Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Page 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Page 6
FRÁSÖGN Nikuíásar Jónssonar, skipstjóra á b.v. Earl Haig Útdráttur úr daghók skipsins Nikulás Kr. Jónsson skipstjóri. Laugardaginn 7. febrúar. Togað um nóttina til kl. 6 um morguninn, 35 sjómílur norður af Kóp. Síðan stímað út á Hala. Þar norðaustan stormur. Ekkert aðhafst. Trollið bundið upp. Haldið upp í veðrið, fyrst með hægri ferð, en síðar smám saman bætt við meiri og meiri ferð, eftir því, sem veðurofsinn fer vax- andi. Notuð full ferð að lokum. Kl. 11 e.m. reið brotsjór yfir skipið, er braut niður loft- skeytastengurnar og sópaði fyrir borð öllu, sem lauslegt var ofan þilja, lifrartunnum (60 alls) og fiskikössum. Rúð- ur brotnuðu í brúnni. Sunnudagurinn 8. febr. Sami veðurofsinn og fyrr látlaus stórliríð og liörkufrost. Kl. 4 e. m. var ég staddur í herbergi mínu. Kom stýrimað- urinn þá niður til mín og sagði veðrið nú heldur vægara; myndi sennilega vera óhætt að gera tilraun til þess að leita lands. Fór ég þegar upp í brú, en var með naumindum kominn þangað, þegar hrikalegur brotsjór hóf sig skyndi- lega upp fyrir framan skipið. Haldið var upp í sjóinn svo vel sem unnt var, en rétt áður en hann reið yfir skipið, var vélin stöðvuð. Þó var krafturinn svo mikill á sjónum, að hann mölbraut ofan af brúnni allan efri hluta stýris- hússins, sem gerður var úr tré og svipti þilinu úr henni að aftan. Samtímis hratt liann skipinu svo harkalega aftur á bak, að stýrisstamminn snerist og lagðist stýrisfjöðrin fram á skrúfublöðin bakborðsmegin. — Skipið lagðist á stjómborðshliðina, þannig að sjór flæddi niður í það um lúgur á „keis.“ Kolin, saltið og fiskurinn hentist til í skip- inu, og voru menn sendir fram í lestina (gegnum „tunnel- inn“) til þess að lagfæra það. Skipið náðist fljótlega á réttan kjöl aftur, með því að taka áfram á vélinni, en ómögulegt var að hafa stjórn á því, því að stýrið var svo skakkt, að ekki var hægt að koma því miðskipa. Rak því skipið með öllu stjórnlaust, það sem cftir var dagsins, en án þess að fá veruleg áföll. Mánudaginn 9. febr. Látið reka sem fyrr, fyrir sjó og vindi til kl. 2 f. m. Þá nokkuð farið að lægja veðrið. Reynt var að halda til lands, en sú tilraun varð árangurslaus, þar sem aðeins var hægt að stýra skipinu til bakborða. Gerð var tilraun til þess að ráða bót á þessu moð því að setja út trollhlcra stjómborðsmegin, en það nægði ekki á móti stýrinu. Var því enn látið reka um stund. Sást þá skipsljós skammt í burtu og var neyðarrakettu skotið til þess að'vekja á okk- ur athygli. Kom skipið þegar á vettvang, en það var brezki togarinn St. Brelaid. Var óskað eftir að hann biði hjá okkur meðan tilraun yrði gerð til þess að lagfæra stýrið. Vegna sjógangsins reyndist það ómögulegt og vom þá ráð- stafanir gerðar til þess að aðkomutogarinn reyndi að draga okkur til lands. Togvírar hans voru dregnir yfir til okkar og einn liður af akkeriskeðju okkar lásaður við þá annars- vegar, en í hinn enda keðjunnar voru togvírar okkar festir, þannig að keðjan varð á milli víranna, til þess að draga úr mestu rykkjunum. Áður en skyggja tók um kvöldið sást til lands frá skip- unum og vorum við þá staddir norðarlega í miðri Breiðu- bugt. Var þá þegar breytt um stefnu og haldið í áttina til Patreksfjarðar. Veður var dágott, en þó voru vírarnir alltaf öðru hvoru að slitna. Þriðjudaginn 10. febr. Þegar komið var fyrir Bjarg tók aftur að livessa af NA. Kl. 12 á hádegi komum við loks til Patreksfjarðar við illan leik. Var þar lagzt fyrir akkeri og 5 liðum af koðju. Veður var slæmt, NA. stormur og liríð. Hér lýkur dagbókarútdrættinum. Eftir að lagzt liafði verið á Patreksfirði var farið að huga að ýmsu um borð í skipinu, sem gengið liafði úr skorðum. Var þar ófagurt um að litast. Báðir bátarnir höfðu losnað og lafði annar þeirra að hálfu leyti út af bátapallinum að framan. Báðir voru þeir fullir af ís og bátaþilfarið allt að útliti eins og samfelldur jökull. Loftnetið, sem var hringjanet, liafði vafizt utan um aftur-mastrið, sem var að ummáli eins og meðal-reykháfur. Allan miðvikudaginn var unnið að því að koma stýrinu í lag. Sendi útgerðarfélagið, sem var Hellyersbræður, þá með bækistöð í Hafnarfirði, einn af toguriun sínum, Cer- esio, til þess að fylgja okkur suður, því að báðir áttavitar okkar liöfðu farið fyrir borð um leið og brúna tók af skipinu. Þó að langt sé liðið síðan viðburður þessi gerðist, eru mér enn í minni þær móttökur, sem ég og skipshöfn mín fékk að þessu sinni hjá Ólafi Jóhannsyni konsúl og fjöl- skyldu hans á Patreksfirði. Þær mót.tökur komu sér vel, ])ví að flestir voriun við illa haldnir eftir liina erfiðu úti- vist. Vil ég því nota þetta tækifæri til að þakka þessar móttökur og þá vináttu, sem jafnan hefur mætt mér á hinu gestrisna lieimili þeirra. FRÁSÖGN Jóns Högnasonar) skipstjóra á b.v. Gulltopp Útdráttur úr dagbók skipsins Laugard. 7. febr. 1925. Verið á Halamiðum. Ilægviðri og nokkur snjókoma. Með birtu skellur á hvassviðri frá ANA. Kl. 2V2 e. md. hætt að toga, var þá komið livassviðri og mikill sjór. Skip- VÍKINGUR Jón Högnason. 40

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.