráðherra gat íþrótta- nefnd ríkisins greitt öllum styrkinn snemma í aprílmánuði. D. Á. Ff« íþróiiawnóiwtn 1951 HÉRAÐSMÓT U.M.S. NORÐUR-ÞINGEYINGA var haldið i Ásbyrgi 22. júli. Formaður sambandsins setti mót- ið með ræðu. Lúðrasveit Akureyrar lék. Jón Sigurðsson, bóndi Ysta-Felli, hélt ræðu. Siðan hófst iþróttakeppni. Stjórnaði henni Vilhjálmur Pálsson frá Húsavík, sem áður hafði kennt hjá sambandinu í mánaðartíma. Fjögur sambandsfélög sendu þátttakendur á mótið. Ú r s 1 i t : 100 m. hlaup: Ólafur Eggcrtsson, Umf. Leifi heppna, 13.0 sek. Langsltökk: Guðm. Theódórsson, Umf. Öxfirðinga, 5.56 m. Hann vann einnig þrístökkið, 12.15 m. Hástökk: Árni Sigurðsson, Umf. Núpsveitunga, 1.50 m. Hann vann einnig kringlukastið, 33.14 m. Kúluvarp: Bjarni Jónsson, Umf. Núpsveitunga, 11,08 m. Spjótkast: Sigurður Gunnarsson, Umf. Leifi heppna, 33.83 m. 800 m. hlaup: Egill Stefánsson, Umf. Leifi heppna, 2:22.0 mín. 300 m- hlaup: Jóhann Gunnarsson, Leifi heppna, 10:22 mín.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.