Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Síða 34
Fylgst meS aS smíöareglur séu haldnar
í nýjum skipum ejtir klassa Veritas.
ið til þessa. Þessi nýja stálteg-
und springur síður en þær fyrri.
Norska Veritas hefur á seinni
árum fengizt við rannsóknir á
mörgum öðrum sviðum, t.d. hef-
ur verið unnið að smíðareglum
fyrir kjarnorkuskip og mikið
gert til að verja skip fyrir eldi.
Þeir mörgu skipabrunar og
sprengingar um borð hafa und-
irstrikað nauðsyn þess að auka
allar hugsanlegar varnir gegn
þeim. Norska Veritas hefur því
komið sér upp sérstakri öryggis-
stofnun, sem á að sinna öryggis-
ráðstöfunum gegn sprengingar-
hættu, eitrun og bruna um borð
í skipum.
Ríkjandi ástand í dagerþað,að
brunar, sprengingar í lestum og
vélarúmum orsaka meira mann-
tjón og meira eignatjón heldur
en nokkurntíma vöntun á styrk-
leika skipanna.
Mörg ný eldfim og sprengju-
gjörn efni eru flutt í stöðugt
stærri mæli í sérstökum skipum.
Flutningar á kolefnasamböndum
við lágt, hátt eða normalt hita-
stig, fljótandi brennisteinn o.fl.
hafa skapað ný vandamál.
Með það fyrir augum að veita
meira öryggi, hefur Veritas nú
gert þá kröfu að sérhvert olíu-
flutningaskip skuli auk venju-
legra slökkvitækja einnig hafa
um borð froðuslökkvitækjaút-
búnað. — Fram að þessu hafa
kröfurnar aðeins verið fyrir
slöngur fyrir vatn til að slökkva
eld á tankþilfarinu og það er
ekki til mikils gagns við olíueld.
Með hreyfanlegu froðuslökkvi-
tæki verður árangurinn miklu
meiri.
í samvinnu við Veritas hafa
nú Svíar fyrirskipað slík tæki
um borð í öllum sænskum olíu-
flutningaskipum, án tillits til
þeirra flokkunarfélaga sém skip-
in eru í.
Norska Veritas hefur tekið í
þjónustu sína rafeindaheila, sýn-
ir það fremur öðru hversu fé-
lagið fylgist vel með á tækni-
sviðinu. Með rafeindaheilanum
hefur þegar sparast mikil vinna.
Heilinn reiknar út viðfangsefni
á örstuttum tíma, sem sjö verk-
fræðingar afkasta á 20 dögum.
Rafeindaheili Veritas stendur
skipasmíðafélögum opinn til af-
nota ef þau vilja á fljótan hátt
fá sem bezt leyst úr einhverjum
stærðfræðilegum viðfangsefnum.
í ráði er að veita einnig öðrum
greinum iðnaðarins sams konar
þjónustu.
Hjá Norska Veritas starfa nú
600 menn og af þeim eru 450
háskólamenntaðir verkfræðingar.
Auk fyrirtækja sinna í Noregi
hefur félagið 256 bækistöðvar
víða um heim og eru starfs-
menn félagsins erlendis fleiri en
Eftirlit Veritas á skrúfubúnaSi.
starfsmenn norsku utanríkis-
þjónustunnar á erlendum vett-
vangi.
Leysir tæknistofnun . . .
Frh. af bls. 35
lialda fyrri kjörum mcS minni fyrir-
höfn og auka síðan afraksturinn.
Hins vegar tel ég óeðlilegt að gefa
ekki eftir tollinn í þessu tilviki, því
að ef árangur verður af, sem útgerð-
armenn telja, koma peningar fljótt
aftur í ríkiskassann gegnum skatta-
álögur á auknar krónur útgerðar og
skipsáhafnar.
Dæmi þetta sýnir ljóslega, að mikil
þörf er fyrir tæknistofnun í þágu
sjávarútvegsins.
Slík stofnun á að hafa það hlutverk
að fylgjast með nýjungum í veiði-
tækni og gera tilraunir á því sviði.
Útgerðarmenn geta svo notfært sér
árangur slíkra rannsókna. Með því
yrði miklu fé bjargað frá að fara í
súginn. Og menn, sem eiga að vinna
saman, hætta kannske að stangast á
yfir samningaborðið út af skiptingu
á því sem aflast. Ö. S.
-K
llleð regnhlíf
Frh. af bls. 65
regnhlífin sameinaði okkur alla í
þessum sérkennilega, en takmark-
aða heimi.
Nú fannst mér komið rétta
augnablikið til að spenna regnhlíf-
ina niður stundarkorn. Þegar ég
spennti hana upp aftur festist einn
teinninn í hringnum, sem heldur
teininum föstum, þegar regnhlífin
er samanbrotin. Við það brotnaði
teinninn. Nú var ég orðinn tak-
markaður regnhlífanotandi, ekki
nema tæpur þriðjungur af skermin-
um þaninn. — Ég reyndi að snúa
regnhlífinni þannig, að ég héldi að
minnsta kosti virðingu minni að
framan. Bráðlega gafst ég þó upp,
laumaði regnhlífinni í ruslafötu.
(Ég gæti bætt Dick hana með
whiskíflösku, seinna).
Mér létti, skyldu fjötramir vera
byrjaðir að losna af mér. Nei, ég
stóð með báða fætur á malbikinu
og þær báru mig að næsta neðan-
jarðarlestaropi ....
Þormóður Hjörvar.
VlKINGUR
68