Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Síða 32
Kolbeinn Bjamason, í rúm fimm
ár. En lengstan starfsaldur hjá
fyrirtækinu á kokkurinn, hún
Magnea, sautján ár. Hún byrjaði
fyrst á Leó litla og fór síðan austur
á Raufarhöfn þar sem unnið var
að björgun á Susönnu Reith. Þar
kokkaði hún oní strákana, fyrst í
skúr í landi en síðan settust þau að
aftan i flakinu, strax og það var
mögulegt. Síðan vann Magnea á
Sandeynni í fimmtán ár en fékk
pláss á Perlu fyrir einu og hálfu
ári. Fyrir utan eldamennsku og
uppþvott sér Magnea um þrif á
göngum og salemum, þvær þvotta
í gamaldags þvottavél og þrífur
skipstjóraíbúðina.
Hreinn Hreinsson útgerðarstjóri Björgunar h/f, hefur unnið við fyrirtækið í aldarfjórð-
ung en fyrirtækið var stofnað 1952. Ekki er alveg Ijóst hve niikið erdælt á land á ári en
u.þ.b. fimm ferðireru famará sólarhring og komið með um 600 tonn að landi í hverri ferð.
Getur þá hver reiknað út sem áhuga liefur.
svo hægt sé að byggja og fylla upp.
Felix kokkur sem var að fara í frí,
var búinn að elda matinn svo
Magnea Guðlaugsdóttir sem tók
við, dekkar borðið og síðan er
snætt á útleiðinni. Pétur Jóhanns-
son, stýrimaður sem nú er á vakt,
sér um að koma okkur á réttan
stað.
Sigurgarðar Sturluson háseti, sá
sem vann við löndunina áðan og
hefur unnið i 14 ár hjá fyrirtækinu
er nú að fara á frívakt. Hann var á
vakt frá sex í morgun til hádegis.
Garðar er miðaldra maður með
mikið hvítt ár og virðist vera
spaugarinn í hópnum. Félagar
hans titla hann „skipstjórann á
Þristinum" og að því er hent mikið
gaman. Seinna kemst ég að því að
Þristurinn er lítill prammi í eigu
fyrirtækisins sem stendur nú á
þurru landi.
Á meðan á máltíðinni stendur,
kemst ég að því að flestir hafa
skipverjamir unnið lengi hjá fyr-
irtækinu. Skipstjórinn, Jón Óli
Gíslason, hefur verið við að dæla
sandi, ýmist sem stýrimaður eða
skipstjóri, í fimmtán ár. Áður
stundaði hann sjó á fiskiskipum.
Öm Tyrfingsson, vélstjóri, sem nú
var að taka við, hefur unnið við
þetta í tíu ár og hinn vélstjórinn,
Sjónvarpslaus
sjónvarpshilla
Maturinn bragðast prýðisvel,
steikt fiskfars, kartöflur og
ávaxtagrautur á eftir. Klukkan er
rúmlega tólf og hádegisútvarpið
að hefjast. Á eftir er sötraður
molasopi.
Messinn, aðalsamkomustaður
skipveija, er ekki stór. Varla getur
Gegnum rörið streymir sandur, möl og sjór og „hreinsunardeildin“ er mætt á vettvang.
Það eru mávarnir sem fúslega hirða ýmislegt ætilegt góðgæti sem fylgir með og þeim
finnst óþarfi að sé steypt inn í hús. Til vinstri sjást geymar Sementsverksmiðju Ríkisins á
Sævarhöfða.
32
VÍKINGUR