Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Blaðsíða 33
)
Fram aS þessu hefur Norska Veritas veriS til húsa á 8 stöSum í Osló. Myndin
sýnir fyrirhugaSa aSalbyggingu, sem er í smíSum og kosta á 20 milljónir
norskra króna.
uð hljómsveit, sem leikur hljóm-
hviðu norskrar hugvitsemi og
tækni.
Hallgr. Jónsson
*
Norska Veritas átti 100 ára
afmæli 15. sept. s.l. 1 því tilefni
hefur fyrirtækið gefið út mikið
rit um þróun siglinga og skipa-
smíða frá árinu 1864 til vorra
tíma.
Norska Veritas var stofnað af
norskum vátryggingafélögum og
síðar urðu svo norskir skipaeig-
endur aðilar að fyrirtækinu.
í upphafi var félagið stofnað
til að mynda smíðareglur fyrir
norsk skip, en smátt og smátt
hafa svo mörg erlend lönd látið
smíða skip sín eftir flokkunar-
kerfi Veritas.
Skip samtals 5.144.300 brúttó-
registertonn eru nú í smíðum
eftir flokkunarkerfi Veritas. Og
af öllum heimsflotanum eru rúm-
ar 12 milljónir tonna skipa
flokkaðar hjá norska Veritas.
Veritas er ekki vátryggingafé-
lag eða skrifstofa fyrir lestar-
merki skipa, heldur stofnun, sem
ákvarðar smíðareglur fyrir skip
og sér um á tæknifræðilegan
hátt að skipin séu smíðuð með
Hér er verkfrœíUngur á vegum Norska
Veritas að mæta þykkt stálplatna með'
ultrabylgjum.
fyrirfram ákveðinn styrkleika.
Starfsmenn félagsins fylgjast
svo með því, að skipið haldi
þessum styrkleika meðan skipið
er í förum. Á síðustu 10 til 15
árum hefur þetta eftirlit þróast
í mjög umfangsmikið vísinda-
legt rannsóknarstarf, og norska
Veritas er í dag ein stærsta
rannsóknarstöð Noregs.
Það er forstjóranum, Georg
Vedeler að þakka, að þróunin
hefur orðið á þennan hátt, en
hann var ráðinn að stofnuninni
árið 1951 og hafði þá áður í ára-
raðir verið prófessor við norska
tækniháskólann.
Síðan árið 1953 hefur Norska
Veritas notað 14,5 milljónir
norskra króna til rannsóknar-
starfa, og í Oslo einni vinna 80
hámenntaðir sérfræðingar að
rannsóknum fyrir félagið.
Rannsóknarstörfin hafa orðið
til þess að draga úr efnismagni
skipanna um leið og þau hafa
verið gerð sterkari. Á síðustu 5
árum hafa þessi störf getað
sparað 130.000 tonn af stáli, en
það samsvarar því að 160 mill-
jónir norskra króna hafa verið
sparaðar á þessu sviði.
Árið 1963 var hægt að smíða
80.000 lesta olíuskip með 18%
minni stálþunga heldur en var
eftir smíðareglum, sem voru ráð-
andi fyrir 10 árum og er þó ör-
yggisstuðull skipsins mun stærri.
Norska Veritas vinnur nú að
nýjum flokkunarreglum, sem
gera kleift að minnka enn stál-
þungann.
Eftir tímafrekar rannsóknir
hefur Veritas ákveðið að láta
smíða skipin úr stáli með meiri
styrkleika en áður, er það stál
með háa flotspennu.
Ákvörðunin um að leggjaflot-
spennuna til grundvallar við
styrkleikaútreikninga er nýtt og
er Norska Veritas fyrsta flokk-
unarfélagið í veröldinni, sem
tekur þennan hátt upp. Þegar á
árinu 1961 voru frumdrög gerð
að reglum fyrir svokallað ,,höj-
fast“ stál, en það er stál, sem
reiknað er út frá hærri þan-
stuðli.
Reglur þessar voru þó ekki
mikið notaðar vegna þess að
verðið á stáltegundunum, sem
æskilegar þóttu, var of hátt.
Nú ráða menn yfir stáli, sem
er mjög gott — svokallaðar
mikroblöndur. Þessar stálgerðir
hafa ágæta suðuhæfileika —
næstum jafngóða venjulegu
skipastáli, sem notað hefur ver-
VÍKINGUR
67