Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Page 29
2. Árangurinn af (1) verður betri nýting, þ.e. meiri af- köst, og minna viðhald. Það er sjaldgæft að vélahlutar bili skyndilega, og að mæli- tæki hafi ekki sýnt aðdrag- anda að biluninni. Stöðugt eftirlit með mælum, sem sýna ástand vélanna á hverri stundu, tryggir að hægt sé í tíma að koma við varúðar- ráðstöfunum. 3. Aukin nýtni vegna jafnara álags kemur fram við notkun sjálfvirku tækjanna, og sér- staklega skilgreinda stjórn- unar-áætlun er hægt að skrá í minni reikniheila. Ein merkilegasta þróunin, sem orðið hefir, að dómi Capt. Sermiers, er það, að svo að segja viðskiptaleg ábyrgð hefir verið létt af yfirmönnunum, og gerir það, að embætti þeirra verða síður eftirsóknarverð. Séu þeir nú sviftir enn meiri ábyrgð í starfi, verður það stritvinnan einber á færibands máta, og færri tækifæri til afslöppunar. Af þessum ástæðum verður brýn þörf fyrir nýja, það er, aukna þjálfun yfirmanna. Þjálf- un, sem verður eins fyrir alla, þannig að allir nái sama mennt- unarstigi. Þessi tvennskonar em- bætti, við varðstöðu og viðhald, eru undir eftirliti annarra yfir- manna, en þar verður ætlast til að þeir meðhöndli verkfæri, svo sem rennibekki, suðutæki eða þess háttar, verða þeir að hafa undir sinni stjórn æft starfslið og sérhæfða handverksmenn. Kennsla fyrir framtíðar yfir- menn á skipum verður að vera á þann veg skipulögð, að haft sé í huga, að á þeim verði mest megnis ungir menn, það verður að auðvelda þeim að geta snúið aftur til hliðstæðrar landvinnu um 40 ára aldur. Kennslan verð- ur að fela í sér tryggingu fyrir því, að yfirmenn af skipunum eigi auðveldan aðgang að starfi í landi við þeirra hæfi. Og ef rekstur vélanna fer fr’am á svip- aðan hátt og tilsvarandi fyrir- tæki í landi, eins og Captain VÍKINGUR Sermier hefir bent á, mundi starfsliðið, sem hér á hlut að máli, komast að raun um að bæði menntun þess og reynsla kemur þeim að miklu gagni við landstörfin. Með því að það mundi þurfa um tíu ár til þess að breyta Sjónvarp er notaS í vaxandi mœli til aS lylgjast meS vinnu og tœkjum á þilfari og vél nýrra skipa meö aukinni sjálf- virkni — Myndin sýnir sjónvarpsskerm á stjórnpalli. kennslutilhögun og koma upp yfirmannaliði, er fært væri um að taka að sér stjórn þeirra starfsdeilda, sem hér um ræðir, er mælt með bráðab. ráðstöfun- um, sem yrðu á þann veg, að völdum yfirmönnum væri gefinn kostur á þjálfun, er gerði þá færa um að taka að sér stjórn á nýjum skipum, sem nú eru að komast í gagnið. Það sem nú er undirbúið 1 Frakklandi, verður síðar endur- tekið í útvegsmálum helztu sigl- ingaþjóða. Er því nauðsynlegt að þeir, sem það mál skiptir, líti raunsæjum augum á þau úr- lausnarefni, sem um er að ræða. Sé það ekki gjört og nauðsyn- legar breytingar á menntun vél- stjóraefna látin lönd og leið, er hætt við að hlutur þeirra þjóða í ,,kökunni,“ — (the shipping cake), minnki það mikið, að ein- ungis ríflegur ríkisstyrkur getur haldið í þeim lífinu.“ Eftir Shipbuilding and Shipping Record. * Sumarnótt á veiðivatni Frh. af bls. 43 Ég lærði mikið af Jóni félaga mínum þessa nótt við Heiðar- vatn. Hann var svo kunnugur við vatnið og þekkti glögg deili á öllu er að veiðinni laut. Þessi nótt og aðrar slíkar eru tengdar mínum beztu minningum af lið- inni ævi. „Dalurinn“ er svo und- ur kyrrlátur og fagur á björtum vornóttum, að það er heillandi að dvelja þar við veiðiföng og það jafnvel þótt að veiðin sé eitthvað minni en tveir hest- burðir af spikfeitri vatnableikju. Á fögrum vor- og sumarnótt- um í Heiðardal hefir orðið til þetta kvæði er ég læt hér fylgja með sem táknræna mynd aí Dalnum fagra. 1 Heiðardalnum. Fjallakyrrð í faðmi þínum fögnuð veitir ungri sál. Heiðursbyggð í huga mínum hlíðar vermir sólarbál. Svanir fljúga á sumarkveldi syngjandi um himinlind þar er fegurst vorsins veldi vegleg fjöllin, tignarmynd. Þar er „Fossinn“ hreini, hvíti hátt af bjargi steypir sér, þótt hann ennþá enginn nýti orkan jafnan föl er þér. Áin liðast ofan í Dalinn urriðinn í hyljum býr faðminn strýkur fjalla svalinn fegurð þín er ævintýr. Skot í næturskjóli Frh. af bls. 51 Skipstjórinn greip um fram- lappirnar á skipshvolpinum og fleygði honum fyrir borð. Þegar Finnur skipstjóri gekk aftur til káetu sinnar, gizkaði hann á, að E.s. „HAFDÍSIN“ væri stödd beint út af Norð- fjarðarnípunni. 63

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.