Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Blaðsíða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Blaðsíða 3
Uppdráttur aj leilarsvœðinu. — Litli krossinn suSur aj Halami'Hum sýnir staöinn, sem Egill Skallagrímsson var staddur á, þegar ofviSrinu slotaSi, en Egil rak lengra í veðrinu, en nokkurt annað skip, sem statt var á þessum slóSum, og meS hliSsjón aj þeirri ajdrijt var taliS líklegt, aS skipin myndu vera einhversstaSar innan tígullagaSa flatarins neSst á uppdrœttinum, sem táknar leitarsvœSi togaraflotans. Hafnarfirði í sams konar leiðangur. Leit þessi varð árangurslaus. En þegar hér var komið málum höfðu eigendur skipanna og aðrir útgerðarmenn tekið ákvörðun um að senda togaraflotann, eða þann hluta hans, sem var ferðafær, til þess, að leita að skipunum. Á sunnudags- morguninn snemma fóru 12 togarar frá Reykjavík, en 9 bættust í hópinn af Selvogsbanka, og höfðu þeir lagt af stað kvöldið áður til móts við hina, sem komu frá Reykjavík. AJlir togararnir hittust á mánudagsmorguninn 16. febrúar og röðuðu sér með ákveðnu millibili (3—4 mílum) á um 90 mílna vegalengd. Hafði áður verið reiknað út, eftir vindátt þeirri og veðurhæð, sem ver- ið hafði á svæði þessu síðan ofviðrið hófst, hvar helzt myndi að leita skipanna. (Sjá tígullagaða flötinn á uppdrættinum). Meðan á leitinni stóð, var stöðugt loftskeytasamband milli togaranna innbyrðis og við loftskeytastöðina í Reykjavík. Þann 20. febrúar að kvöldi komu margir af togur- unum úr leitinni heim aftur. Höfðu þeir einskis orðið vísari um afdrif skipanna, en alls hafði verið leitað á um 18 þús. fermílna svæði. VÍKINGUR Þriðja leitin og hin síðasta var hafin fjórum dög- um síðar. í henni tóku þátt f jórir togarar ásamt varð- skipinu Fyllu. Tveir af togurunum voru íslenzkir, Skúli Fógeti og Arinbjörn Hersir, en tveir voru brezk- ir, Ceresio og James Long. Leitað var að þessu sinni á miklu stærra svæði en áður, farið allt norður að hafísbrún og þaðan austur fyrir Horn. Þá var haldið vestur á bóginn og leitað vestanvert við svæði það, sem togararnir höfðu áður kannað. (Sjá uppdrátt- inn). Leitin stóð yfir í 12 daga og var alls farið yfir svæði, er nam um 60 þús. fermílum. Þegar leitinni var hætt, voru leitarskipin stödd um 300 sjómílur vestur af Reykjanesi. Veður var gott á öllu þessu tímabili og skyggni ágætt. En leitin varð árangurslaus. Hafið skilaði ekki aftur hinum dýrmæta ránsfeng sínum. í ofviðri því, sem fyrr var getið, strandaði vélbát- urinn Sólveig á Stafnesskerjum og létu 6 menn þar lífið. Alls fórust því í ofviðrinu, á fiskimiðum hér við land, 68 íslendingar og 6 Englendingar. Hátíðleg minningarathöfn var haldin um sjóslys þetta, í Reykjavík og Hafnarfirði, 10. marz. Og tun alt land var hinna föllnu minnst með 5 mínútna þögn. 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.