Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1973, Side 36
1. tímabil. tog kg/togtíma
Vigri 2 400
togahar 8 1000
aðrir 11 530
Afli var heldur misjafn og sam-
anburður því ekki rnjög góður.
2. tímabil. tog kg/togtíma
Vigri 2 900
togarar 10 760
aðrir 7 590
Afli var frekar jafn og því um
sæmilegan samanburð að ræða.
Þó eru togin svo fá, að tilviljun
ræður miklu.
3. tímabil. tog kg/togtíma
Vigri 4 710
togarar 4 500
aðrir 2 600
Afli var nokkuð jafn en togin
fá.
Þá má geta þess, að á einum
stað fékkst allgóður samanburð-
ur við önnur skip með sams konar
trolli og þau nota. Afli reyndist
mjög áþekkur hjá öllum.
Loks má geta þess, að í lok
ferðarinnar var fiskað einskipa
á Jökultungu bæði með tilrauna-
trollinu og Marz-trolli. Afli var
nokkuð misjafn og ekki hægt að
bera trollin saman á þennan hátt.
Þá kom í ljós, að tilraunatrollið
getur reynzt vel á karfa, enda
þótt botnlagið takmarki mjög
notagildi þess.
Úr fyrri ferðinni var landað
alls 254.9 tn. Miðað við tíma var
því um ágætan afla að ræða ekki
sízt, ef tillit er tekið til þess, að
um allmiklar tafir var að ræða,
enda náði Vigri aðeins einn sól-
arhring lítið eitt meiri togtíma
en . togararnir að meðaltali. Ef
tímatapið dagana 13.4.—20.4 er
metið til afla og gengið út frá
óbreyttum afla á togtíma á hverj -
um degi er um að ræða 20.3 tn,
en þá er einungis gert ráð fyrir
sama togtíma og togararnir náðu
að meðaltali. Skuttogari ætti þó
að ná talsvert meiri togtíma en
síðuskipin (flest samanburðar-
234
skipin), ekki sízt í jafn góðum
aflabrögðum og hér var um að
ræða. Tvo síðustu dagana var
mesta aflavonin á slæmum tog-
botni, þar sem rétt hefði verið
við venjulegar veiðar að fiska
með Marz-trolli. Hefði svo verið
gert og meðalafli náðst hefði
heildaraflinn aukizt um 20.6 tn
eða samtals um 40.9 tn.
3. 3. Túlkun.
Eins og fram hefur komið er
tilraunatrollið ekki líklegt til að
skila góðum árangri a. m. k. ekki
að staðaldri á slæmum togbotni.
Flest bendir þó til þess, að mun
meira megi fá í slíka gerð trolla
á sæmilegum togbotni einkum
þegar fiskur er laus frá. Að dómi
skipstjórans á Vigra, Hans Sig-
urjónssonar, er trollið líklegt til
að henta vel á mestum hluta Vest-
fjarðamiða svo og á ýmsum ufsa-
bleyðum. I tilraununum kom enn-
fremur fram, að trollið má nota
víðast suðvestanlands. Við aðra
landshluta eru þau svæði, sem lík-
lega mætti nota troilið á, minni.
Og enn er rétt að ítreka, að mjög
hagkvæmt væri, ef hægt væri að
notast við 60 feta bobbinga-
lengju. Hitt er þó rétt að taka
fram, að unnt er að ganga betur
frá trollinu þannig að það rifni
síður. Þar að lútandi má nefna
minna troll af svipaðri gerð en
sterklegar útbúið sem reynt var
á bv. Maí í fyrra, reyndist mun
síður viðkvæmt en þau troll, sem
prófuð voru á Vigra. Áður en
lengra er haldið er rétt að taka
fram, að Hans Sigurjónsson,
skipstjóri, hefur lesið framan-
skráð, og hefur ekkert við inni-
haldið að athuga.
U. Þakkarfjjörö.
Þar sem Hafrannsóknarstofn-
unin hafði ekki fjárhagslegt bol-
magn til þess að standa undir
aflatryggingu til útgerðar til-
raunaskips, varð að leita á önnur
og fengsælli mið. Lá nokkuð beint
við að leita til sjávarútvegsráð-
herra, Lúðvíks Jósepssonar. Ráð-
herra tók málinu mjög vel og fól
ráðuneytisstjóra sínum, Jóni
Arnalds, að hafa milligöngu um
fjáröflun. Var síðan knúið dyra
hjá Fiskimálasjóði og lukust þær
upp greiðlega. Öllum þessum
mönnum eru hér með þakkir
færðar fyrir skjót handbrögð,
skilning, velvilja og góðan styrk.
Skipstjóra og skipshöfn á
Vigra er hér með einlæglega
þakkað fyrir áhuga þeirra á til-
rauninni og fyrir öll þau auka-
störf, sem tilrauninni voru sam-
fara og tæpast var greitt fyrir að
verðleikum. Samstarfsmanni mín-
um Sigurði Árnasyni er af heil-
um hug þakkað fyrir ódrepandi
áhuga og fádæma dugnað og út-
sjónarsemi. Þá er þeim manni
þakkað, sem öðrum fremur bar
hita og þunga tilraunarinnar, en
það er að sjálfsögðu Hans Sigur-
jónsson, skipstjóri. Hans hafði
takmarkalausan áhuga á því að
prófa tilraunatrollin við sem
flestar aðstæður til þess að fá
sem gleggst úr því skorið, hvert
gagn togararnir gætu haft af
þessu veiðarfæri. Sýndi Hans
mikla útsjónarsemi og var fljót-
ur að sjá á hvern hátt veiðarfær-
ið skilaði beztum árangri. Það
sama gilti einnig fyrir Eðvald
Eyjólfsson, 1. stýrimann. Allri
skipshöfninni er að síðustu þakk-
að fyrir einstaklega góða við-
kynningu.
Til þess að fá aflasamanburð
við önnur togskip þurfti að þaul-
spyrja skipstjóra og stýrimenn
þessara skipa um aflamagn, tog-
tíma, stað og dýpi o. s. frv. Var
kvabbi þessu vel tekið og af þol-
inmæði. Er þessum mönnum hér
með þakkað fyrir upplýsingar
þessar og ýmsar aðrar svo og
fyrir áhuga þeirra og ábending-
ar.
■>. Heimildarrit.
Við ritsmíð bessa var stuðzt
við eitt heimildarrit, sem er:
Steinberg, R. 1971: Vei'suche
mit hochstauenden Grundschlepp-
netzen: Informationen fúr die
Fischwirtschaft, 18. árg. Nr. 6:
178—187.
VlKINGUR