Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Qupperneq 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Qupperneq 20
Upphafsár vélvæðmgar í Vestmannaeyjum Siguröur Bjarnason. GuSjón Jónsson, Hlíöardal. Ólajur Jónsson, Yztaskála. Skuld II, 16,36 tonn. SmíSuS í Danmörku 1921. „FriSþjófur“ 13,50 tonn. SmíSaSur í Fœreyjum 1920. Sigurður Bj arnason, var fæddur að Stokkseyri 25. ágúst 1896. Foreldrar: Bjarni Jónas- son og Árnlaug Sveinsdóttir. Sigurður byrjaði ungur sjó- mennsku í verstöðvum sunnan- lands bæði á vélbátum og togur- um. Til Vestmannaeyja fór Sig- urður fyrst 1924 og var háseti á „Goðafoss“ hjá Árna Þórar- inssyni. 1927 byrjar Sigurður formennsku með m.b. „Gitjon“ og svo „Enok II,“ sem hann átti sjálfur og svo „Gullfoss“ og síð- ar „Snig.“ Eftir það fór Sigurð- ur úr Vestmannaeyjum og gerð- ist formaður í Faxaflóa og þar drukknaði Sigurður af m.b. Jóni Guðmundssyni, féll fyrir borð 31. júlí 1934. Sigurður var mesti hreysti- maður og aflamaður ágætur. Guðjón Jónsson, Hlíðardal, er fæddur að Steinum undir Eyja- fjöllum 5. des. 1899. Foreldrar: Jón Einarsson og Jóhanna Magnúsdóttir og hjá þeim ólst hann upp. Guðjón fór fyrst til Vest- mannaeyja 16 ára gamall til sjó- róðra og réri þar á ýmsum bát- um, t.d. „Nansen“ og „Höfrungi I,“ sem hann átti hlut í. For- mennsku byrjaði Guðjón 1930 með m.b. „Siggu.“ Eftir það er Guðjón með eftirtalda báta: ,.Hebron,“ „Gullfoss" og „Skuld“ fram á þennan dag. Síðustu 25 árin hefur Guðjón mestmegnis stundað dragnótaveiði og hefur hann verið einn heppnasti for- maður í Eyjum á það veiðarfæri. Jafnhliða hefur Guðjón verið stjórnsamur formaður. ólafur Jónsson, Yztaskála, er fæddur að Hvammi undir Eyja- fjöllum 21. sept. 1897. Foreldr- ar: Jón Auðunsson og Sigríður Ólafsdóttir. Ólafur fór ungur með foreldr- um sínum að Yztaskála og ólst þar upp. Strax og aldur leyfði fór Ólafur til sjóróðra í Vest- mannaeyjum og var þar fljót- lega vélamaður í „Unnur 111“ hjá Þorsteini í Laufási, en 1938 tók Ólafur við formennsku á Unni, því þá hætti Þorsteinn formennsku. — Síðar er Ólafur með eftirtalda báta: ,.Hjálpara,“ „Ástdísi“ og „Herjólf,“ eftir það hætti Ólafur formennsku og flutti norður á Hofsós og stund- ar sveitabúskap. Ólafur var góð- ur sjómaður og fjölhæfur mað- ur á allan hátt. 1 T 1 I 64 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.