Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Page 8
FIMMTA MYND: Kortið sýnir hvernig
ölduorkun í A safnast að tanganum
Á’ vegna breyttrar öldustefnu. Jafnmik-
il orka i B heldur inn flóann en dreyfist
á stórt svæði við ströndina. Láxéttu
línumar tákna öldubrjóstin; en lóðréttu
Iínumar skipta orkunni í jafnstórar
einingar í 'rannsóknarskyni. Slíkar rann-
sóknir em ómissandi til stuðnings við
áformaður teikntngar af hafnargörðum
og öðmm mannvirkjum við ströndina.
þeim mun minni hæð sem orku-
tapið var meira, þegar hún h. "otn-
aði. Hin nýja alda brotnar líka,
þegar hún kemur á minna dýpi
en hin minnkaða hæð hennar
þolir.
Þar sem alda brotnar er dýpið
mælt frá sléttum haffleti, 1,3
sinnum hæð brotsins. Hægt er að
mæla hæð brotsjávar, þó hann sé
nokkuð langt frá landi, á þann
hátt að ganga niður í flæðarmál-
ið þar til topp hinnar brotnandi
öldu ber í sjóndeildarhringinn.
Augahæð þar miðað við lægstu
útsogslínu er jöfn hæð brotsins.
Brattur sjávarbotn hefur mik-
il áhrif á brotsjóina. Þegar brött
neðansjávarbrekka neyðir stóra
öldu til að sleppa orku sinni
skyndilega, myndast holskeflur,
sem hringa faldinn, veltandi nið-
ur í öldudalinn framundan.
Stundum lokast vatn inni undir
hinni brotnandi öldu, þá verður
sprenging vegna loftþrýstings
með miklum hávaða og brim-
strókum hátt í loft upp. Ef neð-
ansjávarbrekkan er löng og halla-
lítil, eins og á Waikaki á Hawaii-
eyjum, myndar hinn brotnandi
toppur ödunnar löðurgarð, sem
veltur niður brjóst hinnar hálf-
brotnu öldu í áttina til lands.
Þar sem öldumar flytja mikla
orku upp að ströndinni ,geta þær
valdið miklu tjóni. D. D. Gaillard,
kapteinn í verkfræðingadeild
bandaríska hersins, notaði tíma
sinn í hemum aðallega til að
rannsaka öfl aldnanna á mann-
virki. Árið 1904 sagði hann frá
nokkrum merkilegum dæmum
um eyðileggingarmátt þeirra.
Hafnargarður í Cherbourg í
Frakklandi var aðallega úr stór-
grýti, ofan á honum var 20 feta
hár veggur. 1 stormi henti sjór-
inn 7000 punda klettum yfir
vegginn og færði til 65 tonna
steyptar steinblokkir um 60—70
fet. Sterkar stálgrindur hlífa nú
vitanum á Tillamooh kletti und-
an Oregonströndinni. Vitinn er
139 fet upp fyrir sjávarflöt um
fjöru. Þetta er nauðsynlegt, því
öldumar hafa rótað upp grjóti og {
brotið vitann nokkrum sinnum.
Einu sinni kastaðist 135 punda1
klettur gegnum þakið á húsi vita-
varðarins og eyðilagði allt í hús-
inu. Gmnnur hússins er 91 fet
ofan við sjávarflöt. Ofan á enda
hafnargarðsins í Wick í Skot-
landi var 800 tonna steinsteypt-
ur haus, honum var fest við und-
irstöðuna með 3,5 þumlunga
gildum járnteinum. I miklum
stormi 1872 horfði maðurinn,
sem byggði hafnargarðinn, undr-
andi á, að hausinn og undirstað-
an, samtals 1350 tonn, kastaðist
í heilu lagi inn í höfnina. Hann
byggði garðinn upp aftur og lét
nú 2600 tonna haus ofan á enda
hans. Þetta mannvirki fór sömu
leiðina í stormi nokkrum árum
seinna. Ekkert er um það skráð,
hvort maðurinn hélt stöðu sinni
og reyndi aftur. tJtreikningar
Gaillards sýna að afl öldunnar
hefur verið 6,340 pund á fer-
þumlung.
öldur af völdum jarðskjálfta,
röskunar á botni sjávar og eld
gosa eru jafnvel enn kröftugri
og valda meira tjóni en vindöld-
ur. Atomsprengingar, sem gerð-
ar hafa verið við yfirborð sjáv-
ar, gefa vísbendingu um að slík-
ar sprengingar, ef gerðar verða,
geti valdið stórhættulegum sjáv-
aröldum.
Almenningur þekkir eða hefur
heyrt getið um svonefndar flóð-
öldur (tidal waves), þó þær eigi
ekkei-t skylt við flóðöldu sjávar-
falla. Haffræðingar voru óánægð-
ir með þetta rangnefni. Stungið
var upp á að ráða fram úr þessu
með því að taka upp japanska
orðið tsunami. Seinna kom í ljós
að japanskir haffræðingar voru
jafn óánægðir með þetta orð, sem
þýðir það sama og hitt. En orðið
tsunami hefur náð mestri lýð-
hylli um öldur á sjó ,sem hvers
konar röskun í jarðskorpunni
veldur.
Líkt og þegar hlutur fellur í
vatn, setur snögg hreyfing á
sjávarbotni ölduhóp á hreyfingu.
. Þegar slíkar öldur eru komnar
'af stað ,fara þær langar leiðir
tmeð miklum hraða og tapa lítilli
i*orku. Þó hæð þeirra á djúpum
ifsjó sé aðeins fáein fet, geta þær
risið mjög hátt, þegar þær koma
upp á meira grynni, flætt yfir
strandhéruð og brotið allt og
eyðilagt. Hæð þeirra er þá næst-
um aðallega undir nálægu botn-
lagi og lögun strandarinnar kom-
in. öldutímar tsunamialdna eru
yfir 15 mínútur og öldulengdin
SJÖTTA MYND: Hundrað feta há
flóðalda eða TSUNAMI olli mildu tjóni
í Scotch Cap í Alaska árið 1946. Vita-
húsið úr styrktri steinsteypu eins og
myndin sýnir, eyðilagrðist eins og neðri
myndin sýnir. Upp á háhæðiiuii 103 fet
fyrir ofan sjávarflöt felldi aldan loft-
skeytamastiu-. Brak úr vitahúshinu skol-
aðist upp á hæðina. Sama flóðalda sem
varð af jarðskjálfta við Aleuiteueyjar
skall á HawaUeyjum, Suður-Ameriku og
kyrrahafseyjum í 4000 mílna fjarlægð
fár upptökum.
VÍKINGUR
8