Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Blaðsíða 32
Kauphallarviðskifti.
Nokkru fyrir áramótin va'r skýrt fi'á því í einu blaði
bœjarins, að árslaun háseta á ísl. skipum mundu
verða 6—14 þúsund lcrónur, vélstjóra 20—30 þús. og
skipstjóra 30—60 þús. á ’árinu 1940.
Skömmu eftir áramótin stóð í öðru bæjarblaðanna,
að mánaðarkaup háseta væri 220 kr., og var bent 4
þetta lága kaup, sem sönnun fyrir því, að kaupið
þyrfti að hækka.
Fám dögum síðar birti þriðja blað bæjarins grein
eftir mjög þekktan mann, þar sem getið var um sam-
tal milli útgerðarmanns og bónda á s. 1. hausti. Kvart-
aði útgerðarmaðurinn yfir háu kjötverði, en bóndi
spurði hvaða laun hásetar útgerðarmanns hefðu. Er
útgerðarmaður látinn geta þess að synir hans tveir,
er með honum voru á vélbát, hafi haft 4—5 þúsund
krónur yfir þrjá mánuði, en það verða 16—20 þúsund
ki'. yfir árið. Aftur á móti taldi bóndi árstekjur hjóna
í sveit ekki nema kr. 1500 og ynnu þó bæði baki
brotnu allt árið, eða 365 daga. Menn vita, að þar er
ekki um að ræða 8 eða 10 stunda vinnudag, heldur
17—18 stunda, eins og vinnudagur bænda er venju-
lega talinn í blaðaskrifum.
Við, sem erum á sjónum, vitum um árslaun okkar
og við förum nærri um það, livað skipsfélagar okkar
inn vinna sér. Skrif idaðanna um þessi mál eru því
ekki nauðsynleg okkar vegna. þau eru ætluð öðrum
lesendum.
Alþingi á að koma saman í þessum mánuði. þar
á að taka skattamálin til rækilegrar yfirvegunar.
Næsta vor eiga kosningar að fara fram um land allt.
]iað er því skiljanlegt að blöðin séu farin að undir-
búa væntanleg kauphallarviðskipti stjórnmálaflokk-
anna og er ekki seinna vænna. Sjómaður.
10 ára aftnœli.
Þann 7. des. s.l. minntist Kvennadeild Slysavai'nafé-
la,gs Islands í Hafnarfirði 10 ára. afmælis síns með fjöl-
mennn samsæti. Bárust félaginu við það tækifæri fjöldi
þakkai'- og heillaóskaskeyta og ennfremur 1000 krónur
a'S gjöf frá togaraútgerSarmönnum í bænum.
Félagið liefur á þessum 10 árum innt af höndum mik-
ið og gott starf í þágu slysavarnanna. T. d. hefur þaS
safnað inn rúmum 30 þús. króna til starfseminnar. Fé-
lagskonur eru um 220 og mikið líf og starfsáliugi hefur
jafnan ríkt í féiaginu. FormaSur félagsins er frú Rann-
veig Vigfúsdóttir. Hefur hún verið það um langt skeið
og sýnt í því starfi framúrskarandi áhuga og dugnað.
Stjórn félagsins skipa a'S öðru leyti: frá Sólveig Eyjólfs-
dóttir, frú Kristensa Kristófersdóttir, frú Marta Eiríks-
dóttir, frú Júlíana Jónsdóttir og ungfrú Elín Oddsdóttir.
VÍKINGUR
Þettað kort sýnir hættusvæðið við ísland.
32