Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1977, Side 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1977, Side 17
Það er meira en að segja það, að stálið skuli þola allan þennan lát- lausa velting undir þungu fargi og stöðugt brim er á breiðu þilfarinu, þar sem fríborðið er lítið og ekki megnugt að halda öldunum frá. Þar bætist við ofboðslegur yfir- þungi, sem ekki er reiknaður í burðarþoli skipsins. — Auk annars, sem skrokkur- inn verður að þola, er álagið þegar 200.000 tonnum er dælt með feykna krafti niður í lestar þess á nokkrum klukkutímum. I sumum höfnum, þar sem lestað er, verður farmurinn að koma um borð á svipstundu þar sem skipið flýtur ekki nema á flóði. Minnsta seink- un getur valdið því að skipið leggst með ofurþunga sinn á botninn. Slíkir skaðar eru algengir, en hver skemmd, sem skrokkurinn verður SPARISJÖÐUR VÉLSTJÓRA Hátúni 4a (á horni Laugavegs og Nóa- túns) Afgreiðslutími kl. 09,30—15,30 og 16,30—18,00 Við bjóðum viðskiptavinum vor- um upp á alla almenna þjónustu og næg bílastæði ®28577 fyrir, minnkar styrkleikann til muna. Ein ástæðan fyrir því að gömul olíuskip farast undir farmi er sú, að skipið hefur orðið fyrir skemmdum í starfi, það er „slitið“ og því fer sem fer. Á seinni árum hefur þetta einkum hent minni skip, en nú er fyrsta kynslóð VLCC skipanna senn 10 ára gömul, og þau eru byrjuð að ganga úr sér og þá munu þau farast, því þau nálgast skamman meðalaldur tankskipa. Skip og menn Þá segir Mostert þetta að lokum í viðtalinu við Time: Langsiglingar af því tagi, sem stórskipin sigla, hafa vond sál- fræðileg áhrif á sjómennina. Þau sigla líka hægar en áður og dvölin á sjónum verður því lengri, með ýmsum afleiðingum. Ef skipverjar eru í slæmu and- legu jafnvægi, þá er stjórnin á skipi þeirra verri en ella. — Af framansögðu leiðir, að mjög brýnt er að eftirlit með risa- skipunum og olíuskipunum verði aukið. Þar sem enginn aðili fer með raunverulegt eftirlit með þeim, er brýnt að setja alþjóðareglur um þessi skip. Eins og fram kemur í viðtalinu við blaðamanninn, þá heldur hann því hiklaust fram að álag sé of mikið á þá sem sigla VLCC skipunum, og þótt - skipstjórnar- menn séu dregnir fyrir rétt, efast maður um að vandinn verði um alla framtíð leystur með skaðabót- um. Hér eiga Islendingar hags- muna að gæta, bæði sem fisk- veiðiþjóð, og sem menningarþjóð, sem vill berjast gegn mengun náttúrunnar. Sagt var frá því í fregnum, að hugsanlegt væri að Golfstraumur- inn bæri olíubrákina frá ARGO MERCHANT upp að ströndum íslands, inn á viðkvæmustu hrygningarsvæði íslenskra nytja- fiska. Vonandi fer ekki svo, en minnumst þess að þetta getur gerst, er jafnvel í nánd. Q.ELL1NGSEN HF ÁNANAUSTUM SlMI 28855 Elzta og staersta veiSarfaera- verzlun landsins. HýhVinyl SJÓMENN Þetta merki bregst-ykkur aldrei Veljið það.- Nótið VINYL-vettl- inga I ykkar erfiða starfi. Starf ykkar krefst sterkustu og endingarbeztu vettlinganna. SJÓKLÆOAGERÐIN HF. Skúlagötu 51 - Reykjavlk Slmar: 12063 og 14085. VÍKINGUR 17

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.