Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Síða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Síða 30
Sigurður Guðbrandsson skipstj., 25 ára starfsafmæli Á þriðja í jólum, síðastliðinn, átti Sigurður Guðbrandsson skipstjóri á togaranum Snorra goða, 25 ára starfsafmæli sem stýrimaður og skipstjóri. Sigurður Guðbrandsson réðist til H.f. Kveld- úlfs sem stýrimaður á Snorra Sturluson (gamla) með Guðmundi skipstjóra Guðmunds- syni frá Nesi, á þriðja í jólum fyrir í'éttum 25 árum síðan og hefir æ síðan óslitið unnið hjá Kveldúlfi, lengst af sem skipstjóri, eða fast að 20 árum. Fyrst mun Sigurður hafa verið fastráðinn skipstjóri á togaranum Snorra Sturlusyni (yngri), svo þegar Kveldúlfur seldi Snorra Sturluson tók Sigurður við skipstjórn á togaranum Agli Skallagrímssyni, og nú síð- ast er Sigurður skipstjóri á Snorra Goða. — Sigurður tók við Snorra um leið og Kveldúlfur eignaðist það skip, og hefir hann verið með Snorra æ síðan eða á annan tug ára. Þetta starfsafmæli er að því leyti sérstætt í sögunni, að mér er ekki kunnugt um að nokkur annar núlifandi skipstjóri hafi náð þessari tímalengd sem stýrimaður og skip- stjóri, óslitið hjá sama félaginu. Ég sem þessar línur skrifa kynntist Sigurði Guðbrandssyni fyrst sem stýrimanni um borð í Skallagrími (gamla), skömmu eftir áramótin 1919, og ég finn það mætavel, að þó ég fari að lýsa Sigurði sem sjómanni og félaga, þá verður það síður en svo betur gert, en þögnin gerir, þegar þess er gætt að þarna er um þann mann að ræða, sem eins og fyrr segir, hefir í 25 ár unnið óslitið hjá sama félagi, já, og því félagi sem ekki hefir verið óheppnara en svo í mannavali og aflabrögðum, að það hefir ár- um saman átt eitt eða fleiri aflahæstu skipin í flotanum, bæði á síld og togfiskiríi. Þó hefir þessi maður alltaf haldið velli, sem einn af jöfnustu og tryggustu aflamönnum flotans og húsbændur hans ekki eftir reynsl- unni að dæma, séð sér hag í að skifta um. Og þó ég væri nýgræðingur þegar við Sig- urður fyrst unnum hlið við hlið, dulist mér ekki að það rúm væri vel skipað sem honum var skipað og ekki líklegt að umskifti stæðu til bóta. Þegar Sigurður Guðbrandsson átti 50 ára afmæli kvað einn af skipverjum hans nokkrar vísur til minningar um daginn, og þar er þessi vísa: Fæst úr sjómanns sögu er skráð, sízt hvað miklu er fórnað, þú hefur með þreki og dáð þínu skipi stjórnað. Fyrri partur þessarar vísu getur átt við alla sjómenn sem rækja störf sín með skyldurækni, eins og svo fjölda margir í þeirri séttt gera, en seinni hlutan leyfi ég mér að tileinka Sig- urði Guðbrandssyni sérstaklega. Sigurður er fríður maður og manna föngu- legastur á velli og ber öll hans framkoma vott um knáleik og karlmennsku. Hann er talinn stórlyndur, og það er rétt, en ég og fleiri sem þekkjum Sigurð nánar, vita að hann er dreng- lyndur, sáttfús og heitur tilfinningarmaður sem ekkert aumt getur séð, án þess að rétta hönd til hjálpar. Sigurður er giftur Eyríði Árnadóttur frá Stakkarhúsum í Flóa, stórglæsilegri ágætis- konu, sem þrátt fyrir langvarandi heilsubrest hefir á öllum tímum tekið virkan þátt í störf- um og stjórn heimilisins, og byggt það VIKINGUR 30

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.