Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 1
SJÓMANN ABLAÐÍÐ
U I K I H 6 U R
ÚTGEFANDI: FÁRMANNA- OG FISKIM ANNASAMB AND ÍSLANDS
VIII. árg. 3.-4. tbl. Reykjavik, mars—april 1B46
Friðrik Ólafsson, skólastjóri:
ý étfeiÍHuim hatfœ oeiií
STÓRKOSTLEGAR FRAMFARIR
á Atiiii Aiglinya^eœiinnae
„RADAR“, „DECCA“ og önnur ný sigl-
ingatæki, munu gjörbreyta aðferðum
og aðstöðu skipa og' flugvéla við staðar-
ákvarðanir.
Flestir sjómenn munu kannast við nafnið
„Radar“, raföldusjána, sem svo mjög hefir ver-
ið rætt um að undanförnu og margir hafa fyrir
samheiti á nýtízku tækjum til að ákveða með
stað skipsins á sjónum eða flugvélarinnar í
loftinu.
í raun og veru er „Radar“ þó aðeins eitt af
fleiri siglingatækjum, sem fundin hafa verið
upp í síðustu heimsstyrjöld. Tvö önnur eru
,,Decca“ og „Loran“, skyld tæki, sem bæði eru
byggð á sama lögmáli, en þau og „Radar“ hafa
þó mismunandi hlutverk að vinna, hvor á sínu
sviði. Hlutverk ,,Radars“ er að koma í veg fyrir
árekstra skipa (og flugvéla) og tryggja örugga
landtöku, en „Decca“ og „Loran“ gera siglinga-
manninum fært að ákveða stað skipsins (eða
flugvélarinnar) með ótrúlegri nákvæmni, hve-
nær sólarhringsins sem er og hvar sem er.
„Radar“ má í stuttu máli líkja við töfraauga,
sem skip og flugvélar sjá með í myrkri ogdimm-
viðri. Tækin eru nánast fullkomnari gerð
,,Ekkó“-lóðsins, sem flestir sjómenn þekkja nú.
Gegnum hreyfanlegt loftnet eru sendar út
radíóöldur með stuttu millibili, og endurkast-
ast öldurnar frá lilutum, sem þær hitta, og
koma aftur með — ef svo mætti að orði kveða
— mynd af hlutunum, sem kemur fram á þar
til gerðum fleti. Myndirnar koma fram sem
lýsandi deplar eða línur, sem með æfingu má
lesa úr mynd af umhverfinu, strandlengju, vita,
baujur, sker, skip o. fl. Flugvélar geta í mikilli
hæð notað „Radar“ til staðarákvarðana á all-
miklum vegalengdum, en þar sem „Radar“-öld-
urnar fylgja ekki yfirborði jarðarinnar og
hverfa bak við sjóndeildarhringinn, er „sjónar-
lengd“ þeirra komin undir hæð loftnetsins frá
jörðu, eins og sjónarlengd venjulegra ljósvita.
Gagn skipa af „Radar“ við staðarákvarðanir er
því að mestu takmarkað við landtöku í dimm-
viðri, við töku hafna, að finna sker, vita og önn-
ur sjómerki og að finna skip og afstýra þannig
hættum, löngu áður en hlutir þessir yrðu sýni-
legir með berum augum.
„Radar“ er því ekki tæki til að ákveða stað
skipsins með á úthafinu. Til þess eru tældn
„Decca“ og „Loran“.
„Decca“ og „Loran“ eru systurtæki, bæði
fundin upp í Englandi. Á ófriðarárunum var
Bandaríkjamönnum falið að fullkomna „Loran“
(stytt úr Long distance Radio Navigation), cn
Bretar héldu „Decca“, kallað svo eftir þekktu
hljóðfærafyrirtæki, sem á einkaleyfið. Aðferðin
er fundin upp af einum verkfræðinga þess,
W. 0. Brien.
„Decca“ og „Loran“ byggjast bæði á staðar-
V I K I N G U R
65