Skinfaxi - 01.12.2003, Side 9
Þórir Jónsson fyrrverandi formaður UMFÍ
Nafnið Þórir Jónsson þekkja flestir ef ekki allir
félagsmenn Ungmennafélags íslands. Hvers
vegna? Jú, vegna þess að hann var formaður UMFÍ
í átta ár og þar áður gjaldkeri i sex ár. Á þeim tíma
tók hann þátt í ýmsum gæfusporum ungmenna-
félagsins eins og ákvarðanatöku um unglinga-
landsmót um verslunarmannahelgar. Skapti Örn
Ólafsson hitti Þóri að máli rigningarmorgunn einn
í desember og ræddi við hann um UMFÍ - í fortíð,
nútíð og framtíð.
Það var mitt markmið að vinna
hreyfingunni gagn
- segir Þórir Jónsson fyrrverandi formaður UMFÍ
Smitaðist af félagsmálabakteríu
Ef þú segir blaðamanni til að byrja með hver
Þórir Jónsson fyrrverandi formaður UMFÍ er.
„Ég er fæddur í Reykholti, en foreldar mínir eru
úr Mývatnssveitinni annars vegar og Grindavík
hins vegar. Þannig að það má segja að ég sé
kominn af sjómönnum og bændum,“ segir Þórir
sem bjó lengst af í Borgarfirði fyrst og síðan í
Hornafirði. Hann hefur aðallega unnið við tré-
smíðar í gegnum tíðina ásamt því að taka þátt í
félagsmálum af krafti - var í sveitarstjórn Reyk-
dalshrepps sem oddviti og sveitarstjóri og starf-
að lengi fyrir UMFÍ, þar af formaður félagsins í
átta ár.
Þórir gekk í Ungmennafélag Reykdæla þegar
hann var 10 ára gamall og hefur starfað mest
Það má segja að
þetta félags-
málavafstur mitt
hafi orðið að
bakteríu. Einhvern
vegin æxlaðist það
þannig að ég varð
formaður UMSB,
eða Ungmenna-
félags Borgar-
fjarðar, og var þar í
smá tíma og ætlaði
síðan að hætta og
láta þetta gott heita
í stjórnunar-
störfum.
alla sína tíð með því félagi, þó svo að hann hafi komið
við í öðrum félögum eins og hann orðar það. „Ég
gekk í Ungmennafélag Reykdæla um leið og ég gat,
en þá var heimilt að verða formlegur félagi í UMFÍ,“
segir Þórir.
Hvernig kom til að þú tókst að þér formennsku í
UMFÍ á sínum tíma?
„Það má segja að þetta félagsmálavafstur mitt hafi
orðið að bakteríu. Einhvern vegin æxlaðist það þann-
ig að ég varð formaður UMSB, eða Ungmennafélags
Borgarfjarðar, og var þar í smá tíma og ætlaði síðan
að hætta og láta þetta gott heita í stjórnunarstörfum.
Síðan var til mín leitað við að fara í stjórn UMFÍ og var
gjaldkeri þar í ein sex ár. Eftir þann tíma var ég
eiginlega búinn að ákveða að hætta,“ segir Þórir sem
á þessum tíma sat í sveitarstjórn Reykdalshrepps.
„Eftir tæplega tveggja ára frí frá stjórnarsetu í stjórn
9