Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1940, Síða 9
KARL KRISTMANNS:
Sameignarfélög útgerðarmanna
í Vestmannaeyjum
Það mun óvíða hér á landi, sem samstarf
útgerðarmanna um hagsmunamál sín yfirleitt
er komið eins vel á veg og í Vestmannaeyjum,
því það má svo heita, að þeir hafi myndað með
sér sameignarfélög um allt það, er verulega
ræður um afkomu útgerðarinnar, hvað snertir
t. d. vinnslu ýmissa sjávarafurða o. fl. Alkunn
er orðin sú fyrirmyndar nýtni Eyjabúa á öllum
fiskúrgangi, eins og t. d. slógi, sem malað er til
áburðar. Það má t. d. geta þess hér til gamans,
sem þó er satt, þó ótrúlegt þyki, að það hafa
orðið oftar en einu sinni málaferli út af slori
úr fiski, þannig, að óviðkomandi hefir tekið
slor við aðgerðarhús einhvers útgerðarmanns
án leyfis viðkomanda.
Hér á eftir verða nú talin nokkur helztu fyr-
irtæki, sem útgerðamenn í Vestmannaeyjum
eiga og hafa rekið sameiginlega, útgerð sinni
og þar með öllum almenningi í bænum, til
hagsbóta:
Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja.
Það var stofnað í Vestmannaeyjum 26. jan.
1862 fyrir forgöngu Bjarna E. Magnússonar
sýslumanns, sem tekið hafði við embættií Vest-
mannaeyjum árið áður. Nafn félagsins var í
fyrstu „Skipaábyrgðarfélag Vestmannaeyja“.
Þegar félagið var stofnað, var ekkert félag
með sama markmiði starfandi hér á landi.
Árið 1853 höfðu ísfirðingar að vísu stofnað
með sér ábyrgðarfélag fyrir þilskip, en það fé-
lag var liðið undir lok, þegar stofnun Báta-
ábyrgðarfélags Vestmannaeyja átti sér stað.
Bátaábyrgðarfélagið gaf út mei’kilegt og
9
fróðlegt afmælisrit árið 1939, í tilefni af 75
ára afmæli sínu, sem var 26. jan. 1937. Rit
þetta, sem samið er af hr. lögfr. Jóh. Gunnari
Ólafssyni, er mjög merkilegt og sýnir bezt hve
stórmerkt nytjastarf félagið hefir unnið, með
brautryðjendastarfi sínu á þessu sviði.
Stofnárið, 1862, voru 11 skip (opin skip)
vátryggð hjá félaginu, fyrir samt. kr. 4044,00
að virðingarverði. Það sama ár greiddi félagið
kr. 26,00 í skaðabætur. Árið 1937 voru 80 skip
(mótorskip) tryggð hjá félaginu fyrir krónur
1,838,150,00 að virðingarverði. Það ár voru
greiddar kr. 47,779,36 í skaðabætur. Árið 1927
voru flestir bátar tryggðir hjá félaginu, eða
84 talsins, og að virðingarverði krónur
2,068,005,00. Mestar skaðabætur sem félagið
hefir greitt á einu ári var 1926, kr. 72,841,52.
Sjóðseign félagsins nam árið 1937 krónum
301,461,83, en var mest árið 1931 krónur
373,903,65. Alls hefir félagið greitt í skaða-
bætur frá stofnun til ársins ’37 kr. 637,378,19.
Síðan árið 1911 hefir félagið endurtryggt
helming þeirra trygginga, er það hefir haft á
hverjum tíma, hjá Samábyrgð íslands á fiski-
skipum.
Frá 20. febr. 1908 til 3. maí 1938, hefir fé-
lagið greitt í bætur fyrir báta sem alveg hafa
tapast kr. 348.012.00.
Af þessu, sem nú hefir verið sagt, er það
augljóst, hve geysimikla þýðingu Bátaábyrgð-
arfélag Vestmannaeyja hefir haft fyrir vél-
bátaútgerð Vestmannaeyja og alla atvinnuþró-
un kaupstaðarins á undanförnum áratugum.
VÍKINGUE