Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Síða 28
r
j^rá
Pjarstýring- véla í skipuni er nft vííia notutS, og vertSur
algengari nicíS íiri Itverju. Hinsvesa** er sjíilfvirkni atSal-
véla enn íi tilraunastis'i* l*aíí mál er ]»ó vltSa á dagskrá me'ð-
ai sigliiigaltjðlianna, og ifröðlegrt að kynnast tillösum, sem
uppi eru um ]ȇ liluti.
Eftirfaraiuli grein ér iiusleiðinsar blaöamanns um mót,
sem haldið var á vegnrn enska vélstjórasambandsins fyrir
nokkrií, og skoðanir, seni þar liafa verið rœddar.
Hails'r, Jðnsson.
Blaðamaður
Reynsla undanfarinna ára hef-
ir fært mönnum heim sanninn
um nauðsyn þess að hækka stöðu
vélstjóranna á sjónum, það er,
meta meira starf þeirra en nú er
gert. Til þess að mæta stöðugri
vöntun réttindamanna á skipin,
hefir Flutningamálaráðuneytið
orðið að veita vélstjórum undan-
þágur frá núgildandi lögum, og
fyrir nokkru voru fram bornar
till. um breytingar á lögunum í
þeim tilgangi að sjá ákveðnum
skipafélögum fyrir nægilegu
vélaliði.
Það má nú öllum ljóst vera,
að verði menntun skipavélstjóra
í Bretlandi ekki tekin hið bráð-
asta til athugunar og umbóta
verða brezkir skipaeigendur að
gera annað tveggja, að setja ein-
faldari vélbúnað á skip sín, eða
taka sjálfir að sér uppeldi vél-
stjóra sinna, og sjá þeim fyrir
viðhlýtandi menntun og þjálfun.
Með fáum undantekningum,
eru ný verzlunarskip nú búin afl-
miklum aðalvélum, sem, ef þeirra
er gætt af þekkingu og kost-
gæfni, hafa skilyrði til þess að
gefa eigendum sínum arð, sem
réttlætir bæði kostnað þeirra og
stærð.
Til þess að ná fullum afköst-
um og til aukins öryggis, treysta
menn nú meira og meira á sjálf-
virk tæki og fjarstýringu vél-
anna. Að öðrum kosti verður að
koma fyrir mælitækjum á mörg-
um stöðum í vélarúminu, eins og
nú er gert, þar sem gæzlumenn
lesa á þeim hitastig, þrýsting o.
s.frv.
Um það, hve framför og á-
vinningur er mikill við fjarstýr-
ingu og sjálfvirkni vélanna, flutti
Captain Sermier, aðstoðarmaður
hjá Shell Maritime Company,
greinargott erindi á móti hjá
The Institute of Marine Engin-
eer þ. 4. og 5. maí s.l. Nefndi
hann erindið „The training and
qualifications of Seagoing Mar-
ine Engineers,“ kalla mætti það:
Menntun og hæfni skipavél-
stjóra, á íslenzku.
Erindi Captain Sermiers var
eitt af 7, sem flutt voru á mót-
inu, fjölluðu hin erindin um
kennsluaðferðir, menntun og
hæfni vélstjóra í Bretlandi, Nor-
egi, Svíþjóð, Ítalíu, Þýzkalandi
og Hotlandi. Nokkur hluti af er-
indi Captain Sermier fjallaði um
menntun vélstjóra í Frakklandi.
Nokkur meiriháttar útgerðarfé-
lög í Frakklandi hafa gengist
fyrir gagngerðri rannsókn á
þörfum flotans með hliðsjón af
því, að vélar verði í framtíðinni
sjálfvirkar og fjarstýrðar. Það
er og talið eðlileg þróun, á þessu
sviði að stjórntæki vélanna verði
staðsett á einum stað, þ.e. á
stjórnpalli. — Verði þróunin á
þann veg að öll stjórntæki verði
staðsett á stjórnpalli, leiðir af
því, að hin hefðbundna skipting
áhafnarinnar í þilfars- og véla-
lið á ekki lengur við. Það má
gera ráð fyrir að varðmenn, fá-
ir talsins, verði staðsettir á
þeirri miðstöð. Viðhalds og við-
gerðafólk, þ.e. bæði yfirmenn og
undirgefnir, verða til eftirlits og
tilfallandi viðgerða. Menn úr
þeim flokki mundu og leysa af á
stjórnpalli ef með þyrfti. — Þá
mundu þeir taka að sér „hand-
stjórn“ á tækjunum, ef fjarstýr-
ing og sjálfvirkni þeirra gengi
úr skorðum.
í erindi sínu lýsir Captain
Sermier ofangreindu fyrirkomu-
lagi mjög nákvæmlega og niður-
staða hans verður á þá leið, að
skipstjórinn verði þá í rauninni
stjórnandi tveggja deilda, þ.e.
stjórnardeild og viðhaldsdeild.
Meiri hluti skipaeigenda svo
og vélstjórar, eru þeirrar skoð-
unar, að það sé einber skamm-
sýni að standa í þeirri meiningu
að fjarstýristæki og sjálfvirkni
séu eingöngu til þess að geta
fækkað áhöfninni og sparað
launagreiðslur. — Kostirnir við
sjálfvirkni og fjarstýringu eru
fólgnir í eftirfarandi atriðum:
1. Auknu öryggi, sem fæst í
því, að tækin eru sífellt á
verði, sýna á hverri stundu
ástand vélarinnar.
Vélstjóri á verSi í hljóSeinangruSum klefa. — Hér hejur hann
öll mcelitœkin á einum staS og yjirsýn yjir vélbúnaSinn og
fjarstýringu á honum. Hér er um 14000 hestajla orku aS rœSa.
62
VÍKINGUR