Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Qupperneq 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Qupperneq 26
IJr fundargjörð Öldunnar Guðmundur H, Oddsson tók saman Fundur, 31. janúar 1900. 1. Vörpumálið: Bjami Sæmundsson upplýsti, að varpa 50 faðma á lengd og 5 faðma á dýpt, fengist fyrir kr. 500.oo og var samþykkt að kaupa hana. 2. Hannes Hafliðason skýrði frá því, að Verzlunarmannafélagið, Stú- dentafélagið og Reykjavíkurklúbh- urinn hefðu í Iiyggju að koma sér upp fundarhúsi, og bjóða þau Old- unni þátttöku. Málið mikið rætt. Síðan var Þorsteinn Þorsteinsson skipaður til að athuga þetta mál. 3. Tillaga frá Ilannesi Hafliðasyni. „Félagið Aldan samþykkir að aug- lýsa í einhverju blaði, að það vilji framvegis útvega útgerðarmönnum kringum landið formenn á skip sín.“ Fundur 17. október 1900. 1. Lagður fram 10 kr. reikningur fyr- ir fyrir blómsveig á leiði M.F. Bjarnasonar. Rætt tun að reisa lion- um minnisvarða. 2. Vitamál. Rædd og frestað til næsta fundar. 3. Hannes Hafliðason. Að leita sam- vinnu við dönsk skipstjórafélög, og fara þess á leit við Alþingi, að efnilcgir sjómenn verði styrktir til utanferða til frekari lærdóms. Fundur, 31. október 1900. 1. Álitið að félagið Aldan ætti ekki að reisa Markúsi minnisvarða, en að þeir félagsmenn, er það vildu, gætu gert það ásamt öðrum, svo sem útgerðarmönnum og fl. velunn- urum Markúsar. 2. Vitamálin. Samþykkt að kjósa 3ja manna nefnd til að undirbúa bæna- Markús Bjarnason, skólastjóri. skrá og leggja liana fram til undir- skriftar í vetur. 3. Umræður miklar um skýrslur þær, er landsstjóri heimtar af skipstjór- um. — Samþykkt að borðleggja málið. Fundur, 14. nóvember 1900. 1. Sölvi Víglundsson ræddi um nauð- syn þess, að félagið ætti fána. 2. Rætt um eflingu styrktarsjóðsins. 3. Formaður taldi æskilegt, að lmldið yrði jólatré fyrir börn félags- manna. Samþykkt að fela for- manni athugun á því. Fundur, 28. nóvember 1900. 1. Samþykkt að félagið eignist fána. 2. Samþykkt að reyna að komast í kynni einnig við norsk skipstjóra- félög, og kaupa fyrir félagið norska og danska „Sjöfarstidende." 3. Bárufélagið býður Öldunni kaup á hálfri húseign sinni við Vonar- stræti og í það kosin 5 manna nefnd. Fundur, 12 .desember 1900. 1. Neitað að vera með um kaup á % Báruhúsinu. Meðlimir Stýrimanna- skólans liafa stofnað skólafélagið „Fram.“ 2. Samkvæmt beiðni bæjarstjórnar um að tilnefna 1 mann í undirbúnings- nefnd (Aldamótaviðhafna), var formaður kosinn samhljóða. Aðalfundur, 9. janúar 1901. Mættir á fundinn 37 félagar. Styrktarsjóður kr. 3.373.59. Formaður Þorsteinn Þorsteinsson, ritari Jafet Ólafsson, gjaldkeri Finnur Finnsson. 1. Samþykkt að styrkja Aldamóta- haldið með kr. 30.oo. Fundur, 23. janúar 1901. 1. Send álitsgjörð til Alþingis um ný- byggingu vita. 2. Lesinn upp samþykktur reikningur yfir ádráttarvörpu félagsmanna. Fundur, 13. febrúar 1901. Mættir voru á fundinum Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri og Helgi Iíelgason frá Útgerðarmannafélaginu. Tryggvi kvað það vera erindi þeirra á fund að fá liðsinni Óldufé- lagsins, til þess að bæta og vanda sem mest vcrkun á saltfiski, einkum um borð í fiskiskipum. Hann kvað það mjög sorglegt, að saltfiskur frá verzl- unum við Faxaflóa væri að rýrna í á- liti meðal kaupmanna erlendis, og væri því ekki vanþörf að ráða bót á því hið fyrsta. Miklar umræður og VÍKINGUR 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.