Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Síða 38
vekja athygli Alþingis og alþjóðar
á því, hver alvara er á ferðum í þess-
um málum, þar sem ekki er annað
fyrirsjáanlegt, en að um og upp úr
næstu áramtóum, verði að leggja
öllum togaraflota landsmanna við
festar um ófyrirsjáanlegan tíma, ef
ekki verður nú þegar brugðið við,
til þess að leysa þennan vanda.
Sjómannaskólinn í Reykjavík.
Þar sem upplýst er, að lóð Sjó-
mannaskólans er ekki útmæld form-
lega, leggur 19. sambandsþing F.F.
S.í. sérstaklega áherzlu á, að nú
þegar verði gengið frá því, hve stór
lóð skólanum sé ætluð og framtíðar-
skipulag hennar ákveðið.
Þar sem vitað er, að brýn þörf er
fyrir hærri fjárveitingu til skólans,
til þess að fullgera hann og nauð-
synlegs viðhalds svo og skipulagn-
ingu og ræktun lóðarinnar, leggur
19. þing F.F.S.Í. sérstaka áherzlu á,
að árleg fjárveiting til Sjómanna-
skólans verði aukin að miklum mun
frá því sem nú er og verði ekki und-
ir 2 millj. kr. þar til byggingu skól-
ans og skipulagi lóðarinnar er lokið.
Sjómannaskóli í Vestmannaeyjum.
19. sambandsþing F.F.S.Í. telur,
að vegna sívaxandi útgerðar í Vest-
mannaeyjum sé nauðsynlegt að þar
verði staðsettur fullkominn skóli til
menntunar fiskimanna, þar sem
námskeið þau, sem öðru hvoru eru
haldin, nái ekki tilgangi sínum.
Fiskvinnslukennsla.
19. þing F.F.S.Í. telur mjög mis-
ráðið, að starf fiskvinnsluleiðbein-
anda, sem stofnað var á öndverðu
ári og sem virðist hafa reynst mjög
vel, hafi verið lagt niður.
Sambandsþingið lýsir því sem
skoðun sinni, að okkur beri að
byggja upp fullkomið fræðslukerfi
um meðferð fiskjar í sjómannaskól-
um og á námskeiðum sjómanna, þar
sem ekki séu gerðar lægri kröfur í
þessum efnum en hjá öðrum fisk-
veiðiþjóðum, sem tekið hafa upp
slíka fræðslu.
Endurskoðun fiskmats.
19. þing F.F.S.Í. er kunnugt um
að fyrirkomulag fiskmatsins sé um-
deilt og ályktar þvi, að full þörf sé
á því, að það sé tekið til ýtarlegrar
endurskoðunar.
Skipabyggingamál I
Vegna framkominna mistaka í
skipabyggingum á vegum ríkissjóðs,
ályktar 19. þing F.F.S.Í., að skora
á Alþingi og ríkisstjóm, að leita
álits F.F.S.Í. á hverjum tíma í skipa-
byggingarmálum. Ákvæði um slíkt
verði sett með reglugjörð. Ákveður
þingið að velja 5 manna nefnd til
þess að verða stjóm sambandsins til
aðstoðar í þessu efni.
Nefndin skal skipuð sérfróðum
mönnum, þ. e. tveim skipstjórum,
tveim vélstjórum og einum loft-
skeytamanni. Ennfremur skal
nefndin leita til sérfróðra aðila ann-
arra starfsgreina innan sambands-
ins eftir því sem þörf krefur.
Skipabyggingamál II
19. sambandsþing F.F.S.l. fagnar
því, hver aukning á sér nú stað í
vélbátaflota landsmanna við ný-
byggingar vélbáta erlendis, sem eru
að koma til landsins. — En jafn-
hliða vill sambandsþingið vekja at-
hygli Alþingis og ríkisstjórnar á
hver nauðsyn er á þvi, að gera ráð-
stafanir til þess að innlend skipa-
smíði verði aukin og þannig að
henni búið, að hún geti selt fiski-
báta byggða hér innanlands á hlið-
stæðu eða lægra verði heldur en
sams konar skip fást keypt erlendis.
Bendir sambandsþing F.F.S.Í. á
að megin-verðmismunurinn, sem nú
er á smíði fiskibáta innanlands og
erlendis stafi frá margvíslegum toll-
um og aukagjöldum á aðkeyptum
tækjum til skipanna.
Hafnarmál I.
19. þing F.F.S.Í. beinir þeirri ein-
dreignu ósk til hins háa Alþingis,
að á þingi því, er nú situr, verði
samþykkt, að ljúka eftirtöldum
höfnum í einu átaki, og taka til þess
erlent eða innlent lán eftir þvi sem
þörf krefur. Hafnirnar eru: Rif und-
ir Jökli, Patrekshöfn, Skagaströnd,
Húsavík.
Hafnarmál H.
19. þing F.F.S.Í. beinir þeirri ósk
til hins háa Alþlngis, að tillaga sú,
er fram kom á hinu háa Alþingi árið
1957, flutt af Ásg. Sigurðssyni, sem
rannsókn á nokkrum ákveðnum
hafnarstæðum, verði tekin til nýrr-
ar athugunar og samþykkt. En þessi
ákveðnu hafnarstæði, sem um getur
í tillögunni eru: Papaós, Njarðvík
við Borgarfjörð eystra, Núpsf jörður
(lónið þar inn af), Eiðisvatn við Eið-
iswík á Langanesi, Fjallahöfn,
Höfðavatn við Þórðarhöfða í Skaga-
firði.
Um vitamál.
Nítjánda þing F.F.S.Í. beinir
þeim eindregnu tilmælum til vita-
málastjóra, að á Norðurlandi verði
sem fyrst hafinn undirbúningur að
vitabyggingum og öðrum fram-
kvæmdum á eftirtöldum stöðum,
auk þess sem tekið er fram í áður-
nefndum áætlunum:
1. Viti á Oddeyrartanga.
2. Viti á Gjögurtá austan Eyja-
fjarðar.
3. Viti á Rifsnesi á Skaga.
4. Ljósdufl á grunninu á Eyjaf.
5. Radarmerki á Kolbeinsey.
Auk þess á Suðurlandi er nauð-
synlegt að reisa vita á Geirfugla-
drang eða Eldey. Ennfremur verði
gerðar ráðstafanir til þess að gera
hættulausan dranginn, sem er milli
Eldeyjar og lands.
Vald skipaskoðunarstjóra.
Sambandsþing F.F.S.Í. samþykkir
að fela stjóm sambandsins, að fá
því til leiðar komið hjá viðkomandi
stjórnarvöldum, að vald skipaskoð-
unarstjóra ríkisins til frávika á
reglum og lögum um öryggi skipa
sé háð þvi, að umsagnar sé leitað
hjá stjórn Farmanna- og fiski-
mannasamb. íslands.
2. liður: Sambandsþing F.F.S.Í.
samþykkir að fela stjóm F.F.S.Í., að
skrifa landhelgisgæzlu ríkisins bréf
og æskja þess eindregið, að varð-
skipunum sé gert að skyldu, að
mæla upp og ákveða stöðu á bauj-
um fiskiskipa í þeim tilgangi að
leiðbeina um landhelgislínu, ef skip-
stjórnarmenn fiskiskipanna fara
þess á leit við yfirmenn varðskip-
anna.
88
VÍKINGUR