Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1977, Qupperneq 17
Það er meira en að segja það, að
stálið skuli þola allan þennan lát-
lausa velting undir þungu fargi og
stöðugt brim er á breiðu þilfarinu,
þar sem fríborðið er lítið og ekki
megnugt að halda öldunum frá.
Þar bætist við ofboðslegur yfir-
þungi, sem ekki er reiknaður í
burðarþoli skipsins.
— Auk annars, sem skrokkur-
inn verður að þola, er álagið þegar
200.000 tonnum er dælt með
feykna krafti niður í lestar þess á
nokkrum klukkutímum. I sumum
höfnum, þar sem lestað er, verður
farmurinn að koma um borð á
svipstundu þar sem skipið flýtur
ekki nema á flóði. Minnsta seink-
un getur valdið því að skipið leggst
með ofurþunga sinn á botninn.
Slíkir skaðar eru algengir, en hver
skemmd, sem skrokkurinn verður
SPARISJÖÐUR
VÉLSTJÓRA
Hátúni 4a
(á horni Laugavegs og Nóa-
túns)
Afgreiðslutími kl. 09,30—15,30
og 16,30—18,00
Við bjóðum viðskiptavinum vor-
um upp á alla almenna þjónustu
og næg bílastæði
®28577
fyrir, minnkar styrkleikann til
muna.
Ein ástæðan fyrir því að gömul
olíuskip farast undir farmi er sú, að
skipið hefur orðið fyrir skemmdum
í starfi, það er „slitið“ og því fer
sem fer.
Á seinni árum hefur þetta
einkum hent minni skip, en nú er
fyrsta kynslóð VLCC skipanna
senn 10 ára gömul, og þau eru
byrjuð að ganga úr sér og þá
munu þau farast, því þau nálgast
skamman meðalaldur tankskipa.
Skip og menn
Þá segir Mostert þetta að lokum
í viðtalinu við Time:
Langsiglingar af því tagi, sem
stórskipin sigla, hafa vond sál-
fræðileg áhrif á sjómennina. Þau
sigla líka hægar en áður og dvölin
á sjónum verður því lengri, með
ýmsum afleiðingum.
Ef skipverjar eru í slæmu and-
legu jafnvægi, þá er stjórnin á
skipi þeirra verri en ella.
— Af framansögðu leiðir, að
mjög brýnt er að eftirlit með risa-
skipunum og olíuskipunum verði
aukið.
Þar sem enginn aðili fer með
raunverulegt eftirlit með þeim, er
brýnt að setja alþjóðareglur um
þessi skip.
Eins og fram kemur í viðtalinu
við blaðamanninn, þá heldur
hann því hiklaust fram að álag sé
of mikið á þá sem sigla VLCC
skipunum, og þótt - skipstjórnar-
menn séu dregnir fyrir rétt, efast
maður um að vandinn verði um
alla framtíð leystur með skaðabót-
um. Hér eiga Islendingar hags-
muna að gæta, bæði sem fisk-
veiðiþjóð, og sem menningarþjóð,
sem vill berjast gegn mengun
náttúrunnar.
Sagt var frá því í fregnum, að
hugsanlegt væri að Golfstraumur-
inn bæri olíubrákina frá ARGO
MERCHANT upp að ströndum
íslands, inn á viðkvæmustu
hrygningarsvæði íslenskra nytja-
fiska. Vonandi fer ekki svo, en
minnumst þess að þetta getur
gerst, er jafnvel í nánd.
Q.ELL1NGSEN HF
ÁNANAUSTUM
SlMI 28855
Elzta og staersta veiSarfaera-
verzlun landsins.
HýhVinyl
SJÓMENN
Þetta merki bregst-ykkur aldrei
Veljið það.- Nótið VINYL-vettl-
inga I ykkar erfiða starfi.
Starf ykkar krefst sterkustu og
endingarbeztu vettlinganna.
SJÓKLÆOAGERÐIN HF.
Skúlagötu 51 - Reykjavlk
Slmar: 12063 og 14085.
VÍKINGUR
17