Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Page 44
Áhöfnin er fimm manns, tveir
vísindamenn til viðbótar. Kafbát-
urinn getur siglt á fullri ferð svo
lengi sem þarf; aðeins þarf að taka
mið af matarbirgðum og öðru
slíku. Á bátnum eru kýraugu svo
menn geti séð hafsbotninn með
berum augum. Utan á skrokknum
eru sjónvarpsmyndavélar og
kvikmyndavélar. Þar að auki er á
honum járnhönd til að ná sýnum
af botni.
Ásgeir Þórhallsson tók saman
Alvin, verið að slaka
honum í hafið til
að leita sprengjunnar.
Mikill munur flóðs
og fjöru
Þessar tvær myndir tók Halldór
Halldórsson árið 1976 af sama
skipi á fjöru og flóði. Það er þarna
statt í Digby sem er utarlega í
Fundy-flóa í Nova Scotia í Kan-
ada. Frendo Simby hét skipið, en
síðar nefndist það Austri og var í
eigu Jóns Franklíns. í Digby er
mikill munur flóðs og fjöru, eða
nær 7.5 metrar mestur. í Burnt
Coat Head sem er innst við
Fundyflóa er munurinn tvöfalt
meiri, eða rúmir 15 metrar, og er
hvergi meiri á jarðkúlunni. Til
samanburðar má geta þess að
munur flóðs og fjöru verður
mestur á íslandi nær 5.5 metrar,
við innanverðan Breiðafjörð.
44
VÍKINGUR