Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Page 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Page 21
„Arinbjörn hersir.“ auk þess, sem þeir skutu á stjórnpallinn og hæfðu báða áttavitana og dýptarmælirinn, sem allt varð ónothæft. — Þegar flugvélin var komin úr augsýn, var róið að skipinu og bund- ið um sár hinna særðu. Ljós voru lagfærð, og er loftskeytamaðurinn hafði komið sínum tækjum til að starfa, var sent út A. A. A., sem er sent í stað S. O. S., þegar flugvél gerir árás á skip. Samband náðist við G. P. K. radio og síðar við björgunarskipið „Superman“, sem svo kom til okkar li/2 tíma eftir að árásin byrjaði. Hin- ir særðu voru strax látnir um borð í „Super- man“. Síðan var athugað, hvort hægt mundi vera að fylgja honum eftir til hafnar, en það reyndist ógerlegt vegna margvíslegrar bilun- ar. Að draga Arinbjörn taldi skipstjórinn á „Superman" að myndi hefta för skipsins of mikið, þar eð hinir særðu þurftu skjótrar lækn- ishjálpar við, og með því, að veður fór versn- andi, mikill sjór kominn í skipið og enginn nothæfur lífbátur, var Arinbjörn yfirgefinn og „Superman“ hélt til Campbeltown með fullri ferð. — Frá „Superman“ var sent skeyti og annar dráttarbátur beðinn að fara á vett- vang og reyna að ná Arinbirni hersi og draga hann til hafnar. Um borð í „Superman“ var okkur sagt, að flugvélin hefði fyrst kastað á þá tveimur sprengjum, er hæfðu hvorugar, en þeir hröktu hana á brott með skothríð úr loft- varnabyssum sínum. Til Campbeltown var komið seinni part sunnudagsins og voru þá hinir særðu, þeir: Jón Kristjánsson, Guðmundur Helgason, Guðjón Eyjólfsson, Ólafur Ingvarsson og Guð- mundur Ólafsson fluttir á spítala. Marinó Jónsson var látinn fylgja okkur og um meiðsli hans búið í gistihúsinu. Við biðum þarna í 7 daga og leið öllum eftir atvikum vel. Egill Skallagrímsson kom og tók okkur, þá sem ferðafærir voru og flutti til Londonderry, en þangað hafði verið farið með Arinbjörn. Hjá honum fengum við líka tvo menn að láni, þá Jón Ólafsson og Ragnar Karlsson. — B.v. „Gyllir“, sem einnig kom til Londonderry, lét okkur hafa bát í stað okkar tveggja, sem báð- ir voru ónýtir. Eftir lauslega skoðun var skipið afhent skipstjóranum fyrir hönd eiganda, af viðkom- andi „Naval Officer in Charge“. Það var ljótt umhorfs um borð í Arinbirni, þegar við kom- um þangað. Allt var á tjá og tundri, og svo, að vart er hægt að lýsa með orðum einum. Við skoðunina kom einnig í ljós, að öll matvæli, siglingatæki eins og t. d. 2 sjónaukar, loflvog og vegmælir ásamt öðru lauslegu var horfið. Innsiglið var rofið og þaðan horfið það sem þar fyrirfannst, ennfremur allur fatnaður skipverja og vörur þær, sem beir hötðu keypt Loftárás á skip. 21 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.