Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Side 24
Núverandi stjórn Félags bryta. Taliö frá vinstri. Sitjandi: BöSvar Steinþórsson, jor-
maöur og Anton Líndal, gjaldkeri. Standandi: Frímann Guöjónsson, Guöjón Guöna-
son, ritari og ICári Halldórsson.
Félag bryta 10 ára
16. febrúar 1955 komu 16
brytar á farskipum saman til
fundar í Reykjavík, og stofnuðu
þar með sér félagsskap.
Tilgangur félagsins kom fram
í 2. gr. laga félagsins, sem sam-
þykktvoru á fundinum, oghljóð-
aði þannig, örlítið stytt.
„Tilgangur fclagsins cr:
a) að efla saintök og samvinnu
þeirra, scm lögskráðir eru scm
brytar á íslenzk farþega- farm-
og varðskip,
b) að vinna að aukinni menntun
og þjálfun þeirra manna, sein
við þessi störf fást,
c) að vinna að öðru leyti að
hverju því máli, sem horfir til
heilla fyrir stéttina.“
Myndun félagsskapar fyrir
bryta mun hafa átt sér langa
sögu meðal þeirra. Árið 1948,
þegar Matsveina- og veitinga-
58
þjónafélag Islands átti í kaup-
og kjarabaráttu við útgerðir far-
skipa, voru lagðar fram kröfur
um kaup og kjör bryta, en ekk-
ert varð úr þeim samningum þá,
og var þar fyrst og fremst um
að kenna, að naumur minnihluti
þáverandi bryta vildu ekki
standa saman um þau samtök,
er naumur meirihluti þáverandi
stéttarbræðra þeirra gerðu fórn-
fúsa tilraun til að mynda. —
Þannig fór um sjóferð þá.
1 tilefni þess, að um þessar
mundir eru liðin 10 ár síðan fé-
lagið var stofnað, átti Víkingur-
inn tal við þá menn, er sátu
fyrstu stjórn félagsins, en þeir
voru, Guðbjörn Guðjónsson, sem
var formaður, Konráð Guð-
mundsson ritari og Aðalsteinn
Guðjónsson gjaldkeri. — Sögðu
þeir, að um langan tíma hefðu
brytar mikið rætt um nauðsyn
þess, að slíkur félagsskapur yrði
stofnaður, en í janúarmánuði
1955 fóru matreiðslumenn og
framreiðslumenn í verkfall, er
stóð yfir í réttar 4 vikur. Vegna
þessa verkfalls, stöðvuðust mörg
skip, og þess vegna tókst það
mörgum brytum að vera sam-
tímis í Reykjavík, og var félag-
ið stofnað að Kaffi Höll, mið-
vikudaginn 16. febrúar 1955, og
hófst stofnfundurinn kl. 7 að
kvöldi, og var lokið um kl. 10,
en kl. 5 morguninn eftir tókust
samningar milli matreiðslu- og
framreiðslumanna og skipafélag-
anna, og leystist þá verkfallið,
og skipin fóru hvert af öðru úr
höfn, sum strax um morguninn,
Á þessu sést, að seinna gat
það ekki orðið, að koma þessari
félagsstofnun á.
í viðtalinu við fyrstu stjórnar-
menn félagsins, kom í ljós, að
Guðbjörn Guðjónsson hafði sett
stofnfundinn og stjórnað honum,
og er talið, að ef einhverjum
einum manni sé að þakka, að fé-
lagið hefði verið stofnað, þá sé
það Guðbjörn. Guðbjörn lagði á-
herzlu á nauðsyn þess, að brytar
stofnuðu með sér félagsskap.
Fundurinn samþykkti í einu
hljóði, að stofna félagið, og var
því gefið nafnið „FÉLAG
BRYTA.“ Á þessum sama fundi
voru samþykkt lög fyrir félagið,
og því kosin stjórn. Félagið varð
því 10 ára þriðjudaginn 16.
febrúar s.l.
Auk stjórnarmanna voru á
stofnfundinum þeir Geir Vil-
bogason, kosinn í varastjórn og
Helgi Gíslason endurskoðandi.
Fljótlega eftir stofnun félags-
ins var farið að vinna að ýms-
um hagsmunamálum er stéttina
varðaði. T.d. var hafinn undir-
búningur að gera kaup- og
kjarasamninga fyrir bryta, við
útgerðir farskipa, en til þess
tíma höfðu slíkir samningar
ekki verið til. Fyrstu kaup- og
kjarasamningar bryta voru und-
irritaðir árið 1957.
Félagið hefur látið öll mál til
sín taka, er þessari stétt til-
heyrði, og sér til stuðnings í
VÍKINGUR