Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Side 36
íslenzkir sjómenn hafa nokkru
sinni fengið, ef þeir fengju að
sitja einir að fiskveiðum á öllum
Islandsmiðum. í þessu sambandi
vil ég aðeins drepa á þá stefnu,
að þrengja sífellt veiðisvæði tog-
aranna, eins og fram hefur kom-
ið hjá ýmsum sérhagsmunahóp-
um úti um landsbyggðina, sem
gleyma þá þjóðarhag en láta
stundargróða og sérhagsmuni
sitja í fyrirrúmi. Ég tel, að það
sé mjög hættulegt fiskistofnun-
um, að ég nú ekki tali um af-
komuna, að þessi floti sé rekinn
saman á litlum svæðum og skip-
að að halda sig þar í hnapp. Tog-
ararnir þyrftu að geta dreift
meira úr sér og þannig jafnað-
ist sóknin meir en nú er, um
alla fiskislóðina. Þegar erlend-
ir togarar hafa verið reknir
af miðunum eykst veiðisvæði
íslenzku togaranna og einnig
þegar fært hefur verið út í
200 sjómílur. Og þá held ég að
gott geti reynzt að eiga stór skip
fyrir landi, sem langt geta sótt
og þar með nýtt hina víðáttu-
miklu fiskislóð, sem skapast við
útfærsluna. Við vonum allir, að
sú stund renni upp, að við þurf-
um ekki að deila lífsbjörginni úr
sjónum með erlendum mönnum,
og ég vil Ijúka þessu ávarpi mínu
með þeim orðum, sem mér finnst
að gætu verið kjörorð þessa sjó-
mannadags: íslenzk mið fyrir ís-
lenzka sjómenn.
Skoðun og víðgerðir
gúmmíbáta allt árið.
Kókosdreglar og ódýr
teppi fyrirliggjandi.
GÚMMlBÁTAÞJÓNUSTAN
Grandagarði 13 - Simi 14010
Leiðréttmg
Leið mistök voru í myndatexta
í 3. tbl. 1975, bls. 106. Þar er
sagt að Guðbjörn Jensson hafi
lengst af verið skipstjóri á Þor-
móði goða, þetta er rangt, því
eins og flestir vita þá var Guð-
björn lengi með Þorkel mána,
togara BÚR, við góðan orðstír.
Ennfremur var rangfært föð-
urnafn skipstjórans á Héðni ÞH,
sem nú heitir HRAFN GK. Skip-
stjórinn heitir Sveinn Isaksson,
en ekki Sigurjónsson. Hlutaðeig-
andi aðilar eru beðnir velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Drifkeðjur og
keðjuhjól
Flestar stærðir ávallt
fyrirliggjandi.
Verðið mjög
hagstætt.
LANDSSMIDJAN
SÍMI 20680
188
VÍKINGUR