Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Síða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Síða 19
ÞaS var fyrir ekki alllöngu að frú nokkur spurði frægan stjörnufræðing kvíðafull, hvort hugsanlegt væri að kjamorkusprengja gæti sprengt jörð- ina í loft upp. — Hvað mn það, svaraði stjörnu- fræSingurinn og yppti öxlum. — Þér skuluð ekki halda að jörðin sé ein af stæm plánetuniun. — ★ — Sjúklingurinn, miðaldra maSur, var kominn á skurðarhorSiS. Rétt áður en svefngríman var sett fyrir vit hans, spurði hann lækninn hvað skurSurinn yrði langur. Læknir- inn spurSi hann hví hann spyrSi um það. — Jú, sjáið þér nú, læknir góður. Skurðurinn á konunni minni er 12 sentimetrar og skurSurinn á systur hennar 10 sentimetrar. Eg væri ySur þakklátur ef minn skurSur yrði eins langur og þeirra beggja til samans. Þá slippi maður loksins við að heyra þær tönglast sí og æ á þessum óttalcgu skurSum sínum! - ★ - — Eyrirlestur minn í kvöld, sagði sálfræSingurinn, fjallar um arfgenga geSbilun. — Ég vona að þú hafir verið svo háttvís aS bjóða ekki foreldrum þín- um. 1 Frívaktin Af þrem vinkomun giftust tvær með stuttu millibili. Þegar frá leið og sú þriSja giftist ekki, tóku þær að angra hana með ýmsum athugasemdum. Hún tók þessu með jafnaSargeSi, þar til eitt sinn að þær spurðu hana meS nokkurri meinfýsni! — Segðu okkur eins og er, liefurðu aldrei fengiS tækifæri til að ná þér í mann? Sú ógifta liorfSi á þær með hæðnis- svip. — ÞiS getið reynt að spyrja mennina ykkar. — ★ — Mikið himnaríki væri lífiS hér á jörSu, ef viS höguðum okkur eins gagnvart meðbræðrum okkar og hund- inum okkar. Leiðréttiríg. Hr. ritstjóri. í blaSi ySar stóð fyrir nokkru, aS brotist hefði veriS inn í Kjósinni og stolið 17000 krónum. Þetta er vægast sagt mjög ýkt. Það var aðeins stolið 1700 krónum. VirSingarfyllst, Þjófurinn. - ★ — Treystu ekki um of á framtíðina, liarmaðu aldrei liSna tíS. - ★ - Viff lifum í voninni. Brezkur skipamiSlari sendi um ára- mót einum af sínum beztu viðskipta- vinum í mörg ár eftirfarandi nýárs- kveðju: „Við óskum skipum yðar hæstu fanngjalda, — og að þau leggi ávallt úr höfn á réttiun tíma. Mættu þau einnig ná liöfn á tilsettum tíma. Þau gera þaS ekki, — en viS lifum í voninni!“ VÍKINGUR 53

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.