Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Page 57
V élstj órafélagid kaupir
fullkomið tölvukerfi
Ritvinnslutölvan North Star Horizon í öllu sínu veldi, komin inn á skrifstofu Vélstjóra-
félagsins og farin að lúta stjóm Soffíu sem kom til starfa hjá félaginu í sumar. Enn er
ekki búið að ákveða hvað tölvan á að heita þó nafnið „Sjússa“ hafi notið nokkurra
vinsælda meðal starfsfólks Borgartúns 18.
Við þennan tölvuskerm hefur Bolli Héðinsson unnið að áætlanagerð fyrir F.F.S.Í. Soffía
er nemandi í viðskiptafræðum við H.í. en starfar á skrifstofunni eftir hádegi.
Eins og fram hefur komið hér í
félagsmáladálknum, hefur Vél-
stjórafélagið fest kaup á full-
komnu tölvukerfi af gerðinni
North Star Horizon. Tölvukerfið
býður upp á marga möguleika og
mun Vélstjórafélagið setja inn í
það félagaskrá sína, fyrirtækja-
skrá og greiðsluskrá félagsgjalda
þar sem hægt er að reikna drátt-
arvexti á vangoldnum félags-
gjöldum. í tölvunni er einnig rit-
vinnsluforrit þar sem hægt er að
prenta inn launatöflur og kjara-
samninga og prentast þeir þá út á
blöðum í stærðinni A4. Hægt er að
geyma öll bréf sem send eru út,
inni á forriti og ef t.d. þarf að
leiðrétta eina línu í kjarasamningi
er hægt að gera það á tölvuskján-
um og fá samninginn prentaðan í
sinni nýju mynd.
Geir Reginn Jóhannsson hefur
séð um að rita forritin inn í tölv-
una en Soffía Hrafnkelsdóttir
viðskiptafræðinemi er í hálfu
starfi hjá félaginu við tölvuvinnsl-
una.
Hagfræðingur F.F.S.Í., Bolli
Héðinsson, mun einnig nota tölv-
una við vinnslu á áætlunargerðum
fyrir sambandið og Sjómanna-
blaðið Víkingur fær afnot af tölv-
unni fyrir áskrifendaskrá sína og
innheimtuskrá svo og við prentun
límmiða og gíróseðla.
E.Þ.
VÍKINGUR
57