Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Page 25
Karl Sigurðsson.
FormaSur áriS 1960.
starfi sínu, samþykkti félagið á
fundi 15. marz 1957, að gerast
aðili innan Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands.
í tilefni af 10 ára afmæli sínu,
afhenti það Matsveina- og veit-
ingaþjónaskólanum gjöf til
kaupa á kennslutækjum til skól-
ans.
Stjórn félagsins, er kosin var
á stofnfundi, var endurkjörin
næsta ár á eftir, nema Anton
Líndal var kosinn varastjórn-
andi. Sat þessi stjórn svo til árs-
ins 1960, eða í fimm ár. Anton
Líndal hefur lengst allra manna
starfað að stjórnarstörfum fyr-
ir félagið, hann hefur verið
gjaldkeri þess s.l. 5 ár og verið
varastjórnandi í 4 ár, eða sam-
tals 9 ár.
Á þessum 10 árum hafa 3
menn verið formenn félagsins, 2
menn verið gjaldkerar og 4
menn verið ritarar. Formenn
hafa verið Guðbjörn Guðjónsson
1955—1959. Karl Sigurðsson
1960 og núverandi formaður
Böðvar Steinþórsson síðan 1961.
Gjaldkerar hafa verið Aðalsteinn
Guðjónsson 1955—1959 og Ant-
on Líndal síðan 1960. Ritarar
hafa verið Konráð Guðmundsson
1955—1959, Aðalsteinn Guð-
jónsson 1960, Karl Sigurðsson
1961—1963 og Guðjón Guðna-
son síðan 1964.
Eins og fyrr segir er félagið
aðili að Farmanna- og fiski-
mannasambandi íslands, og er
fulltrúi þess í stjórn FFSÍ Böðv-
ar Steinþórsson og til vara Elís-
berg Pétursson. Einnig er félag-
ið aðili að Sjómannadagsráði,
og fulltrúar þess þar eru þeir
Aðalsteinn Guðjónsson og Böðv-
ar Steinþórsson og til vara Elís-
berg Pétursson og Halldór Viðar
Pétursson.
Eins og fram kemur hér að
framan, er núverandi stjórn fé-
lagsins skipuð þessum mönnum:
Minningarorð
Frh. af bls. 55
hjálmsdóttir systurdóttir Sigur-
finnu. Öll eru þau búsett í Vest-
mannaeyjum.
Heimili þeirra Stefáns og Sig-
urfinnu var rómað fyrir gest-
risni og glaðværð og var þangað
gott að koma.
Jafnframt því, að Stefán var
einn helzti sjósóknari og útgerð-
armaður sinnar tíðar, ráku þau
hjón mikinn búskap, miðað við
stærð búa í Vestmannaeyjum, á
jörðinni í Gerði.
Utan róðra stóð Stefán sjálf-
ur í miklum jarðabótum, og stór-
bætti og jók jörðina í Gerði.
Stefán Guðlaugsson var fram-
sýnn maður og stórhuga um
fleira en útgerð og búskap, hann
studdi með ráð og dáð öll helztu
framfaramál sjómanna í Vest-
mannaeyjum.
Stefán lagði m.a. drjúgan
skerf til kaupa á björgunar- og
varðskipinu „ÞÓR“ til Eyja ár-
ið 1919.
Menntunarmál sjómanna voru
honum ávallt efst í huga og við
setningu Stýrimannaskólans í
Vestmannaeyjum s.l. haust, var
afhent sparisjóðsbók með rúm-
um 22 þús. kr. ásamt vöxtum
frá Stefáni og Sigurfinnu, en ár-
ið 1962 höfðu þau hjónin gefið
20.000 kr. til væntanlegs Stýri-
mannaskóla í Vestmannaeyjum.
Var þessi upphæð stofnupp-
hæð tækjasjóðs skólans.
Formaður er Böðvar Steinþórs-
son, en hann hefur áður verið í
stjórn Sambands matreiðslu- og
framreiðslumanna í 13 ár, þar
af í 7 ár sem formaður. Guðjón
Guðnason er ritari og Anton
Líndal gjaldkeri. Varastjórn-
endur eru Kári Halldórsson og
Frímann Guðjónsson.
í Félagi bryta eru nú, allir
starfandi brytar á farþega-
flutninga- og varðskipum, sem
til slíkra starfa hafa réttindi
samkvæmt lögum.
böst.
Hefur enginn einstaklingur
sýnt þessu framfaramáli sjó-
manna eins mikinn áhuga og
Stefán Guðlaugsson.
Fyrir störf sín hlaut Stefán
riddarakross hinnar íslenzku
fálkaorðu fyrir nokkrum árum.
Hinn 24. janúar s.l. gerði Skip-
stjóra- og Stýrimannafélagið
„VERÐANDI“ Stefán að heið-
ursfélaga sínum, var það að til-
lögu allra fremstu formanna í
Vestmannaeyjum, og eins og
segir í heiðursskjali, „vegna nær
hálfrar aldar farsællar skip-
stjórnar og stuðnings við fram-
faramálefni sjómannastéttarinn-
ar fyrr og síðar.“
Stefán var vissulega vel að
þessum heiðri kominn.
Útför Stefáns var gerð frá
Landakirkju, laugardaginn 20.
febrúar s.l. að viðstöddu fjöl-
menni.
Kvöddu þar Vestmannaeying-
ar einn sinna beztu sona, sem
bar ávallt hag og farsæld heima-
byggðar fyrir brjósti.
í fegursta veðri vetrarins,
logni og skyni síðdegissólar, var
hinn aldni sjómaður lagður til
hvílu í nýjum grafreiti í kirkju-
garði Landakirkju, örskammt
frá fæðingarstað sínum, þaðan
sem er fegurst útsýn yfir byggð-
ina og höfnina.
Minning góðs sjómanns og
framfaramanns mun lifa.
Honum fylgir virðing og þakk-
læti eftirkomenda.
G.Á.E.
VÍKINGUR
59